Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 303. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 320  —  303. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um byggðakvóta.

Frá Sigríði Ingvarsdóttur.



     1.      Stendur til að breyta reglum um byggðakvóta?
     2.      Hversu stór hluti byggðakvóta hefur verið veiddur af þeim sem honum hefur verið úthlutað til sl. þrjú ár?
     3.      Hversu stórum hluta byggðakvóta hefur verið landað í þeim byggðum sem honum hefur verið úthlutað til sl. þrjú ár?
     4.      Hversu stór hluti byggðakvóta hefur verið unninn í þeim byggðarlögum sem honum hefur verið úthlutað til sl. þrjú ár?


Skriflegt svar óskast.