Þskj. 1004 — 662. mál.
Frumvarp til laga
um mannvirki.
(Lagt fyrir Alþingi á 133. löggjafarþingi 2006–2007.)
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Markmið.
a. Að vernda líf, heilsu fólks, umhverfi og eignir með því að tryggja faglegan undirbúning mannvirkjagerðar og virkt eftirlit með því að kröfum um öryggi mannvirkja og heilnæmi sé fullnægt.
b. Að stuðla að endingu og hagkvæmni mannvirkja m.a. með því að tryggja að þau séu hönnuð þannig og byggð að þau henti íslenskum aðstæðum.
c. Að stuðla að vernd umhverfis með því að hafa sjálfbæra þróun að leiðarljósi við hönnun og gerð mannvirkja.
d. Að stuðla að tæknilegum framförum og nýjungum í byggingariðnaði.
e. Að stuðla að aðgengi fyrir alla.
f. Að stuðla að góðri orkunýtingu við rekstur bygginga.
2. gr.
Gildissvið.
Lög þessi gilda ekki um hafnir, varnargarða eða fyrirhleðslur, vegi eða önnur samgöngumannvirki, svo sem flugvelli, jarðgöng, vegskála eða brýr, aðrar en göngubrýr í þéttbýli.
3. gr.
Skilgreiningar.
2. Brunavarnir: Eldvarnir, starfsemi slökkviliðs og aðrar aðgerðir einstaklinga og fyrirtækja sem mælt er fyrir um í lögum þessum og lögum nr. 75/2000, um brunavarnir.
3. Byggingarleyfi: Skriflegt leyfi byggingarfulltrúa eða Byggingarstofnunar til að byggja, breyta eða rífa hús eða önnur mannvirki eða breyta notkun þeirra. Leyfið felur í sér samþykkt aðal- og séruppdrátta og framkvæmdaáforma og heimild til að hefja framkvæmdir að uppfylltum skilyrðum, sbr. 12. gr.
4. Byggingarlýsing: Í byggingarlýsingu er gerð grein fyrir uppbyggingu mannvirkis, helstu byggingarefnum og áferð og hvort mannvirki er búið loftræsingu eða öryggiskerfum. Þar er einnig gerð grein fyrir hvernig mannvirkið uppfyllir ákvæði laga, reglugerða og staðla. Í byggingarlýsingu er greinargerð um notkun eða starfsemi í mannvirkinu, áætlaðan fjölda starfsmanna og mestan fjölda fólks í salarkynnum.
5. Deiliuppdráttur: Uppdráttur þar sem gerð er nánari grein fyrir einstökum atriðum sem fram koma á aðal- og séruppdráttum og útfærslu þeirra í smáatriðum.
6. Eldvarnir: Allar fyrirbyggjandi aðgerðir sem miða að því að koma í veg fyrir eldsvoða eða hindra útbreiðslu elds.
7. Mannvirki: Hvers konar jarðfastar framkvæmdir manna, svo sem hús og aðrar byggingar eða skýli, virkjanir, dreifi- og flutningskerfi rafveitna, hitaveitna, vatnsveitna og fjarskipta, fráveitumannvirki, göngubrýr í þéttbýli og togbrautarbúnaður til fólksflutninga. Til mannvirkja teljast einnig tímabundnar og lausar byggingar sem ætlaðar eru til svefns eða daglegrar dvalar manna í fjóra mánuði eða lengur á sama stað, svo sem starfsmannabúðir og húsvagnar. Mannvirki á eða í hafi, vötnum og ám sem hafa fasta staðsetningu teljast einnig til mannvirkja samkvæmt lögum þessum.
8. Neysluveitur rafmagns: Raflagnir og raflagnabúnaður innan við stofnkassa (eða búnað sem gegnir hlutverki stofnkassa).
9. Prófunarstofa: Faggiltur aðili, sbr. lög nr. 24/2006, um faggildingu o.fl., sem framkvæmir prófun.
10. Samræmingaraðili: Hönnuður aðaluppdrátta eða aðili sem eigandi mannvirkis ræður til að bera ábyrgð á samræmingu hönnunargagna, sbr. 4. mgr. 22. gr.
