133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 363 — 340. mál.
Tillaga til þingsályktunar
um leiðir til að auka fullvinnslu á fiski hérlendis.
Flm.: Jón Bjarnason, Þuríður Backman.
Alþingi ályktar að fela sjávarútvegsráðherra að kanna orsakir mikils útflutnings á óunnum fiski á fiskmarkaði erlendis og mögulegar leiðir til að draga úr honum og auka í staðinn fullvinnslu innan lands. Ráðherra birti Alþingi niðurstöður sínar og tillögur eins fljótt og unnt er.
Greinargerð.
Tillaga þessi var lögð fram á 132. löggjafarþingi og er nú lögð fram lítið breytt en fylgiskjöl hafa verið uppfærð. Flestar umsagnir sem borist hafa um tillöguna hafa verið jákvæðar.
Útflutningur á óunnum fiski í gámum á fiskmarkaði erlendis jókst frá árinu 2002 úr rúmlega 21 þús. tonnum í rúm 47 þús. tonn árið 2005 og nam á fyrstu sex mánuðum þessa árs tæpum 27 þús. tonnum. Útflutningur þessi hefur verulega neikvæð áhrif á þjóðarbúið enda ljóst að unnt væri að auka útflutningsverðmæti þessa afla umtalsvert ef hann væri unninn hér á landi. Hráefnisskortur er viðvarandi vandamál í íslenskri fiskvinnslu, ekki síst hjá þeim fyrirtækjum sem reka fiskvinnslu án útgerðar og treysta því algjörlega á nægt framboð af fiski á íslenskum fiskmörkuðum. Þegar fiskur er fluttur óunninn á fiskmarkaði erlendis hafa íslenskir fiskverkendur enga möguleika til að bjóða í hann. Segja má að jafnræði íslenskra fiskkaupenda gagnvart erlendum fiskkaupendum, sem og samkeppnisstaða þeirra, sé skert að þessu leyti. Þegar útflutningur á óunnum fiski er orðinn eins mikill og raun ber vitni hefur hann mjög neikvæð áhrif á möguleika fiskvinnslufyrirtækja til viðgangs og vaxtar. Þetta er sérstaklega bagalegt í því ljósi að virðisauki í vinnslu sjávarafurða hefur verið með mesta móti hjá þeim fyrirtækjum sem stunda fiskvinnslu án útgerðar auk þess sem þessi fyrirtæki hafa í mörgum tilvikum verið í fararbroddi við að vinna nýja markaði fyrir hágæða íslenskan fisk í hæsta verðflokki.
Spyrja má hvað valdi því að óunninn fiskur sé fluttur úr landi í þessum mæli. Margir hafa haldið því fram að orsakanna megi leita í ólíkum vigtunarreglum og svokallaðri yfirvigt sem tíðkast á erlendum fiskmörkuðum. Að minnsta kosti virðist ekki eingöngu unnt að skýra hinn mikla útflutning með vísan til þess að hærra verð fáist fyrir fiskinn á erlendum mörkuðum enda hefur fiskverð verið mjög hátt á fiskmörkuðum hérlendis undanfarin ár. Í þingsályktunartillögu þessari er lagt til að ráðherra kanni hvaða undirliggjandi ástæður og orsakir séu fyrir þessum mikla útflutningi og komi með tillögur til úrbóta.
