Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 610. máls.

Þskj. 894  —  610. mál.




Tillaga til þingsályktunar

um staðfestingu samnings milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar
innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2006.

(Lögð fyrir Alþingi á 132. löggjafarþingi 2005–2006.)




    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd samning milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2006 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Þórshöfn og Reykjavík 16. janúar 2006.

Athugasemdir við þingsályktunartillögu þessa.


    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á samningi milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2006 sem gengið var frá með bréfaskiptum í Þórshöfn og Reykjavík 16. janúar 2006. Samningurinn er prentaður sem fylgiskjal með tillögu þessari.
    Samningur þessi, sem kveður á um allar heimildir aðila til veiða á uppsjávarfiski í lögsögu hvors annars á árinu 2006, er að mestu samhljóða samningi aðila frá árinu 2005. Gerir samningurinn ráð fyrir að aðilar semji fyrir 20. júní 2006 um veiðiheimildir færeyskra nótaskipa á loðnuvertíðinni sem stendur frá þeim degi til apríl 2007. Er eins og áður við það miðað að veiðiheimildir færeyskra nótaskipa á þessu tímabili verði um 30 þúsund lestir enda breytist forsendur varðandi leyfðan heildarafla og önnur atriði er máli skipta ekki í verulegum atriðum.
    Sem fyrr er gert ráð fyrir því að heimilt sé að landa aflanum til vinnslu á Íslandi, en að óheimilt sé að vinna eða frysta afla sem veiddur er á tímabilinu janúar til apríl um borð og að utan Íslands sé einungis heimilt að landa þeim afla til bræðslu. Færeyingar hafa á undanförnum árum leitað mjög eftir því að fallið yrði frá þessum takmörkunum á möguleikum þeirra til manneldisvinnslu á loðnu um borð í veiðiskipum og í Færeyjum. Var fallist á það af hálfu Íslands að sjávarútvegsráðherra tæki til athugunar og ákvörðunar fyrir upphaf næstu loðnuvertíðar hvort þessum takmörkunum skuli aflétt og er kveðið á um það nýmæli í samningnum.
    Í samningnum er eins og í samningi aðila frá fyrra ári kveðið á um að færeyskum skipum sé heimilt á loðnuvertíðinni 2006/2007 að veiða allt að 10.000 lestir af loðnu innan lögsögu Íslands úr veiðiheimildum sem fengnar eru með samningum færeyskra og grænlenskra stjórnvalda.
    Samningurinn gerir einnig ráð fyrir gagnkvæmri heimild skipa hvors aðila til veiða á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan lögsögu hins á árinu 2006.
    Þá er í samningnum staðfest heimild íslenskra skipa til veiða á allt að 1.300 lestum af makríl og 2.000 lestum af síld annarri en norsk-íslenskri innan færeyskrar lögsögu á árinu 2006.
    Loks er í samningnum kveðið á um að hvor aðili skuli veita tveimur skipum, sem skráð eru í landi hins aðilans, leyfi til tilraunaveiða á túnfiski innan lögsögu sinnar á árinu 2006.
    Samningurinn tók gildi til bráðabirgða 16. janúar 2006 og mun öðlast endanlegt gildi þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið fullnægt.
    Áður en samningur þessi var gerður var á grundvelli samnings landanna frá 1976 um heimildir Færeyinga til veiða í lögsögu Íslands ákveðið að færeyskum skipum væri heimilt að veiða 5.600 lestir af botnfiski við Ísland á árinu 2006. Er þar um óbreyttar veiðiheimildir frá árinu 2005 að ræða.



Fylgiskjal.


SAMNINGUR
milli Íslands og Færeyja
um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2006.

a. Bréf lögmanns Færeyja til utanríkisráðherra Íslands.


Þórshöfn, 16. januar 2006


Uttanríkisráðharri
Geir H. Haarde
Rauðarárstíg 25
150 Reykjavík
Ísland

Harri Uttanríkisráðharri,

    Eg loyvi mær at vísa til samráðingar millum íslendskar og føroyskar myndugleikar um fiskiveiði í íslendskum og føroyskum sjógvi í 2006.
    Eg havi skilt, at semja er vorðin um fylgjandi:

„Semja
millum Ísland og Føroyar
um fiskiveiði í íslendskum og føroyskum sjógvi í 2006.


1. gr.