11. Samþykkt hönnunargögn: Hönnunargögn sem samþykkt hafa verið af útgefanda byggingarleyfis.
12. Séruppdráttur: Uppdráttur sem sýnir m.a. útfærslu einstakra byggingar- og mannvirkjahluta og tæknibúnaðar, ásamt tilvísunum í staðla um efniskröfur og annað sem þarf til að fullgera mannvirki að utan og innan.
13. Skipulagsáætlun: Áætlun um markmið og ákvarðanir viðkomandi stjórnvalda um framtíðarnotkun lands. Þar er gerð grein fyrir því að hvers konar framkvæmdum er stefnt og hvernig þær falla að landnotkun á tilteknu svæði. Forsendum ákvarðana er einnig lýst. Skipulagsáætlanir sveitarfélaga skiptast í þrjá flokka: svæðisskipulag, aðalskipulag og deiliskipulag. Skipulagsáætlun er sett fram í skipulagsgreinargerð og á skipulagsuppdrætti þar sem það á við.
14. Skoðunarstofa: Skoðunarstofa sem hefur faggildingu og starfsleyfi samkvæmt ákvæðum laga þessara og laga nr. 24/2006, um faggildingu o.fl., til að annast tiltekin verkefni á sviði byggingareftirlits.
15. Starfsmannabúðir: Færanlegt húsnæði sem ætlað er til svefns, matar, daglegrar dvalar, vinnu eða samkomuhalds starfsfólks til skamms tíma í senn vegna atvinnustarfsemi.
II. KAFLI
Stjórnvöld mannvirkjamála.
4. gr.
Stjórn mannvirkjamála.
Sveitarstjórn ber ábyrgð á að framkvæmd eftirlits byggingarfulltrúa sé í samræmi við ákvæði laga þessara. Byggingarfulltrúar annast eftirlit með mannvirkjagerð sem fellur undir 2. mgr. 8. gr.
5. gr.
Byggingarstofnun.
1. að annast gerð leiðbeininga, verklagsreglna og skoðunarhandbóka á fagsviði stofnunarinnar í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga og aðra hagsmunaaðila,
2. að annast aðgengismál,
3. að bera ábyrgð á eftirliti með neysluveitum rafmagns og raflagnabúnaði sem telst til fasts búnaðar mannvirkis,
4. að bera ábyrgð á skráningu og eftirliti með lyftum og lyftubúnaði til fólks- og vöruflutninga og togbrautarbúnaði til fólksflutninga,
5. að byggja upp og reka gagnagrunn fyrir upplýsingar um mannvirki um land allt, sbr. 48. gr.,
6. að annast kynningar og fræðslu fyrir almenning og hagsmunaaðila,
7. að gefa út byggingarleyfi og annast eftirlit með þeim framkvæmdum sem falla undir 3. mgr. 8. gr.,
8. að standa fyrir námskeiðum til réttinda fyrir hönnuði og byggingarstjóra og að gefa út löggildingar fyrir hönnuði, iðnmeistara og slökkviliðsmenn,
9. að bera ábyrgð á starfrækslu Brunamálaskóla fyrir slökkviliðsmenn, þ.m.t. slökkviliðsstjóra og eldvarnaeftirlitsmenn,
10. að gefa út starfsleyfi til handa byggingarstjórum og skoðunarstofum sem starfa samkvæmt lögum þessum og að hafa eftirlit með starfsemi þeirra,
11. að gefa út starfsleyfi til handa þjónustu- og eftirlitsaðilum brunavarna og samþykkja brunavarnaáætlanir sveitarfélaga samkvæmt ákvæðum laga um brunavarnir,
12. að annast og stuðla að rannsóknum á sviði mannvirkjamála og brunavarna í samvinnu við hagsmunaaðila og stuðla að útgáfu upplýsinga um þau mál,
13. að taka þátt í starfi Staðlaráðs Íslands um gerð staðla á sviði mannvirkjamála,
14. að eiga samstarf við hliðstæðar stofnanir í nágrannalöndunum og á alþjóðavettvangi,
15. að vera ráðuneytinu og öðrum stjórnvöldum til ráðgjafar um mannvirkjamál og veita umsagnir um ágreiningsmál á því sviði,
16. önnur verkefni sem ráðherra felur stofnuninni sérstaklega.
