Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 710. máls.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1478 — 710. mál.
um kjararáð.
Alþingi kýs þrjá ráðsmenn. Hæstiréttur skipar einn ráðsmann og fjármálaráðherra annan. Sömu aðilar velja vararáðsmenn. Kjararáðsmenn skulu skipaðir til fjögurra ára í senn.
Kjararáð kýs formann og varaformann úr hópi aðalmanna og setur sér sjálft starfsreglur.
Þriggja manna kjararáð skal skipað þannig að formaður velur með sér tvo úr hópi aðalmanna í ráðinu, og eftir atvikum varamanna. Þess skal gætt að ávallt sé í þessum þriggja manna hópi einn ráðsmaður skipaður af fjármálaráðherra og annar ráðsmaður skipaður af Alþingi.
Talsmönnum þeirra sem undir úrskurðarvald kjararáðs falla, fjármálaráðuneyti og öðrum ráðuneytum vegna starfsmanna og stofnana sem undir þau heyra skal gefinn kostur á að leggja fram skriflegar eða munnlegar greinargerðir vegna þeirra mála sem til úrlausnar eru. Ráðið getur og heimilað málsaðilum að reifa mál sitt fyrir ráðinu.
Kjararáð skal ætíð taka tillit til almennrar þróunar kjaramála á vinnumarkaði.
Kjararáð skal við úrlausn mála taka tillit til venjubundins vinnuframlags og starfsskyldna umfram dagvinnu. Það úrskurðar hvaða aukastörf tilheyri aðalstarfi og hver beri að launa sérstaklega.
Við ákvarðanir sínar getur ráðið tekið tillit til sérstakrar hæfni er nýtist í starfi og sérstaks álags og ábyrgðar er starfinu fylgir.
Kjararáð skal meta og taka tillit til kvaða sem störfunum fylgja, svo og hlunninda og réttinda sem tengjast embætti og launum, svo sem lífeyrisréttinda og ráðningarkjara.
Eigi sjaldnar en árlega skal kjararáð meta hvort tilefni sé til breytinga á starfskjörum sem það ákveður. Kjararáð getur þó ákveðið að stefnumarkandi ákvarðanir um innbyrðis launahlutföll og heildarstarfskjör á ákvörðunarsviði ráðsins séu teknar sjaldnar, til dæmis þriðja eða fjórða hvert ár.
Kjararáð skal birta ákvarðanir sínar og úrskurði og ástæður fyrir þeim opinberlega með skipulegum og aðgengilegum hætti.
Ákvörðunum og úrskurðum kjararáðs verður ekki skotið til annars stjórnvalds.
1. Í stað orðanna „Kjaranefnd eða Kjaradómi“ í 4. mgr. 2. gr. laga um ríkislögmann, nr. 51/1985, kemur: kjararáði.
2. Í stað orðanna „lög um Kjaradóm og kjaranefnd“ í 1. tölul. 2. mgr. 1. gr. og 1. tölul. 1. mgr. 19. gr. laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna, nr. 94/1986, kemur: kjararáð.
3. Eftirfarandi breytingar verða á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996:
a. Í stað orðanna „Kjaradóms eða kjaranefndar“ í 1. mgr. 9. gr. kemur: kjararáðs.
b. Í stað orðsins „kjaranefnd“ í 2. mgr. 9. gr. kemur: kjararáð.
c. Í stað orðanna „Kjaradómi og kjaranefnd samkvæmt þeim lögum sem um þá úrskurðaraðila gilda“ í 39. gr. kemur: kjararáði, enda geti þau ekki ráðist með samningum á venjulegan hátt vegna eðlis starfanna eða samningsstöðu.
4. Eftirfarandi breytingar verða á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 1/1997:
a. Í stað orðanna „lögum nr. 120/1992, um Kjaradóm og kjaranefnd“ í 1. mgr. 3. gr., 6. mgr. 23. gr. og 2. mgr. 35. gr. kemur: lögum um kjararáð.
b. Í stað orðanna „Kjaradóm, kjaranefnd“ í 6. mgr. 23. gr. kemur: ákvarðanir kjararáðs.
