Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 83. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 83  —  83. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um útvíkkun fríverslunarsamnings Færeyja og Íslands (Hoyvíkur-samningsins).

Flm.: Halldór Blöndal, Anna Kristín Gunnarsdóttir, Hjálmar Árnason,


Sigurrós Þorgrímsdóttir, Guðrún Ögmundsdóttir, Sigurjón Þórðarson.



    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina, í samráði við landsstjórnir Færeyja og Grænlands, að ræða möguleikann á því að löndin geri með sér samkomulag um að útvíkka fríverslunarsamninginn sem Færeyjar og Ísland hafa gert með sér (Hoyvíkur-samninginn).

Greinargerð.


    Tillaga þessi er sett fram á grundvelli ályktunar Vestnorræna ráðsins nr. 1/2006 sem samþykkt var á ársfundi ráðsins 21. ágúst 2006 í Þórshöfn í Færeyjum. Ályktun ráðsins hljóðar svo í íslenskri þýðingu:
    „Vestnorræna ráðið skorar á ríkisstjórnir Íslands, Færeyja og Grænlands að ræða möguleikann á því að löndin geri með sér samkomulag um að útvíkka fríverslunarsamninginn sem Færeyjar og Ísland hafa gert með sér (Hoyvíkur-samninginn).

Rökstuðningur.
    Löng hefð er fyrir nánu og víðtæku samstarfi vestnorrænna þjóða. Vestur-Norðurlönd ná yfir gríðarstórt land- og hafsvæði en þjóðirnar sem þau byggja eru fámennar. Fríverslunarsvæði eyjanna í Norður-Atlantshafi kæmi sér mjög vel fyrir viðkomandi lönd og þar með fyrir íbúa landanna, yfirvöld og atvinnulíf.
    Fríverslunarsamningurinn sem Færeyingar og Íslendingar hafa gert með sér tryggir ekki einungis frjálsa vöruverslun milli landanna, heldur veitir hann borgurum landanna næstum sömu réttindi í báðum löndunum á sviðum eins og heilbrigðisþjónustu, menntun, menningu og þátttöku í sveitarstjórnarkosningum. Markmiðið með samningnum er að fjarlægja eftir því sem kostur er þær landamærahindranir sem eru milli landanna.
    Það er einkar mikilvægt fyrir smáþjóðir eins og vestnorrænar þjóðir að standa saman og styðja hver við aðra, jafnframt því að hafa árangursríkt og gott samstarf. Fríverslunarsamningurinn getur átt þátt í því. Hann mun stuðla að því að hið nána og jákvæða samstarf sem þessi lönd hafa átt öldum saman haldi áfram og eflist. Jafnframt mun vestnorrænn fríverslunarsamningur að líkindum hafa í för með sér að Færeyingar og Grænlendingar verði ekki jafnháðir Dönum fjárhagslega og nú.
    Vestnorræna ráðið álítur afar brýnt að ríkisstjórnir landanna skoði samninginn vel og ræði um leið möguleikana á að Grænland geti átt aðild að honum. Útvíkkun fríverslunarsamningsins mun stækka talsvert heimamarkað landanna þriggja og hafa í för með sér enn fleiri viðskipta- og atvinnutækifæri fyrir borgara og fyrirtæki landanna.
    Fríverslunarsamningur sem nær til allra Vestur-Norðurlanda mun auk þess treysta enn betur þau vináttu- og nágrannabönd sem þegar eru fyrir hendi milli Færeyja, Grænlands og Íslands.
    Með Hoyvíkur-samningnum hefur í raun orðið til færeyskt-íslenskt efnahagssvæði. Vestnorræna ráðið telur afar brýnt að Grænland verði einnig aðili að Hoyvíkur-samningnum og að þannig verði til vestnorrænt efnahagssvæði.
    Í Hoyvíkur-samningnum er grein sem gerir ráð fyrir því að fleiri aðilar konungsveldisins Danmerkur geti fengið hlutdeild í samningnum. Vestnorræna ráðið hvetur ríkisstjórnir Vestur-Norðurlanda til að kanna möguleikann á því að notfæra sér þessa grein og hefja eins fljótt og hægt er viðræður um möguleikann á aðild Grænlands að samningnum.“