Byggingarstofnun skal árlega gefa út skýrslu um stöðu og þróun mannvirkjagerðar í landinu.
6. gr.
Forstjóri Byggingarstofnunar og annað starfslið.
Forstjóri ber ábyrgð á stjórn, rekstri og starfsskipulagi Byggingarstofnunar gagnvart ráðherra og gerir rekstraráætlanir fyrir hana. Forstjóri ræður annað starfsfólk stofnunarinnar.
7. gr.
Byggingarfulltrúar.
Sveitarstjórn getur falið byggingarfulltrúa að annast einnig skipulagsmál enda uppfylli hann einnig kröfur skipulagslaga um menntun og starfsreynslu skipulagsfulltrúa. Um störf og verksvið skipulagsfulltrúa fer samkvæmt skipulagslögum.
Byggingarfulltrúi skal hafa löggildingu sem hönnuður skv. 24. gr. og skal sveitarstjórn senda Byggingarstofnun tilkynningu um ráðningu hans.
Byggingarfulltrúa eða starfsmönnum hans er óheimilt að vinna nokkurt það starf sem kann að koma til afgreiðslu í umdæmi hans nema með sérstöku samþykki sveitarstjórnar.
III. KAFLI
Byggingarleyfi.
8. gr.
Byggingarleyfisskyldar framkvæmdir.
Óheimilt er að grafa grunn fyrir mannvirki, reisa það, rífa eða flytja, breyta því, burðarkerfi þess eða lagnakerfum, eða breyta notkun þess nema að fengnu leyfi viðkomandi byggingarfulltrúa, sbr. þó 3. mgr. Sama gildir um nýframkvæmdir við fráveitumannvirki og dreifi- og flutningskerfi rafveitna, hitaveitna, vatnsveitna og fjarskipta og breytingar á slíkum mannvirkjum, enda sé um að ræða meiri háttar breytingar á hönnunarforsendum eða staðsetningu slíkra mannvirkja. Ráðherra getur í reglugerð kveðið á um að minni háttar mannvirkjagerð eða smávægilegar breytingar á mannvirkjum skuli undanþiggja byggingarleyfi.
Óheimilt er að grafa grunn fyrir, reisa eða rífa eftirfarandi mannvirki eða breyta þeim hvað varðar burðarkerfi eða hönnunarforsendur nema að fengnu leyfi Byggingarstofnunar:
a. Virkjanir og önnur þau mannvirki sem reist eru í tengslum við slíkar framkvæmdir.
b. Fráveitumannvirki og dreifi- og flutningskerfi rafveitna, hitaveitna, vatnsveitna og fjarskipta sem liggja innan fleiri en eins sveitarfélags.
c. Mannvirki á hafi utan sveitarfélagamarka.
d. Mannvirki á flugvallarsvæði Keflavíkurflugvallar.
e. Mannvirki á varnarsvæðum utan Keflavíkurflugvallar og á öryggissvæði, sbr. 49. gr.
Leiki vafi á því hvort mannvirki sé háð byggingarleyfi eða hvort það falli undir 2. eða 3. mgr. skal leita niðurstöðu úrskurðarnefndar, sbr. 46. gr. Niðurstaða nefndarinnar skal liggja fyrir innan eins mánaðar frá því að slíkt erindi berst.