Í sjávarútvegsstefnu Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs er komið inn á þetta, m.a. með eftirfarandi hætti: „Auk þess sem hér er talið upp má nefna að skoða þarf sérstaklega aðstöðumun landvinnslu og sjóvinnslu með það fyrir augum að finna leiðir til að jafna þann mun, auka alhliða menntun á sviði sjósóknar og fiskvinnslu og stuðla að fullvinnslu alls sjávarfangs. Þá þarf að tryggja nýliðun í greininni og huga sérstaklega að þjálfun verðandi sjómanna. Einnig ber að setja reglur um að allur afli, sem ekki fer beint til vinnslu hjá sama aðila og veiðarnar stundar, skuli fara á markað til að auðvelda aðgang innlendrar fiskvinnslu að öllu því hráefni.“
Íslenskur fiskmarkaður hefur verið í mikilli framþróun á síðustu árum. Með upptöku fullkomins uppboðskerfis er nú unnt að stunda viðskipti á honum með hjálp netsins, hvar sem er í heiminum. Þannig standa kaupendur erlendis jafnfætis öðrum þegar uppboð fara fram. Er það álit flutningsmanna þessarar þingsályktunartillögu að eðlilegast væri að allur sá fiskur sem nú er fluttur á erlenda fiskmarkaði færi þess í stað á íslenskan fiskmarkað enda væru möguleikar erlendra fiskkaupenda til að bjóða í og kaupa íslenskan fisk og flytja hann út óunninn til vinnslu eða sölu ekki skertir. Hins vegar hefðu íslenskir fiskkaupendur þá alltaf möguleika á að bjóða í fiskinn í samkeppni við aðra.
Ótvírætt er að það þjónar hagsmunum Íslendinga að sem mest af þeim fiski sem veiddur er hér við land sé jafnframt unninn hér á landi. Alþingi og stjórnvöldum ber að haga lögum og reglum þannig að jafnræði og samkeppnisstaða íslenskra fiskverkenda sé trygg til að svo geti orðið.
Fylgiskjal I.
Hagstofa Íslands:
Verðmæti sjávarafla janúar–júní 2006.
(www.hagstofa.is.)
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 40 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins 2006 samanborið við 37,3 milljarða á sama tímabili 2005. Aflaverðmæti hefur aukist um 2,7 milljarða eða 7,3%. Aflaverðmæti júnímánaðar nam 6,3 milljörðum en í júní í fyrra var verðmæti afla 5,4 milljarðar.
Aflaverðmæti botnfisks var í lok júní orðið 30,1 milljarðar miðað við 25,5 á sama tíma árið 2005 og er því um 18% aukningu að ræða. Verðmæti þorskafla var 14,6 milljarðar og jókst um 3,1%. Aflaverðmæti ýsu nam 5,7 milljörðum sem er 20,2% aukning og ufsaaflinn jókst að verðmætum um 63,7%, var 1,9 milljarðar. Verðmæti flatfiskafla jókst um 4,7% milli ára, nam 3 milljörðum. Aflaverðmæti kolmunna í júnílok var orðið 3,1 milljarðar samanborið við tæpa 1,3 milljarða í fyrra.
Verðmæti afla sem seldur er í beinni sölu útgerða til vinnslu var 16,1 milljarðar króna sem er samdráttur um 4,2% milli ára, en verðmæti afla sem keyptur er á markaði til vinnslu innan lands jókst um 22,7%, var 6,4 milljarðar. Aflaverðmæti sjófrystingar var 12,4 milljarðar og jókst um 13,9% frá fyrra ári. Verðmæti afla sem fluttur er út óunninn nam 4,1 milljörðum sem er 15,6% aukning. 1
Verðmæti afla janúar–júní 2006 | |||||||
