Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 141. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 141  —  141. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um kjarnorkuendurvinnslustöðina í Sellafield.

Frá Sigurjóni Þórðarsyni.



     1.      Hefur skýrsla breskra stjórnvalda, sem ráðherra óskaði eftir í bréfi til breskra yfirvalda þar sem lýst var yfir miklum áhyggjum af starfrækslu kjarnorkuendurvinnslustöðvarinnar í Sellafield og leka geislavirkra efna frá henni, borist íslenskum stjórnvöldum?
     2.      Hyggst ráðherra fylgja málinu frekar eftir, og þá hvernig?