Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 489. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 741  —  489. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um Suðurlandsveg.

Frá Björgvini G. Sigurðssyni.



     1.      Hyggst ráðherra leggja til að Suðurlandsvegur frá Reykjavík til Selfoss verði tvöfaldaður á næstu fjórum árum, sbr. yfirlýsingu hans um málið?
     2.      Ef svo er, verður útboð á hönnun þrígreiningar vegarins afturkallað?
     3.      Hyggist ráðherra tvöfalda veginn, hvort verður það gert með því að:
              a.      bæta fjórðu akreininni við þrígreiningu og skilja með vegriði á milli akgreina, eða
              b.      aðskilja akreinar með bili/eyju?
     4.      Hvenær áætlar ráðherra að tvöföldun Suðurlandsvegar frá Reykjavík til Selfoss verði að fullu lokið?