Varði breyting á mannvirki skv. 2. mgr. einungis útlit og form skal leita eftir samþykki sveitarstjórnar í samræmi við ákvæði skipulagslaga.
9. gr.
Umsókn um byggingarleyfi.
Með umsókn til Byggingarstofnunar vegna mannvirkja sem falla undir 3. mgr. 8. gr. skal fylgja staðfesting skipulagsfulltrúa viðkomandi sveitarfélags á því að fyrirhuguð framkvæmd sé í samræmi við skipulagsáætlanir á svæðinu. Ef mannvirki fellur undir 2. mgr. 8. gr. skal byggingarfulltrúi leita umsagnar skipulagsfulltrúa leiki vafi á að framkvæmd samræmist skipulagsáætlunum sveitarfélagsins.
Í reglugerð skal kveðið nánar á um hvaða gögn skuli fylgja byggingarleyfisumsókn og hvernig frá umsókn, uppdráttum og öðrum gögnum skuli gengið.
10. gr.
Samþykkt byggingaráforma.
11. gr.
Sérstakar kröfur.
Þegar sérstaklega stendur á getur leyfisveitandi við útgáfu byggingarleyfis sett skilyrði um að prófun, vottun eða skoðun skuli framkvæmd á kostnað umsækjanda eftir að mannvirki er tekið í notkun til að tryggja að uppfyllt séu ákvæði laga þessara og reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim og viðeigandi aðgerðir til úrbóta.
Prófanir, skoðanir og vottanir skv. 1. og 2. mgr. skulu framkvæmdar í samræmi við viðeigandi staðla af aðila sem viðurkenndur er af Byggingarstofnun. Heimilt er útgefanda byggingarleyfis að krefjast þess að þær skuli framkvæmdar af faggiltum aðila, sbr. lög um faggildingu o.fl., nr. 24/2006. Í þeim tilfellum þegar staðlaðar prófunarlýsingar eru ekki til skal prófunaraðili leggja fram skriflega lýsingu á framkvæmd prófsins ásamt rökstuðningi fyrir réttmæti prófunaraðferðar.
12. gr.
Útgáfa byggingarleyfis.
1. Mannvirkið og notkun þess samræmist skipulagsáætlunum.
2. Aðal- og séruppdrættir hafa verið yfirfarnir og leyfisveitandi hefur áritað þá til staðfestingar á samþykki.
3. Byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld hafa verið greidd, svo sem gatnagerðargjald samkvæmt ákvæðum laga um gatnagerðargjald og bílastæðagjald samkvæmt ákvæðum skipulagslaga, eða samið um greiðslu þeirra.
4. Byggingarstjóri hefur undirritað yfirlýsingu um ábyrgð sína og afhent leyfisveitanda undirritaða ábyrgðaryfirlýsingu þeirra iðnmeistara sem ábyrgð munu bera á einstökum verkþáttum, sbr. þó 3. mgr.
5. Skráð hefur verið í miðlægan gagnagrunn Byggingarstofnunar að viðkomandi byggingarstjóri og iðnmeistarar hafi gæðastjórnunarkerfi í samræmi við ákvæði laga þessara, sbr. þó 3. mgr.
Leyfisveitandi getur, þegar sérstaklega stendur á, veitt skriflegt leyfi til einstakra þátta byggingarframkvæmda og takmarkast leyfið þá hverju sinni við samþykkt hönnunargögn. Heimilt er að veita umsækjanda leyfi til að kanna jarðveg á framkvæmdasvæði án þess að byggingarleyfi hafi verið gefið út.
Byggingarleyfi vegna fráveitumannvirkja og dreifi- og flutningskerfa rafveitna, hitaveitna, vatnsveitna og fjarskipta skulu gefin út fyrir viðkomandi mannvirki eins og þau eru afmörkuð í umsókn um byggingarleyfi, enda uppfylli hönnunargögn skilyrði laga þessara og reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim. Getur byggingarleyfi fyrir slíkum mannvirkjum náð til afmarkaðs svæðis, svo sem nýbyggingarhverfis. Ekki þarf að uppfylla skilyrði 4. og 5. tölul. 1. mgr. vegna mannvirkja sem falla undir þessa málsgrein, né þarf að óska eftir öryggis- eða lokaúttekt vegna þeirra.
