Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 424. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 499  —  424. mál.




Fyrirspurn


til dómsmálaráðherra um magn og verðmæti ólöglegra fíkniefna.

Frá Björgvini G. Sigurðssyni.


     1.      Hvert hefur verið áætlað götuverðmæti ólöglegra fíkniefna á Íslandi síðustu tuttugu árin, sundurliðað eftir árum og efnum sem talið er að hafi verið á markaði hverju sinni?
     2.      Hvert er áætlað magn slíkra efna í landinu á sama tíma, sundurliðað eftir árum og efnum?
     3.      Hvað var lagt hald á mikið af ólöglegum fíkniefnum á þessum árum, sundurliðað eftir árum og efnum?


Skriflegt svar óskast.