Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 135. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 135  —  135. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um vaxtarsamninga.

Frá Jóni Gunnarssyni.



     1.      Sér ráðherra eitthvað því til fyrirstöðu að gerður verði vaxtarsamningur við sveitarfélögin á Suðurnesjum, leiti þau eftir slíkum samningi?
     2.      Hvað má ætla að gerð slíks samnings taki langan tíma?
     3.      Hvar eru slíkir samningar í gildi nú og hver er áætlaður kostnaður ríkissjóðs við þá?