Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 663. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Prentað upp.

Þskj. 972  —  663. mál.
Ráðherra.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um upplýsingar í ársreikningum um lán til stjórnenda fyrirtækja.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.



     1.      Telur ráðherra að samræma þurfi lög um hlutafélög, skattalög og lög um ársreikninga í ljósi niðurstöðu héraðsdóms í Baugsmálinu og að skrá eigi öll lán fyrirtækja í ársreikninga eins og sérfræðingar hafa haldið fram opinberlega?
     2.      Er ráðherra sammála þeim sem hafa haldið því fram að mistök hafi orðið við innleiðingu félagatilskipunar Evrópusambandsins um framsetningu ársreikninga?
     3.      Telur ráðherra að breyta þurfi ársreikningalögum til að skýrt liggi fyrir hvað eru lán í skilningi laganna?