Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 171. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 171  —  171. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um barna- og unglingageðdeildina.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Hvenær má búast við að bið eftir þjónustu barna- og unglingageðdeildarinnar verði komin í viðunandi horf? Hvenær er gert ráð fyrir að biðin verði komin niður í sex mánuði og hvenær undir þrjá mánuði?
     2.      Hvað þarf barn sem hefur fengið fötlunargreiningu á Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og þarf aðstoð barna- og unglingageðdeildarinnar eða innlögn vegna geðrænna vandamála að bíða lengi?
     3.      Hvernig er samstarfi Greiningarstöðvarinnar og barna- og unglingageðdeildarinnar háttað hvað varðar þjónustu við börn með einhverfueinkenni og geðræn vandamál?