Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 353. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 383  —  353. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um slys og umferðaróhöpp á Vestfjörðum.

Frá Önnu Kristínu Gunnarsdóttur.



     1.      Hvað hafa á sl. tíu árum orðið mörg umferðaróhöpp annars vegar og slys hins vegar sem rekja má til ástands vegar og/eða veðurfars á leiðunum
                  a.      Bolungavík – Ísafjörður, og
                  b.      Ísafjörður – Súðavík?
     2.      Hvað er talið að tjón á farartækjum og vinnuvélum nemi á sama tímabili hárri upphæð á núvirði?