Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 565. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 840  —  565. mál.




Fyrirspurn



til forsætisráðherra um stuðning Íslendinga við hernaðaraðgerðir Bandaríkjamanna.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.


     1.      Hafa Bandaríkjamenn leitað hófanna hjá ríkisstjórn Íslands um svipaðan stuðning við hugsanlegan hernað gegn Íran og aflað var í aðdraganda innrásarinnar í Írak?
     2.      Ef svo er eða verði það gert, hver er þá afstaða ríkisstjórnarinnar?
     3.      Hefur ríkisstjórnin tekið til skoðunar að afturkalla loforð gefin Bandaríkjamönnum í aðdraganda innrásar í Írak um atbeina í formi afnota af íslenskum flugvöllum og lofthelgi?