Millj. kr. | Breytingar frá | ||||||
Júní | Janúar–júní | fyrra ári í % | |||||
2005 | 2006 | 2005 | 2006 | Jan.–júní | |||
Verðmæti alls | 5.453,5 | 6.315,3 | 37.315,4 | 40.029,8 | 7,3 | ||
Botnfiskur | 2.826,8 | 4.225,4 | 25.542,1 | 30.146,8 | 18,0 | ||
Þorskur | 1.400,8 | 1.323,9 | 14.190,9 | 14.626,7 | 3,1 | ||
Ýsa | 389,4 | 757,6 | 4.700,7 | 5.650,8 | 20,2 | ||
Ufsi | 140,9 | 308,3 | 1.164,5 | 1.906,3 | 63,7 | ||
Karfi | 278,0 | 358,8 | 3.000,3 | 3.765,7 | 25,5 | ||
Úthafskarfi | 0,0 | 0,0 | 0,0 | 0,0 | - | ||
Annar botnfiskur | 617,7 | 1.476,8 | 2.485,6 | 4.197,3 | 68,9 | ||
Flatfiskur | 853,9 | 527,1 | 2.877,5 | 3.011,5 | 4,7 | ||
Uppsjávarafli | 1.512,6 | 1.323,4 | 8.007,4 | 6.171,3 | -22,9 | ||
Síld | 1.038,1 | 387,5 | 1.550,3 | 516,4 | -66,7 | ||
Loðna | 0,5 | 0,0 | 4.746,8 | 2.155,3 | -54,6 | ||
Kolmunni | 474,0 | 935,9 | 1.260,9 | 3.142,1 | 149,2 | ||
Annar uppsjávarafli | 0,0 | 0,0 | 449,4 | 357,5 | -20,5 | ||
Skel- og krabbadýraafli | 260,0 | 239,5 | 886,5 | 697,7 | -21,3 | ||
Rækja | 108,8 | 55,6 | 395,5 | 257,3 | -34,9 | ||
Annar skel- og krabbadýraafli | 151,2 | 183,9 | 491,0 | 440,4 | -10,3 | ||
Annar afli | 0,2 | 0,0 | 2,0 | 2,5 | 24,3 | ||
Verðmæti afla eftir tegund löndunar janúar–júní 2006 | |||||||
Millj. kr. | Breytingar frá | ||||||
Júní | Janúar–júní | fyrra ári í % | |||||
2005 | 2006 | 2005 | 2006 | Jan.–júní | |||
Verðmæti alls | 5.453,5 | 6.315,3 | 37.315,4 | 40.029,8 | 7,3 | ||
Til vinnslu innanlands | 2.095,4 | 2.419,0 | 16.788,5 | 16.078,5 | -4,2 | ||
Í gáma til útflutnings | 494,0 | 665,1 | 3.560,8 | 4.114,9 | 15,6 | ||
Landað erlendis í bræðslu | 2,0 | 54,7 | 45,8 | 121,2 | 164,7 | ||
Sjófryst | 2.127,0 | 2.085,7 | 10.907,7 | 12.426,4 | 13,9 | ||
Á markað til vinnslu innanlands | 631,3 | 980,7 | 5.232,8 | 6.420,1 | 22,7 | ||
Á markað, í gáma til útflutnings | 91,2 | 88,3 | 576,7 | 693,4 | 20,2 | ||
Sjófryst til endurvinnslu innanlands | 0,0 | 0,0 | 0,0 | 0,0 | - | ||
Selt úr skipi erlendis | 0,0 | 0,0 | 54,6 | 25,6 | -53,2 | ||
Fiskeldi | 2,9 | 0,2 | 20,8 | 8,4 | -59,7 | ||
Aðrar löndunartegundir | 9,9 | 21,6 | 127,8 | 141,4 | 10,7 | ||
Verðmæti afla eftir staðsetningu verkunarstaðar janúar–júní 2006 | |||||||
Millj. kr. | Breytingar frá | ||||||
Júní | Janúar–júní | fyrra ári í % | |||||
2005 | 2006 | 2005 | 2006 | Jan.–júní | |||
Verðmæti alls | 5.453,5 | 6.315,3 | 37.315,4 | 40.029,8 | 7,3 | ||
Höfuðborgarsvæði | 876,7 | 1.353,2 | 6.255,7 | 7.873,2 | 25,9 | ||
Suðurnes | 698,0 | 922,6 | 6.723,3 | 7.020,1 | 4,4 | ||
Vesturland | 178,1 | 145,9 | 1.490,2 | 1.847,4 | 24,0 | ||
Vestfirðir | 290,3 | 291,2 | 1.988,2 | 2.125,2 | 6,9 | ||
Norðurland vestra | 431,4 | 430,6 | 2.610,5 | 2.939,8 | 12,6 | ||
Norðurland eystra | 1.184,9 | 859,6 | 5.811,1 | 4.903,7 | -15,6 | ||
Austurland | 715,6 | 1.072,7 | 4.697,6 | 5.035,4 | 7,2 | ||
Suðurland | 616,9 | 532,1 | 4.192,0 | 4.136,5 | -1,3 | ||
Útlönd | 461,8 | 707,4 | 3.546,7 | 4.148,5 | 17,0 |
Fylgiskjal II.
