Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 190. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 525  —  190. mál.




Nefndarálit


um frv. til l. um breyt. á l. nr. 125/1999, um málefni aldraðra, með síðari breytingum.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Vilborgu Þ. Hauksdóttur frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti og Ólaf Ólafsson, Einar Árnason, Helga K. Hjálmarsson, Borgþór St. Kjærnested og Trausta Björnsson frá Landssambandi eldri borgara og Margréti Margeirsdóttur, Stefaníu Björnsdóttur og Sigurð Hallgrímsson frá Félagi eldri borgara.
    Með frumvarpinu er lagt til að gjald í Framkvæmdasjóð aldraðra verði hækkað um 3,94%, 239 kr. á hvern gjaldanda, úr 6.075 kr. í 6.314 kr. Í athugasemdum sem fylgja frumvarpinu kemur fram að hækkunin sé í samræmi við verðlagsbreytingar á tímabilinu desember 2004 til desember 2005.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt.
    Kristján L. Möller og Þuríður Backman voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.
    Ásta R. Jóhannesdóttir, Guðrún Ögmundsdóttir og Pétur H. Blöndal skrifa undir álitið með fyrirvara.
    

Alþingi, 4. des. 2006.


Guðjón Ólafur Jónsson,

form., frsm.

Ásta Möller.

Ásta R. Jóhannesdóttir.

með fyrirvara.

Guðrún Ögmundsdóttir,


með fyrirvara.


Pétur H. Blöndal,


með fyrirvara.


Gunnar Örlygsson.



Sæunn Stefánsdóttir.