Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 208. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 209  —  208. mál.




Fyrirspurn



til ráðherra Hagstofu Íslands um skuldir eftir aldri.

Frá Helga Hjörvar.



    Hverjar voru meðalskuldir landsmanna árið 2005 og hve stór hluti þeirra var vegna húsnæðisöflunar, skipt eftir aldri sem hér segir: 20 ára og yngri, 21–25 ára og áfram í fimm ára aldursbilum upp í 75 ára, og 76 ára og eldri?


Skriflegt svar óskast.