Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 1. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 527  —  1. mál.




Breytingartillögur


við frv. til fjárlaga fyrir árið 2007.

Frá fjármálaráðherra.


Skv. frv.
m.kr.

Breyting
m.kr.

Tillaga
m.kr.

Breytingar á sundurliðun 2:
    1.     Við 00-201 Alþingi
         1.02 Sérfræðileg aðstoð fyrir þingflokka          55,0     10,0     65,0
    2.     Við 01-190 Ýmis verkefni
         a.    1.91 Til stjórnmálaflokka með hliðsjón af nýrri
              kjördæmaskipan og breyttum aðstæðum þingmanna
              af þeim sökum          40,0     10,0     50,0
         b.    1.92 Til starfsemi stjórnmálaflokka          130,0     -130,0     0,0
    3.     Við 09-999 Ýmislegt
         1.18 Styrkur til stjórnmálaflokka í samræmi við
              heimild í 6. gr.          200,0     110,0     310,0
    

Greinargerð.

    Við 2. umræðu um frumvarpið var samþykkt 130 m.kr. fjárveiting á nýjan lið, 01-190- 1.92, til að styrkja starfsemi stjórnmálaflokka. Hér er lagt til að fjárveitingin færist af þeim lið á aðra liði sem þegar eru í frumvarpinu og hefur tillagan því engin útgjöld í för með sér.