    Partarnir fara fyri 20. juni 2006 at gera sáttmála um veiðiheimildir hjá føroyskum nótaskipum í lodnutíðini, sum varar frá 20. juni 2006 til apríl 2007. Samráðingarstøðið er, at veiðiheimildir hjá føroyskum nótaskipum í hesum tíðarskeiði verða um 30 túsund tons, treytað av at fyritreytir viðvíkjandi loyvdari heildarveiði og onnur viðurskifti, sum hava týdning, ikki broytast munandi.
    Loyvt er at landa veiðina til framleiðslu í Íslandi. Tað er ikki loyvt at framleiða ella frysta tann partin av veiðini, sum er veiddur í tíðarskeiðnum januar til apríl um borð, og uttan fyri Ísland er bert loyvt at landa sama partin til ídnað. Íslendski fiskimálaráðharrin skal fyri 20. juni 2006 taka støðu til og avgerð um, hvørt hesar forðingar verða tiknar av.
    Føroyskum skipum er í lodnuvertíðini 2006/2007 loyvt at veiða upp til 10.000 tons av lodnu í hvørji vertíð í íslendskum búskaparøki við veiðiheimildum, sum eru fíngnar við samráðingum millum Føroyar og Grønland.

2. gr.

    Føroyskum skipum er loyvt at veiða svartkjaft og várgýtandi norðhavssild í íslendskum búskaparøki í 2006. Eftir samráðingar við landsstýrið í Føroyum kunnu íslendskir myndugleikar áseta mest loyvda skipatal, sum kunnu veiða samstundis á leiðini.

3. gr.

    Íslendskum skipum er loyvt at veiða svartkjaft og várgýtandi norðhavssild í føroyskum sjógvi í 2006. Eftir samráðingar við íslendskar myndugleikar kann Føroya landsstýri áseta mest loyvda skipatal, sum kunnu veiða samstundis á leiðini.

4. gr.

    Íslendskum skipum er loyvt at veiða upp til 1.300 tons av makreli í føroyskum sjógvi í 2006 og at veiða upp til 2.000 tons av sild úr øðrum sildastovni enn várgýtandi norðhavssild.

5. gr.

    Føroysk skip, sum veiða sambært hesi avtalu í íslendskum búskaparøki, skulu fylgja somu veiðireglum, sum galda fyri íslendsk skip um reiðskap og fiskileiðir.
    Íslendsk skip, sum veiða sambært hesi avtalu í føroyskum sjógvi, skulu fylgja somu veiðireglum, sum galda fyri føroysk skip um reiðskap og fiskileiðir.
    Skipum, ið veiða eftir svartkjafti, er ikki loyvt at hava reiðskap til botnfiskaveiði um borð.

6. gr.

    Partarnir skulu fráboða ein lista yvir tey fiskifør, sum ætla at veiða á økjunum hjá hvørjum øðrum. Bert tey fiskifør, sum eru á hesum lista, hava loyvi at veiða á økjunum.
    Áðrenn fiskiskapurin byrjar, skulu avvarðandi myndugleikar hava boð um navn á skipi saman við øðrum upplýsingum av týðningi.
    Skipið skal boða frá, tá tað kemur á veiðiøkið, uppgeva knøttstøðu og veiðinøgd, sum er veidd, áðrenn komu á økið, og síðani uppgeva knøttstøðu og veiði hvønn dag. Tá skip fer av veiðiøkinum skal mett veiða verða givin upp. Nágreiniligari ásetingar um fráboðanir verða ásettar í kunngerð.

7. gr.

    Hvør partur fyri sig skal geva tveimur skipum, sum eru skrásett í landinum hjá hinum partinum, loyvi til royndarveiðu eftir tunfiski á landleiðini hjá sær í 2006.“

    Um tygum staðfesta, at tað, ið stendur omanfyri, er i samsvar við fatan tygara, loyvi eg mær at skjóta upp, at henda avtala fær gildi fyribils, tá svarbræv tygara hesum viðvíkjandi er dagsett og endaliga, tá boðað er frá, at stýrisskipanarligu krøvini hjá hvørjum landi eru uppfylt.

                                       Við hávirðing,
                                       Jóannes Eidesgaard
                                       løgmaður


b. Svarbréf utanríkisráðherra Íslands.


Reykjavík, 16. janúar 2006


Hr. lögmaður
Jóannes Eidesgaard
Föroya Landsstýri
Torshavn

Herra lögmaður.

    Ég leyfi mér að vísa til bréfs yðar, dags. í dag, sem er svohljóðandi:

    „Ég leyfi mér að vísa til samtala milli íslenskra og færeyskra stjórnvalda um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2006.
    Mér skilst að samkomulag hafi orðið um eftirfarandi samning:

„Samningur
milli Íslands og Færeyja
um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu á árinu 2006.


