Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 781. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Prentað upp.

Þskj. 1168  —  781. mál.
Ráðherra.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um útgáfu krónubréfa.

Frá Kristjáni L. Möller.



     1.      Hvert er heildarnafnvirði útgefinna skuldabréfa í íslenskum krónum frá upphafi til 10. apríl sl., sundurliðað eftir útgefanda, landi, starfsemi, upphæð, útgáfudegi, gjalddaga og gengisvísitölu?
     2.      Hverjir eru 15 stærstu útgefendur krónubréfa og hvert er heildarnafnvirði bréfa sem hver og einn hefur gefið út?
     3.      Hversu há upphæð gjaldfellur mánaðarlega héðan í frá?


Skriflegt svar óskast.