Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 755. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1104  —  755. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um afnám verðtryggingar lána.

Frá Valdimar L. Friðrikssyni.



     1.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir því að afnema verðtryggingu lána?
     2.      Hvaða kosti og galla telur ráðherra að verðtrygging lána hafi fyrir almenna lántakendur?
     3.      Hvaða kosti og galla telur ráðherra að afnám verðtryggingar lána gæti haft fyrir almenna lántakendur?