Óheimilt er að gefa út byggingarleyfi fyrir mannvirki sem fellur undir lög um mat á umhverfisáhrifum fyrr en álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum liggur fyrir eða ákvörðun stofnunarinnar um að framkvæmd sé ekki matsskyld.
13. gr.
Gildistími byggingarleyfis.
Nú stöðvast byggingarframkvæmdir í eitt ár eða lengur og getur leyfisveitandi þá að undangenginni aðvörun lagt dagsektir á byggingarleyfishafa, sbr. 43. gr., eða fellt byggingarleyfið úr gildi.
Hafi byggingarframkvæmdir stöðvast í tvö ár hið skemmsta getur leyfisveitandi tekið ófullgerðar byggingarframkvæmdir eignarnámi samkvæmt lögum um framkvæmd eignarnáms.
Leyfisveitandi getur að undangenginni aðvörun fellt byggingarleyfi úr gildi ef eigandi mannvirkisins eða aðrir þeir aðilar sem bera ábyrgð á byggingarframkvæmdum samkvæmt lögum þessum sinna ekki fyrirmælum eftirlitsaðila við byggingareftirlit eða gerast sekir um alvarleg eða ítrekuð brot gegn lögunum eða reglugerðum settum samkvæmt þeim.
Ítarlegri ákvæði um byggingarhraða sem sett eru af sveitarfélagi á grundvelli skipulagslaga gilda framar ákvæðum 1. og 2. mgr.
Ákvæði þessarar greinar ná ekki til mannvirkja sem falla undir 3. mgr. 12. gr.
IV. KAFLI
Ábyrgð eiganda mannvirkis og framkvæmd byggingareftirlits.
14. gr.
Ábyrgð eiganda mannvirkis.
Eigandi skal hafa virkt innra eftirlit með því að þeir aðilar sem hann ræður til að hanna, byggja og reka mannvirkið fari eftir ákvæðum laga þessara og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra. Samræmingaraðili framkvæmir innra eftirlit eiganda við hönnun mannvirkis, sbr. 4. mgr. 22. gr. Byggingarstjóri mannvirkis framkvæmir innra eftirlit eiganda frá því að byggingarleyfi er gefið út og þar til lokaúttekt hefur farið fram. Samræmingaraðili og byggingarstjóri skulu gera eiganda grein fyrir framkvæmd innra eftirlits samkvæmt því sem nánar er kveðið á um í reglugerð og samningi við eiganda.
Eigandi ber ábyrgð á að fram fari lögboðið eftirlit með byggingu mannvirkisins í samræmi við ákvæði laga þessara.
Eftirtaldir aðilar teljast eigendur samkvæmt þessari grein:
a. Lóðarhafi óbyggðrar lóðar.
b. Umsækjandi um byggingarleyfi.
c. Byggingarleyfishafi.
d. Eigandi mannvirkis í byggingu. Sé mannvirki selt í heild eða að hluta áður en lokaúttekt fer fram ber fyrri eigandi ábyrgð skv. 1. mgr. ásamt nýjum eiganda nema um annað sé samið í skriflegum samningi milli þeirra. Skal þá koma skýrt fram að nýr eigandi gangi inn í samning fyrri eiganda við byggingarstjóra mannvirkisins eða nýr byggingarstjóri sé ráðinn fyrir mannvirkið í heild.
e. Eigandi mannvirkis eftir að lokaúttekt hefur farið fram.
15. gr.
Hlutverk útgefanda byggingarleyfis.
