Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 536. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 819  —  536. mál.




Svar



dómsmálaráðherra við fyrirspurn Rannveigar Guðmundsdóttur um réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga.

     1.      Hve margir hafa óskað eftir réttaraðstoð samkvæmt lögum um réttaraðstoð við einstaklinga sem leita nauðasamninga, nr. 65/1996, frá því að lögin voru sett, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hversu oft hefur slík réttaraðstoð verið veitt á framangreindu tímabili, sundurliðað eftir árum?


Ár Óskað eftir réttaraðstoð Réttaraðstoð veitt
2006 14 7
2005 15 6
2004 17 7
2003 24 17
2002 17 10
2001 23 13
2000 20 12
1999 11 6
1998 21 10
1997 27 23
1996 20 7
Alls 209 118