Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 682, 133. löggjafarþing 376. mál: ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf. (tímasetningar á tilteknum ráðstöfunum).
Lög nr. 156 15. desember 2006.
Verja skal til kaupa eða leigu á fjölnota varðskipi og til kaupa eða leigu á eftirlitsflugvél fyrir Landhelgisgæslu Íslands 500 millj. kr. árið 2006, 500 millj. kr. árið 2007 og 2.000 millj. kr. árið 2008.
Þingskjal 682, 133. löggjafarþing 376. mál: ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf. (tímasetningar á tilteknum ráðstöfunum).
Lög nr. 156 15. desember 2006.
Lög um breyting á lögum nr. 133/2005, um ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:- Í stað orðanna „1.500 millj. kr. árið 2007, 2.500 millj. kr. árið 2008“ í a-lið 2. mgr. kemur: 100 millj. kr. árið 2007, 3.900 millj. kr. árið 2008.
- C-liður 2. mgr. orðast svo: Gerð gatnamóta við Nesbraut: 600 millj. kr.
- Verja skal til þessa verkefnis 400 millj. kr. árið 2007 og 200 millj. kr. árið 2008.
- Í stað orðanna „400 millj. kr. árið 2007 og 400 millj. kr. árið 2008“ í e-lið 2. mgr. kemur: 200 millj. kr. árið 2007 og 600 millj. kr. árið 2008.
- Í stað orðanna „300 millj. kr. árið 2007, 400 millj. kr. árið 2008“ í g-lið 2. mgr. kemur: 700 millj. kr. árið 2008.
2. gr.
4. gr. laganna verður svohljóðandi:Verja skal til kaupa eða leigu á fjölnota varðskipi og til kaupa eða leigu á eftirlitsflugvél fyrir Landhelgisgæslu Íslands 500 millj. kr. árið 2006, 500 millj. kr. árið 2007 og 2.000 millj. kr. árið 2008.
3. gr.
Í stað ártalsins „2007“ í 2. mgr. 6. gr. laganna kemur: 2006.4. gr.
Í stað orðanna „300 millj. kr. til þessa verkefnis árið 2007, 300 millj. kr. árið 2008“ í 2. mgr. 8. gr. laganna kemur: 600 millj. kr. til þessa verkefnis árið 2008.5. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 9. desember 2006.