Útgefandi byggingarleyfis annast úttektir í samræmi við ákvæði skoðunarhandbóka og gefur út viðeigandi vottorð, sbr. 3. mgr., á grundvelli niðurstöðu skoðunarstofu eða eigin skoðana. Hann hefur eftirlit með að úttektir sem skoðunarstofur annast fari fram og beitir þvingunarúrræðum í samræmi við ákvæði laga þessara ef fyrirmælum um úrbætur er ekki sinnt eða vanrækt er að láta lögbundna úttekt fara fram.
Útgefandi byggingarleyfis gefur út vottorð vegna eftirfarandi úttekta, eftir atvikum á grundvelli skoðunarskýrslu skoðunarstofu eða eigin skoðunar:
1. Öryggisúttekt.
2. Lokaúttekt.
3. Við lok niðurrifs mannvirkis.
Útgefandi byggingarleyfis skal sjá um að hönnunargögn, eftirlitsskýrslur, gátlistar, úttektarvottorð og önnur gögn sem ákvarðanir hans eru byggðar á séu færð í miðlægan gagnagrunn Byggingarstofnunar.
16. gr.
Framkvæmd eftirlits með mannvirkjum.
Komi upp ágreiningur um túlkun skoðunarhandbókar skv. 1. mgr. varðandi tæknileg atriði og framkvæmd eftirlits á grundvelli hennar skal leita álits Byggingarstofnunar. Ef ágreiningur snýst um eftirlit Byggingarstofnunar skal leita álits ráðherra. Byggingarstofnun getur að eigin frumkvæði gefið út álit um framkvæmd tæknilegs eftirlits vegna tiltekinnar mannvirkjagerðar eða vegna mannvirkjagerðar almennt. Álit Byggingarstofnunar og eftir atvikum ráðherra er bindandi fyrir alla aðila máls og sætir ekki endurskoðun úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála.
Hafi hönnunargögn verið yfirfarin eða úttektir framkvæmdar af skoðunarstofu takmarkast yfirferð útgefanda byggingarleyfis við framlagða skoðunarskýrslu. Sama gildir ef skoðunarstofa annast aðra þætti byggingareftirlits.
Byggingarfulltrúi getur ávallt ákveðið að leitað skuli umsagnar annarra eftirlitsaðila, svo sem slökkviliðs eða heilbrigðiseftirlits, við yfirferð aðaluppdrátta, óháð því hvort eftirlit er framkvæmt af byggingarfulltrúa eða skoðunarstofu.
Hafi hönnuðir, byggingarstjórar eða iðnmeistarar ekki hlotið vottun faggiltrar vottunarstofu á gæðastjórnunarkerfum sínum skal Byggingarstofnun gera úttektir á gerð og virkni gæðastjórnunarkerfa þessara aðila. Byggingarstofnun er heimilt að fela faggiltri vottunarstofu framkvæmd úttekta af þessu tagi. Uppfylli gæðastjórnunarkerfi ekki ákvæði laga þessara eða reglugerða settra samkvæmt þeim skal gefa viðkomandi hönnuði, byggingarstjóra eða iðnmeistara kost á að bæta úr nema um alvarlegt brot sé að ræða. Um alvarleg og ítrekuð brot fer samkvæmt ákvæðum 44. gr.
17. gr.
Hlutverk Byggingarstofnunar við eftirlit byggingarfulltrúa.
Þegar meðferð Byggingarstofnunar skv. 1. mgr. er lokið skal eftirlit með mannvirkjagerðinni og önnur stjórnsýsla málsins vera í höndum viðkomandi byggingarfulltrúa. Byggingarstofnun skal tilkynna það byggingarfulltrúa með formlegum hætti þegar afskiptum stofnunarinnar af máli er lokið.
18. gr.
Faggilding Byggingarstofnunar og byggingarfulltrúa sveitarfélaganna.
19. gr.
Faggiltar skoðunarstofur.
