Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 490. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 742  —  490. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um lesblindu.

Frá Björgvini G. Sigurðssyni.



     1.      Hver er fjöldi og hlutfall lesblindra barna í grunnskólum landsins, sundurliðað eftir árgangi?
     2.      Stendur til að endurskoða stuðning við lesblind börn í grunnskólum og ef svo er, hvernig?
     3.      Stendur til að endurskoða greiningarferli á lesblindu í skólum og ef svo er, hvernig?