Hagstofa Íslands:
Afli af Íslandsmiðum eftir tegund löndunar og fisktegundum.
(Heimild: Vigtarskýrslur.)
Í gáma til útflutnings |
||||||
Tonn | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 20061 |
Heildarafli | 28.943 | 21.114 | 27.832 | 43.430 | 47.594 | 26.765 |
Botnfiskafli | 26.884 | 19.084 | 24.919 | 39.900 | 44.383 | 24.561 |
Þorskur | 8.239 | 3.485 | 4.944 | 7.498 | 6.998 | 4.675 |
Ýsa | 6.722 | 3.447 | 8.208 | 16.410 | 17.951 | 10.194 |
Ufsi | 270 | 117 | 219 | 1.399 | 885 | 518 |
Karfi | 6.561 | 9.031 | 8.085 | 9.532 | 12.564 | 7.064 |
Úthafskarfi | 1.751 | 53 | 417 | 83 | 173 | 0 |
Steinbítur | 1.763 | 1.355 | 1.521 | 2.649 | 3.254 | 1.234 |
Hlýri | 92 | 32 | 63 | 309 | 325 | 48 |
Langa | 138 | 142 | 176 | 268 | 357 | 177 |
Blálanga | 158 | 217 | 125 | 284 | 358 | 119 |
Keila | 28 | 17 | 26 | 33 | 65 | 11 |
Langhali | 0 | 0 | 1 | 0 | 0 | 0 |
Tindaskata | 0 | 1 | 1 | 0 | 0 | 0 |
Skötuselur | 266 | 173 | 474 | 719 | 956 | 238 |
Skata | 3 | 3 | 2 | 12 | 25 | 12 |
Lýsa | 735 | 732 | 442 | 526 | 384 | 226 |
Gulllax | 0 | 0 | 0 | 0 | 1 | 0 |
Háfur | 121 | 253 | 192 | 132 | 58 | 15 |
Hákarl | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Annar botnfiskur | 38 | 26 | 22 | 45 | 30 | 28 |
Flatfiskafli | 2.046 | 2.030 | 2.912 | 3.530 | 3.211 | 2.204 |
Lúða | 113 | 108 | 120 | 104 | 113 | 54 |
Grálúða | 74 | 283 | 1.121 | 1.176 | 716 | 367 |
Skarkoli | 1.290 | 1.224 | 1.313 | 1.536 | 1.407 | 1.222 |
Þykkvalúra | 497 | 324 | 319 | 678 | 930 | 541 |
Langlúra | 9 | 7 | 4 | 18 | 26 | 10 |
Stórkjafta | 18 | 5 | 9 | 12 | 15 | 7 |
Sandkoli | 42 | 78 | 23 | 5 | 2 | 1 |
Skrápflúra | 1 | 0 | 2 | 1 | 2 | 0 |
Annar flatfiskur | 1 | 0 | 0 | 1 | 0 | 0 |
Uppsjávarafli | 13 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Skel- og krabbadýraafli | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Annar afli | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
1Tölur fyrir árið 2006 eru fyrir sex fyrstu mánuði ársins. |
Fylgiskjal III.
Hagstofa Íslands:
Verðmæti afla af Ísandsmiðum eftir tegund löndunar og fisktegundum.
(Heimild: Vigtarskýrslur.)
