Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 369. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 403  —  369. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um þjónustu Símans á sunnanverðum Vestfjörðum.

Frá Önnu Kristínu Gunnarsdóttur.



     1.      Telur ráðherra að öryggi og þjónusta við íbúa á sunnanverðum Vestfjörðum verði tryggt á fullnægjandi hátt ef verður af fyrirætlun Símans um að leggja niður starfsemi á Patreksfirði?
     2.      Hvernig hyggst ráðherra tryggja eftirlits- og viðhaldsþjónustu við endurvarpsstöðvar útvarps á sunnanverðum Vestfjörðum?