Ákveði sveitarstjórn, byggingarfulltrúi eða Byggingarstofnun að eftirlit skuli framkvæmt af skoðunarstofu, sbr. 1. mgr., skal eigandi mannvirkisins annast ráðningu slíkrar skoðunarstofu og greiða kostnað af framkvæmd eftirlitsins, enda hafi skoðunarstofan starfsleyfi skv. 3. mgr. Byggingarfulltrúa og Byggingarstofnun er í slíkum tilvikum einungis heimilt að taka gjald sem nemur kostnaði af framkvæmd þeirra þátta eftirlitsins sem þau annast.
Byggingarstofnun gefur út starfsleyfi til rekstrar skoðunarstofa skv. 1. mgr. Skilyrði fyrir útgáfu starfsleyfis er að skoðunarstofa hafi hlotið faggildingu og skoðunarmenn hennar og tæknilegur stjórnandi uppfylli viðeigandi skilyrði 20. gr. Í starfsleyfi skal tilgreina þá þætti eftirlits sem skoðunarstofu er heimilt að taka að sér. Um faggildingu fer samkvæmt lögum nr. 24/2006, um faggildingu o.fl.
Byggingarstofnun getur svipt skoðunarstofu starfsleyfi ef hún uppfyllir ekki lengur skilyrði fyrir leyfisveitingu. Sama á við ef skoðunarstofa hlítir ekki fyrirmælum Byggingarstofnunar, vanrækir hlutverk sitt og skyldur eða sýnir af sér ítrekaða óvarkárni í starfi. Starfsleyfi fellur sjálfkrafa niður verði skoðunarstofa svipt faggildingu sinni.
20. gr.
Hæfi skoðunarmanna.
a. Skoðunarmaður I: Iðnmeistarar með löggildingu Byggingarstofnunar og a.m.k. tveggja ára reynslu sem slíkir af störfum við byggingarframkvæmdir eða byggingareftirlit sem viðurkennd er af Byggingarstofnun. Verkfræðingar, tæknifræðingar, arkitektar og byggingarfræðingar með a.m.k. tveggja ára reynslu sem slíkir af störfum við byggingarframkvæmdir eða byggingareftirlit sem viðurkennd er af Byggingarstofnun.
b. Skoðunarmaður II: Verkfræðingar, tæknifræðingar, arkitektar og byggingarfræðingar með löggildingu Byggingarstofnunar sem hönnuðir aðal- eða séruppdrátta og a.m.k. þriggja ára reynslu sem löggiltir hönnuðir af störfum við byggingarframkvæmdir, hönnun mannvirkja, byggingareftirliti eða verkstjórn við byggingarframkvæmdir.
c. Skoðunarmaður III: Verkfræðingar og tæknifræðingar með löggildingu Byggingarstofnunar á sviði viðkomandi mannvirkjagerðar og að lágmarki sjö ára starfsreynslu sem löggiltir hönnuðir af verk- og byggingarstjórn við mannvirkjagerð, byggingareftirlit eða hönnun.
Ráðherra ákveður með reglugerð hvaða þætti eftirlits skoðunarmönnum I–III er heimilt að sinna eftir gerð og umfangi mannvirkis og eftir því hvort um er að ræða yfirferð hönnunargagna eða framkvæmd úttekta.
V. KAFLI
Hönnun mannvirkja.
21. gr.
Hönnunargögn.
Hönnunargögn mannvirkja sem heyra undir lög þessi greinast í uppdrætti og fylgiskjöl. Uppdrættir greinast í aðaluppdrætti, séruppdrætti og deiliuppdrætti. Til fylgiskjala heyra m.a. byggingarlýsingar, greinargerðir, forsendur og útreikningar.
22. gr.
Ábyrgð hönnuða.
Hönnuðir bera ábyrgð á því gagnvart eiganda mannvirkis að hönnun þeirra sé faglega unnin og mannvirkið standist þær kröfur sem til þess eru gerðar í lögum þessum og reglugerðum settum samkvæmt þeim enda hafi verið fylgt að fullu uppdráttum hönnuðar, verklýsingu, skriflegum fyrirmælum og viðurkenndum starfsvenjum. Hönnuðir skulu árita uppdrætti sína eigin hendi og þannig staðfesta ábyrgð sína.
