Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 495. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 747  —  495. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um leiðbeiningarreglur varðandi uppsagnir starfsmanna.

Frá Valdimar L. Friðrikssyni.



    Hvað líður tillögum að leiðbeiningarreglum varðandi uppsagnir starfsmanna í anda samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 158 sem ráðherra fól Rannsóknarsetri í vinnurétti og jafnréttismálum við Viðskiptaháskólann að Bifröst að gera með bréfi dags. 5. maí 2006 og berast áttu ráðuneytinu fyrir lok þess árs, sbr. svar ráðherra við fyrirspurn fyrr á þessu þingi (143. mál)?


Skriflegt svar óskast.