Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 654. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 961  —  654. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um sauðfjárveikivarnir.

Frá Jóhönnu Erlu Pálmadóttur.



    Hefur verið skoðað hvort þörf sé á að flokka landbúnaðartæki og önnur tæki sem farið er með þvert á sauðfjárveikivarnalínur með tilliti til smithættu sem gæti borist á milli varnarhólfa með tækjunum, nú þegar bændur og aðrir vinnuvélaeigendur eru í ríkari mæli farnir að sækja vinnu út af búum sínum?


Skriflegt svar óskast.