Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 332. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 355  —  332. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um viðhald þjóðvega.

Frá Önnu Kristínu Gunnarsdóttur.



     1.      Hverjar hafa fjárveitingar til viðhalds þjóðvega verið árin 2003–2006?
     2.      Hver er áætluð fjárþörf til viðhalds þjóðvega næstu fimm árin?
     3.      Hve mikið er áætlað að viðhaldsþörf aukist vegna aukinnar þungaumferðar? Verður tekið tillit til hennar við áætlun viðhaldskostnaðar næstu fimm árin?