Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 326. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 723  —  326. mál.




Svar



umhverfisráðherra við fyrirspurn Björns Inga Hrafnssonar um almenningssamgöngur.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Telur ráðherra koma til greina að ríkið taki þátt í kostnaði sveitarfélaga við rekstur almenningssamgangna og þá hvernig?

    Starfræksla almenningssamgangna er ekki lögbundið hlutverk sveitarfélaganna. Engu að síður veita flest fjölmennustu sveitarfélög landsins slíka þjónustu ýmist í samstarfi, líkt og á höfuðborgarsvæðinu, eða á eigin spýtur, rétt eins og á Ísafirði, Akureyri og víðar. Almenningssamgöngur eru þjóðfélagslega hagkvæmar auk þess sem þær stuðla að margvíslegum umhverfislegum ávinningi, svo sem minni losun gróðurhúsalofttegunda, minni staðbundinni loft- og svifryksmengun og hljóðvist verður viðráðanlegri aukist almenningssamgöngur á kostnað notkunar einkabílsins.
    Íslensk stjórnvöld hafa sett sér það markmið í umhverfismálum að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í samræmi við stefnumörkun ríkisstjórnarinnar frá 2002 um ráðstafanir til að standa við skuldbindingar loftslagssamningsins og Kyoto-bókunarinnar. Þar var eitt markmiðið að dregið yrði úr útstreymi gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum með eflingu almenningssamgangna.
    Mikilvægt er að ríki og sveitarfélög fari í sameiningu yfir þennan málaflokk með það að markmiði að bæta rekstrarskilyrði almenningssamgangna sem mörg sveitarfélög líta á sem mikilvægan hlekk í samfélagsþjónustu sinni. Umhverfisráðuneytið hefur nú þegar átt fund með fulltrúum Strætó bs. um þessi mál að þeirra ósk. Verkaskipting ríkis og sveitarfélaga er stöðugt til skoðunar og mun umhverfisráðuneytið beita sér fyrir því að málefni almenningssamgangna verði tekin þar upp.