Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 423. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 498  —  423. mál.




Fyrirspurn


til heilbrigðisráðherra um fjölda þeirra sem sótt hafa meðferð við áfengis- og vímuefnafíkn.

Frá Björgvini G. Sigurðssyni.


    Hvað hafa margir Íslendingar farið í meðferð við áfengis- og vímuefnafíkn síðustu 20 árin? Svarið óskast sundurliðað annars vegar eftir árum og hins vegar eftir því hvort meðferðin var vegna ofneyslu áfengis eða vímuefna.


Skriflegt svar óskast.