Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 355. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 385  —  355. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um námslán fyrir skólagjöldum í íslenskum háskólum og endurgreiðslur námslána.

Frá Katrínu Júlíusdóttur.



     1.      Hve há eru árleg útlán Lánasjóðs íslenskra námsmanna vegna skólagjalda í íslenskum háskólum og hvert er hlutfall þeirra af heildarlánum til nemenda við hérlenda háskóla sem taka skólagjöld?
     2.      Hver er kostnaður sjóðsins við þessi lán og hversu mikið er talið að muni verða endurgreitt samkvæmt núgildandi reglum sjóðsins?
     3.      Hver er talin verða árleg útgjaldaaukning sjóðsins ef tekin verða upp skólagjöld í háskólum sem hið opinbera rekur, miðað við nemendafjöldann námsárið 2005–2006, ef skólagjöldin verða:
                  a.      sambærileg við skólagjöld í íslenskum háskólum sem taka skólagjöld,
                  b.      300 þús. kr.,
                  c.      500 þús. kr.,
                  d.      700 þús. kr.,
                  e.      1 millj. kr.?
     4.      Hversu mikill yrði kostnaður sjóðsins af slíkri útgjaldaaukningu, hversu mikið er talið mundu verða endurgreitt og á hve löngum tíma?
     5.      Hversu hátt hlutfall af öllum veittum lánum er talið að sjóðurinn fái endurgreitt samkvæmt núgildandi reglum sjóðsins?


Skriflegt svar óskast.