5. Eftirfarandi breytingar verða á lögum um Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga, nr. 2/1997:
a. Í stað orðanna „Kjaradóm, kjaranefnd“ í 5. mgr. 7. gr. kemur: ákvarðanir kjararáðs.
b. Í stað orðanna „lögum nr. 120/1992, um Kjaradóm og kjaranefnd“ í 5. mgr. 7. gr. og 2. mgr. 21. gr. kemur: lögum um kjararáð.
6. Í stað orðanna „Kjaradóm og kjaranefnd, nr. 120/1992, með áorðnum breytingum“ í 4. mgr. 60. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, nr. 78/1997, kemur: kjararáð.
7. Í stað orðsins „Kjaranefnd“ í 2. mgr. 5. gr. laga um Neytendastofu og talsmann neytenda, nr. 62/2005, kemur: Kjararáð.
8. Í stað orðsins „Kjaradómi“ í 1. gr. laga um laun forseta Íslands, nr. 10/1990, kemur: kjararáði.
9. Í stað orðsins „Kjaradómur“ í 3. mgr. 2. gr. laga um umboðsmann barna, nr. 83/1994, kemur: Kjararáð.
10. 14. gr. laga um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað, nr. 88/1995, orðast svo:
Kjararáð ákveður þingfararkaup skv. 1. gr., sbr. lög um kjararáð.
11. Í stað orðsins „Kjaradómi“ í 2. gr. laga um Ríkisendurskoðun, nr. 86/1997, kemur: kjararáði.
12. Í stað orðsins „Kjaradómur“ í 4. mgr. 13. gr., 4. mgr. 23. gr. og 25. gr. laga um dómstóla, nr. 15/1998, kemur: Kjararáð.
13. Í stað orðsins „Kjaradómi“ í 2. mgr. 2. gr. laga um eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara, nr. 141/2003, kemur: kjararáði.
Strax eftir gildistöku þessara laga skal skipa kjararáð samkvæmt þeim. Skipun dómenda í Kjaradóm og nefndarmanna í kjaranefnd samkvæmt lögum nr. 120/1992 fellur niður við gildistöku þessara laga.
132. löggjafarþing 2005–2006.
Þskj. 1478 — 710. mál.
Frumvarp til laga
um kjararáð.
(Eftir 2. umr., 3. júní.)
1. gr.
2. gr.
Alþingi kýs þrjá ráðsmenn. Hæstiréttur skipar einn ráðsmann og fjármálaráðherra annan. Sömu aðilar velja vararáðsmenn. Kjararáðsmenn skulu skipaðir til fjögurra ára í senn.
Kjararáð kýs formann og varaformann úr hópi aðalmanna og setur sér sjálft starfsreglur.
3. gr.
4. gr.
Þriggja manna kjararáð skal skipað þannig að formaður velur með sér tvo úr hópi aðalmanna í ráðinu, og eftir atvikum varamanna. Þess skal gætt að ávallt sé í þessum þriggja manna hópi einn ráðsmaður skipaður af fjármálaráðherra og annar ráðsmaður skipaður af Alþingi.
5. gr.
6. gr.
Talsmönnum þeirra sem undir úrskurðarvald kjararáðs falla, fjármálaráðuneyti og öðrum ráðuneytum vegna starfsmanna og stofnana sem undir þau heyra skal gefinn kostur á að leggja fram skriflegar eða munnlegar greinargerðir vegna þeirra mála sem til úrlausnar eru. Ráðið getur og heimilað málsaðilum að reifa mál sitt fyrir ráðinu.
7. gr.
8. gr.
Kjararáð skal ætíð taka tillit til almennrar þróunar kjaramála á vinnumarkaði.
9. gr.
Kjararáð skal við úrlausn mála taka tillit til venjubundins vinnuframlags og starfsskyldna umfram dagvinnu. Það úrskurðar hvaða aukastörf tilheyri aðalstarfi og hver beri að launa sérstaklega.
Við ákvarðanir sínar getur ráðið tekið tillit til sérstakrar hæfni er nýtist í starfi og sérstaks álags og ábyrgðar er starfinu fylgir.
Kjararáð skal meta og taka tillit til kvaða sem störfunum fylgja, svo og hlunninda og réttinda sem tengjast embætti og launum, svo sem lífeyrisréttinda og ráðningarkjara.
10. gr.