1. gr.

    Aðilar munu semja fyrir 20. júní 2006 um veiðiheimildir færeyskra nótaskipa á loðnuvertíðinni sem stendur frá 20. júní 2006 til apríl 2007. Er við það miðað að veiðiheimildir færeyskra nótaskipa á þessu tímabili verði um 30 þúsund lestir enda breytist forsendur varðandi leyfðan heildarafla og önnur atriði er máli skipta ekki í verulegum atriðum.
    Heimilt er að landa aflanum til vinnslu á Íslandi. Óheimilt er að vinna eða frysta afla sem veiddur er á tímabilinu janúar til apríl um borð og utan Íslands er einungis heimilt að landa þeim afla til bræðslu. Sjávarútvegsráðherra Íslands tekur fyrir 20. júní 2006 til athugunar og ákvörðunar hvort þessum takmörkunum skuli aflétt.
    Færeyskum skipum er heimilt á loðnuvertíðinni 2006/2007 að veiða allt að 10 þús. lestir af loðnu innan efnahagslögsögu Íslands úr veiðiheimildum sem fengnar eru með samningum færeyskra og grænlenskra stjórnvalda.

2. gr.

    Færeyskum skipum eru heimilar veiðar á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan efnahagslögsögu Íslands á árinu 2006. Að höfðu samráði við landstjórn Færeyja geta íslensk stjórnvöld ákveðið að veiðarnar stundi aðeins tiltekinn fjöldi skipa samtímis.

3. gr.

    Íslenskum skipum eru heimilar veiðar á kolmunna og norsk-íslenskri síld innan fiskveiðilögsögu Færeyja á árinu 2006. Að höfðu samráði við íslensk stjórnvöld getur landstjórn Færeyja ákveðið að veiðarnar stundi aðeins tiltekinn fjöldi skipa samtímis.

4. gr.

    Íslenskum skipum eru heimilar veiðar á allt að 1.300 lestum af makríl innan fiskveiðilögsögu Færeyja á árinu 2006 og veiðar á allt að 2.000 lestum af síld úr síldarstofnum öðrum en þeim norsk-íslenska.

5. gr.

    Færeysk skip, sem stunda veiðar samkvæmt samningi þessum innan íslenskrar lögsögu, skulu hlíta sömu reglum og gilda um veiðar íslenskra skipa, þar á meðal reglum um veiðarfæri og veiðisvæði.
    Íslensk skip, sem stunda veiðar samkvæmt samningi þessum innan færeyskrar lögsögu, skulu hlíta sömu reglum og gilda um veiðar færeyskra skipa, þar á meðal reglum um veiðarfæri og veiðisvæði.
    Skipum við kolmunnaveiðar er óheimilt að hafa um borð veiðarfæri sem nota má til botnfiskveiða.

6. gr.

    Hvor aðili um sig skal tilkynna lista með þeim veiðiskipum sem hyggjast stunda veiðar samkvæmt samningi þessum innan lögsögu hins aðilans. Skip sem eru á listum þessum hafa ein rétt til veiða innan lögsögu þess aðila.
    Áður en veiðar hefjast skal tilkynna viðkomandi yfirvöldum um nafn skips og veita aðrar upplýsingar er máli skipta.
    Veiðiskip skal tilkynna um komu inn í lögsögu og staðarákvörðun og gefa upplýsingar um afla sem veiddur hefur verið fyrir komu inn í lögsöguna og síðan daglega tilkynna um staðarákvörðun og afla. Þegar farið er úr lögsögu skal tilkynna um áætlað aflamagn. Nánar er kveðið á um tilkynningar þessar í reglugerð.

7. gr.

    Hvor aðili um sig skal veita tveimur skipum, skráðum í landi hins aðilans, leyfi til tilraunaveiða á túnfiski innan lögsögu sinnar á árinu 2006.“

    Ef þér staðfestið að ofangreint sé skilningur yðar leyfi ég mér að leggja til að samningur þessi taki gildi til bráðabirgða þegar svarbréf yðar þar um er dagsett og endanlega þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið endanlega fullnægt.“

    Ég leyfi mér að staðfesta að ofangreint er skilningur minn og tekur samningurinn gildi til bráðabirgða í dag og endanlega þegar tilkynnt hefur verið um að stjórnskipulegum skilyrðum hvors lands um sig hafi verið endanlega fullnægt.

                                       Virðingarfyllst,
                                       Geir H. Haarde
                                       utanríkisráðherra