Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 590. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 875  —  590. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um áætlun um hreinsun stranda og hafnarsvæða af skipsflökum í óreiðu.

Frá Guðmundi Hallvarðssyni.



     1.      Hvað líður áætlun um hreinsun stranda og hafnarsvæða af skipsflökum og skipum í óreiðu sem gera skal samkvæmt ákvæði til bráðabirgða I í lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, nr. 33/2004?
     2.      Hve mörg skip í höfnum má ætla að um sé að ræða og hversu mörg skipsflök við strendur landsins?
     3.      Mun tímaáætlun í ákvæði til bráðabirgða I í lögum nr. 33/2004 standast en samkvæmt henni skal hreinsun lokið fyrir árslok 2008?


Skriflegt svar óskast.