Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 593. máls.
133. löggjafarþing 2006–2007.
Þskj. 882  —  593. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um Tæknisafn Íslands.

Frá Björgvini G. Sigurðssyni.



     1.      Með hvaða hætti hefur menntamálaráðuneytið komið að undirbúningsstarfi vegna Tæknisafns Íslands og hvernig verður aðkomunni háttað meðan undirbúningur stendur yfir?
     2.      Hver eru viðbrögð ráðherra við þeirri niðurstöðu áfangaskýrslu undirbúningsnefndar um Tæknisafn Íslands að brýn þörf sé fyrir tæknisafn og hvað hyggst ráðherra gera til úrbóta?