Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 564. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 839  —  564. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um starfsemi Samkeppniseftirlitsins.

Frá Önnu Kristínu Gunnarsdóttur.



     1.      Hvað eru mörg óafgreidd mál hjá Samkeppniseftirlitinu frá 2005–2007 og eldri?
     2.      Hvað telur ráðherra vera ásættanlegan afgreiðslutíma kvartana sem berast Samkeppniseftirlitinu?
     3.      Telur ráðherra líkur á að þjónustuaðilar og neytendur hafi borið skaða af drætti á afgreiðslu mála hjá stofnuninni?