Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 680. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 996  —  680. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um umferðaröryggi á Kjalarnesi.

Frá Birgi Ármannssyni.



     1.      Hvaða áform eru uppi af hálfu samgönguyfirvalda um vegabætur í þágu umferðaröryggis á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi?
     2.      Eru sérstaklega fyrirhugaðar breytingar á vegtengingu við þéttbýlið á Kjalarnesi?
     3.      Hvenær má vænta framkvæmda við breytingar af þessu tagi?