Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 506. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 763  —  506. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um ný störf á vegum ríkisins á landsbyggðinni.

Frá Hlyni Hallssyni.



     1.      Hver er stefna ríkisstjórnarinnar um fjölgun starfa á vegum ríkisins á landsbyggðinni annars vegar og höfuðborgarsvæðinu hins vegar?
     2.      Hver hefur verið þróunin sl. 10 ár hvað varðar staðsetningu nýrra starfa á vegum ríkisins, sundurliðað eftir árum?


Skriflegt svar óskast.