Í gáma til útflutnings |
||||||
Þús. kr. | 2001 | 2002 | 2003 | 2004 | 2005 | 20061 |
Heildarafli | 5.084.623 | 3.608.606 | 4.127.199 | 6.378.577 | 6.611.759 | 4.114.863 |
Botnfiskafli | 4.535.516 | 3.070.503 | 3.409.401 | 5.429.284 | 5.843.990 | 3.586.738 |
Þorskur | 1.654.686 | 680.446 | 929.170 | 1.395.707 | 1.248.573 | 940.713 |
Ýsa | 1.206.168 | 566.385 | 967.832 | 2.024.559 | 2.200.103 | 1.419.644 |
Ufsi | 21.042 | 8.755 | 13.399 | 89.460 | 69.417 | 36.407 |
Karfi | 991.865 | 1.385.263 | 1.011.941 | 1.251.233 | 1.511.086 | 916.464 |
Úthafskarfi | 186.257 | 6.879 | 44.184 | 9.242 | 17.290 | 0 |
Steinbítur | 245.585 | 221.732 | 215.532 | 337.167 | 403.955 | 141.323 |
Hlýri | 16.767 | 5.621 | 11.152 | 46.339 | 40.446 | 6.176 |
Langa | 14.422 | 15.428 | 14.704 | 20.653 | 25.937 | 16.726 |
Blálanga | 17.804 | 21.274 | 11.539 | 26.539 | 31.258 | 11.269 |
Keila | 2.081 | 1.241 | 1.505 | 2.128 | 3.227 | 743 |
Langhali | 0 | 2 | 88 | 0 | 0 | 0 |
Tindaskata | 0 | 9 | 57 | 0 | 0 | 0 |
Skötuselur | 92.126 | 55.446 | 126.219 | 164.014 | 249.312 | 70.863 |
Skata | 415 | 246 | 244 | 1.857 | 4.130 | 2.093 |
Lýsa | 65.978 | 53.704 | 30.606 | 36.790 | 28.643 | 18.734 |
Gulllax | 0 | 0 | 0 | 0 | 91 | 0 |
Háfur | 16.311 | 44.993 | 29.399 | 17.872 | 7.351 | 2.567 |
Hákarl | 1 | 8 | 0 | 0 | 4 | 0 |
Annar botnfiskur | 4.010 | 3.073 | 1.828 | 5.726 | 3.168 | 3.016 |
Flatfiskafli | 547.686 | 538.103 | 717.798 | 949.293 | 767.758 | 528.124 |
Lúða | 65.811 | 58.084 | 58.938 | 59.446 | 57.626 | 31.157 |
Grálúða | 16.916 | 69.596 | 275.149 | 338.431 | 193.967 | 109.919 |
Skarkoli | 306.295 | 296.404 | 276.203 | 361.285 | 295.421 | 247.700 |
Þykkvalúra | 154.285 | 107.075 | 104.835 | 186.290 | 216.005 | 137.343 |
Langlúra | 465 | 543 | 436 | 2.023 | 2.727 | 1.264 |
Stórkjafta | 1.412 | 677 | 701 | 1.300 | 1.402 | 583 |
Sandkoli | 2.276 | 5.698 | 1.390 | 255 | 78 | 114 |
Skrápflúra | 30 | 0 | 105 | 73 | 475 | 8 |
Annar flatfiskur | 194 | 27 | 41 | 191 | 58 | 37 |
Uppsjávarafli | 1.421 | 0 | 0 | 0 | 11 | 0 |
Skel- og krabbadýraafli | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Annar afli | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
1Tölur fyrir árið 2006 eru fyrir sex fyrstu mánuði ársins. |
Fylgiskjal IV.
Útflutningur á óunnum fiski hefur aukist mikið.
(Morgunblaðið 11. október, 2005.)
Mun meira var flutt utan af ísuðum fiski í gámum og í siglingum á síðasta fiskveiðiári en fiskveiðiárið á undan. Það skýrist að hluta af mikilli aukningu á ýsu í kjölfar mun meiri ýsuafla á síðustu tveimur árum. Útflutningur á ísuðum karfa vegur svipað á milli ára og sama gildir um þorskinn og ufsann. Að meðtöldum öðrum botnfisktegundum og flatfiski má reikna með að heildarmagn upp úr sjó í gáma og siglingar hafi verið um 55 þúsund tonn á síðasta fiskveiðiári. Þetta kom fram í skýrslu Arnars Sigurmundsson, formanns Samtaka fiskvinnslustöðva, á aðalfundi samtakanna.