Eigi sjaldnar en árlega skal kjararáð meta hvort tilefni sé til breytinga á starfskjörum sem það ákveður. Kjararáð getur þó ákveðið að stefnumarkandi ákvarðanir um innbyrðis launahlutföll og heildarstarfskjör á ákvörðunarsviði ráðsins séu teknar sjaldnar, til dæmis þriðja eða fjórða hvert ár.
Kjararáð skal birta ákvarðanir sínar og úrskurði og ástæður fyrir þeim opinberlega með skipulegum og aðgengilegum hætti.
Ákvörðunum og úrskurðum kjararáðs verður ekki skotið til annars stjórnvalds.
11. gr.
12. gr.
13. gr.
1. Í stað orðanna „Kjaranefnd eða Kjaradómi“ í 4. mgr. 2. gr. laga um ríkislögmann, nr. 51/1985, kemur: kjararáði.
2. Í stað orðanna „lög um Kjaradóm og kjaranefnd“ í 1. tölul. 2. mgr. 1. gr. og 1. tölul. 1. mgr. 19. gr. laga um kjarasamninga opinberra starfsmanna, nr. 94/1986, kemur: kjararáð.
3. Eftirfarandi breytingar verða á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996:
a. Í stað orðanna „Kjaradóms eða kjaranefndar“ í 1. mgr. 9. gr. kemur: kjararáðs.
b. Í stað orðsins „kjaranefnd“ í 2. mgr. 9. gr. kemur: kjararáð.
c. Í stað orðanna „Kjaradómi og kjaranefnd samkvæmt þeim lögum sem um þá úrskurðaraðila gilda“ í 39. gr. kemur: kjararáði, enda geti þau ekki ráðist með samningum á venjulegan hátt vegna eðlis starfanna eða samningsstöðu.
4. Eftirfarandi breytingar verða á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 1/1997:
a. Í stað orðanna „lögum nr. 120/1992, um Kjaradóm og kjaranefnd“ í 1. mgr. 3. gr., 6. mgr. 23. gr. og 2. mgr. 35. gr. kemur: lögum um kjararáð.
b. Í stað orðanna „Kjaradóm, kjaranefnd“ í 6. mgr. 23. gr. kemur: ákvarðanir kjararáðs.
5. Eftirfarandi breytingar verða á lögum um Lífeyrissjóð hjúkrunarfræðinga, nr. 2/1997:
a. Í stað orðanna „Kjaradóm, kjaranefnd“ í 5. mgr. 7. gr. kemur: ákvarðanir kjararáðs.
b. Í stað orðanna „lögum nr. 120/1992, um Kjaradóm og kjaranefnd“ í 5. mgr. 7. gr. og 2. mgr. 21. gr. kemur: lögum um kjararáð.
6. Í stað orðanna „Kjaradóm og kjaranefnd, nr. 120/1992, með áorðnum breytingum“ í 4. mgr. 60. gr. laga um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar, nr. 78/1997, kemur: kjararáð.
7. Í stað orðsins „Kjaranefnd“ í 2. mgr. 5. gr. laga um Neytendastofu og talsmann neytenda, nr. 62/2005, kemur: Kjararáð.
8. Í stað orðsins „Kjaradómi“ í 1. gr. laga um laun forseta Íslands, nr. 10/1990, kemur: kjararáði.
9. Í stað orðsins „Kjaradómur“ í 3. mgr. 2. gr. laga um umboðsmann barna, nr. 83/1994, kemur: Kjararáð.
10. 14. gr. laga um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað, nr. 88/1995, orðast svo:
Kjararáð ákveður þingfararkaup skv. 1. gr., sbr. lög um kjararáð.
11. Í stað orðsins „Kjaradómi“ í 2. gr. laga um Ríkisendurskoðun, nr. 86/1997, kemur: kjararáði.
12. Í stað orðsins „Kjaradómur“ í 4. mgr. 13. gr., 4. mgr. 23. gr. og 25. gr. laga um dómstóla, nr. 15/1998, kemur: Kjararáð.
13. Í stað orðsins „Kjaradómi“ í 2. mgr. 2. gr. laga um eftirlaun forseta Íslands, ráðherra, alþingismanna og hæstaréttardómara, nr. 141/2003, kemur: kjararáði.
Ákvæði til bráðabirgða.