Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 153. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 153  —  153. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs.

Frá Björgvini G. Sigurðssyni.



     1.      Hvað líður áformum um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs í ljósi þess að fengin er niðurstaða um þjóðlendur á svæðinu?
     2.      Er rekstur Jöklasetursins á Hornafirði sem miðstöðvar þjóðgarðsins til skoðunar í því samhengi?