Ef fimm ára tímabil er skoðað kemur í ljós að mestu sveiflurnar hafa orðið í útflutningi á þorski og ýsu. Á fyrsta ári þessa fimm ára tímabils nam þorskurinn rúmlega 8 þúsund tonnum, en fór lægst í rúm 5 þúsund tonn, en á nýliðnu fiskveiðiári í tæp 10 þúsund tonn. Ýsan hefur sveiflast nokkuð eftir aflabrögðum og fór lægst í rúm 4 þúsund tonn, en var rúm 19 þúsund tonn á síðasta fiskveiðiári. Mjög takmarkað hefur verið flutt út af ísuðum ufsa á síðustu fimm árum. Fór magnið niður í 250 tonn, en hækkaði upp í rúm 1.700 tonn upp úr sjó á síðasta fiskveiðiári. Árlegur útflutningur á ísuðum karfa verið á bilinu 8 þúsund upp í tæp 12 þúsund tonn í fyrra.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.
Breytt ráðstöfun botnfiskaflans.
Ráðstöfun botnfiskaflans hefur breyst nokkuð á síðustu 10 árum. „Við upphaf tímabilsins var fjölgun vinnsluskipa komin fram að miklu leyti og tekið var að draga úr hlutdeild gámafisks. Veiðar utan lögsögunnar voru umtalsverðar á fyrstu 2–3 árum tímabilsins og sama gilti um innflutning á Rússaþorski. En hlutirnir breytast hratt. Mikill samdráttur varð í botnfiskveiðum utan lögsögunnar og vinnsla á rússafiski innanlands minnkaði mjög mikið. Heildarbotnfiskaflinn hefur aftur á móti lítið breyst á milli ára og verið um og yfir 500 þúsund tonn upp úr sjó flest árin.
Ráðstöfun botnfiskafla til vinnslu innanlands var komin niður í tæp 60% fyrir áratug og hefur haldist mjög nálægt því hlutfalli síðan. Fyrstu sjö mánuði þessa árs er áætlað að 58% af botnfiskaflanum hafi farið til vinnslu hér á landi og ferskfiskvinnsla í flug innifalin í þeim tölum. Er þetta 4 prósentustigum lægra hlutfall en á síðasta ári. Nær alveg hefur tekið fyrir innflutning á Rússaþorski til vinnslu innanlands og var hann aðeins tæplega 350 tonn sem er meira en helmingi minna en á sama tíma í fyrra.
Hlutdeild vinnsluskipa í botnfiskaflanum hefur verið að meðaltali um og yfir 30% á síðustu árum. Fyrstu sjö mánuði þessa árs er hlutfall vinnsluskipa 26% og þessu til viðbótar kemur úthafsafli innlendra vinnsluskipa sem vegur um 2% fyrstu sjö mánuði ársins. Eru þetta svipaðar hlutfallstölur og á sama tímabili í fyrra.
Hlutfall gámafisks og siglinga fiskiskipa á erlendan markað náði hámarki, tæpum 20% fyrir einum og hálfum áratug. Síðan tók hlutfallið að lækka og varð nokkuð stöðugt eða 6–7% af heildarbotnfiskaflanum. Fyrstu sjö mánuði þessa árs er hlutfall gámafisks áætlað um 13% af botnfiskaflanum, en allt árið í fyrra nam gámafiskur 12%. Aukinn ýsuafli á verulegan þátt í aukningu gámafisks á síðustu tveimur árum.
En fiskvinnslan er ekki eingöngu háð hráefni af innlendum fiskiskipum. Ef við skoðum hlutfallstölur frá fiskveiðiárinu sem lauk 31. ágúst sl. kemur í ljós að 79% af hráefni til rækjuvinnslu er innflutt á móti 60% árið áður og 12% af uppsjávarfiski eru af erlendum veiðiskipum, sem er nær sama hlutfall og árið áður,“ sagði Arnar Sigurmundsson á aðalfundi SF.
- Neðanmálsgrein: 1
- 1 Þessar upplýsingar byggjast á vigtar- og ráðstöfunarskýrslum sem Fiskistofa safnar frá fiskkaupendum. Fyrir árið 2006 er stuðst við bráðabirgðatölur en endanlegar tölur liggja að baki talna fyrir árið 2005. Athuganir benda til þess að endanlegar tölur séu að hámarki 1–2% hærri en bráðabirgðatölur þegar á heildina er litið en fyrir örfáar fisktegundir getur munurinn þó orðið meiri.