Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 795. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1281 — 795. mál.
um Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar.
Flugmálastjórn Íslands annast eftirlit með framkvæmd flugverndar og flugöryggis á Keflavíkurflugvelli.
Sérstakur flugvallarstjóri stjórnar starfsemi og rekstri Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar og ræður starfsmenn til stofnunarinnar.
Utanríkisráðherra setur reglugerð þar sem kveðið er nánar á um skipulag og starfsemi Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar.
Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar er heimilt að semja við sveitarfélag eða byggðasamlag um að hafa með höndum verkefni og stjórn slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli. Um slíkt skal gera skriflegan samning sem skal tilkynna til Brunamálastofnunar.
Utanríkisráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari reglur um starfsemi slökkviliðs Keflavíkurflugvallar.
Við gildistöku laga þessara breytast eftirfarandi ákvæði laga um loftferðir, nr. 60 10. júní 1998:
a. Við 1. mgr. 71. gr. a, sbr. 2. gr. laga nr. 74/2000 og 1. gr. laga nr. 88/2004, bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó skulu tekjur af lendingargjöldum á Keflavíkurflugvelli renna til Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar.
b. Á eftir 1. málsl. 1. mgr. 71. gr. b, sbr. 2. gr. laga nr. 74/2000 og 2. gr. laga nr. 88/2004, kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Öryggisgjald vegna vopna- og öryggisleitar á Keflavíkurflugvelli skal þó greiðast til Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar.
Flugvallarstjórinn á Keflavíkurflugvelli undirbýr og annast ráðningar í framangreind störf hjá Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar í samráði við varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Ákvæði 7. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, gilda ekki um störf sem ráðið er í samkvæmt þessu ákvæði.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1281 — 795. mál.
Frumvarp til laga
um Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar.
(Eftir 2. umr., 4. maí.)
1. gr.
Flugmálastjórn Íslands annast eftirlit með framkvæmd flugverndar og flugöryggis á Keflavíkurflugvelli.
Sérstakur flugvallarstjóri stjórnar starfsemi og rekstri Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar og ræður starfsmenn til stofnunarinnar.
Utanríkisráðherra setur reglugerð þar sem kveðið er nánar á um skipulag og starfsemi Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar.
2. gr.
Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar er heimilt að semja við sveitarfélag eða byggðasamlag um að hafa með höndum verkefni og stjórn slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli. Um slíkt skal gera skriflegan samning sem skal tilkynna til Brunamálastofnunar.
Utanríkisráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari reglur um starfsemi slökkviliðs Keflavíkurflugvallar.
3. gr.
Við gildistöku laga þessara breytast eftirfarandi ákvæði laga um loftferðir, nr. 60 10. júní 1998:
a. Við 1. mgr. 71. gr. a, sbr. 2. gr. laga nr. 74/2000 og 1. gr. laga nr. 88/2004, bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Þó skulu tekjur af lendingargjöldum á Keflavíkurflugvelli renna til Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar.
b. Á eftir 1. málsl. 1. mgr. 71. gr. b, sbr. 2. gr. laga nr. 74/2000 og 2. gr. laga nr. 88/2004, kemur nýr málsliður, svohljóðandi: Öryggisgjald vegna vopna- og öryggisleitar á Keflavíkurflugvelli skal þó greiðast til Flugmálastjórnar Keflavíkurflugvallar.
Ákvæði til bráðabirgða.