Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 704. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1034  —  704. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um heimildir til símhlerunar.

Frá Björgvini G. Sigurðssyni.



     1.      Hve oft hefur verið veitt heimild til símhlerunar við héraðsdómstóla sl. 10 ár, sundurliðað eftir árum og dómstólum?
     2.      Liggja fyrir í dómsmálaráðuneytinu upplýsingar um notkun veittra heimilda til símhlerunar? Ef svo er, símtöl hve margra einstaklinga voru hleruð á umræddu tímabili?
     3.      Hverjar eru uppgefnar ástæður fyrir hlerunarheimildunum, sundurliðað eftir veittum heimildum?


Skriflegt svar óskast.