Hönnuður séruppdrátta ber ábyrgð á því að hönnun hans samræmist aðaluppdráttum.
Eigandi mannvirkis skal við umsókn um byggingarleyfi tilnefna samræmingaraðila til að hafa yfirumsjón með hönnun mannvirkisins og ber sá aðili ábyrgð á því að samræming hönnunargagna fari fram. Samræmingaraðili skal vera löggiltur hönnuður. Samræmingaraðili skal árita séruppdrætti til staðfestingar á því að samræming hafi farið fram áður en þeir eru samþykktir af leyfisveitanda. Samræmingaraðili skal áður en byggingarleyfi er gefið út leggja fram yfirlit um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar. Uppfært yfirlit um innra eftirlit skal lagt fram við lok hönnunar mannvirkisins.
Skaðabótaábyrgð hönnuðar fyrnist samkvæmt ákvæðum laga um fyrning skulda og annarra kröfuréttinda.
23. gr.
Gæðastjórnunarkerfi hönnuða og samræmingaraðila.
24. gr.
Löggilding hönnuða.
a. Arkitektar og byggingarfræðingar geta fengið löggildingu til að gera aðaluppdrætti, uppdrætti að skipulagi lóða og tilheyrandi deiliuppdrætti.
b. Verkfræðingar og tæknifræðingar með viðkomandi sérmenntun geta fengið löggildingu til að hanna og gera séruppdrætti að burðarvirkjum, boðveitum, rafkerfum og raflögnum í mannvirkjum, vatns-, hita- og fráveitukerfum, loftræsikerfum og lýsingarkerfum.
c. Byggingarverkfræðingar og byggingartæknifræðingar geta fengið löggildingu til að gera aðaluppdrætti og tilheyrandi deiliuppdrætti, enda hafi þeir öðlast a.m.k. fimm ára starfsreynslu hjá löggiltum aðila á því sviði.
d. Innanhússarkitektar og landslagsarkitektar (landslagshönnuðir) geta fengið löggildingu sem hönnuðir séruppdrátta, hver á sínu sviði.
e. Rafiðnfræðingar geta fengið löggildingu sem hönnuðir séruppdrátta á sínu sviði. Ráðherra setur stærðartakmarkanir veitna í reglugerð.
Listi yfir löggilta hönnuði skal varðveittur í miðlægum gagnagrunni Byggingarstofnunar.
25. gr.
Skilyrði fyrir löggildingu hönnuða.
a. Að umsækjandi hafi hlotið heimild iðnaðarráðherra til starfsheitisins samkvæmt lögum um löggildingu nokkurra starfsheita sérfræðinga í tækni- og hönnunargreinum, nr. 8/1996.
b. Að umsækjandi hafi staðist próf sem Byggingarstofnun stendur fyrir að undangengnu námskeiði um gildandi lög og reglur á sviði mannvirkjagerðar. Jafnframt skal á námskeiðinu fjallað um séríslenskar aðstæður sem taka þarf tillit til við hönnun.
c. Að umsækjandi hafi sérhæft sig á viðkomandi löggildingarsviði og öðlast starfsreynslu hjá löggiltum aðila á sviðinu. Starfsreynslutíminn skal ekki vera skemmri en þrjú ár, þar af minnst eitt ár hér á landi. Í vottorði um starfsreynslu skal gerð grein fyrir þeim verkefnum sem umsækjandi hefur unnið að á starfsreynslutímanum. Starfsreynslutíma skal lokið áður en námskeið og próf skv. b-lið eru sótt.
Ráðherra ákveður gjald sem umsækjendur greiða fyrir að þreyta próf skv. b-lið 1. mgr. Skal fjárhæðin taka mið af kostnaði af námskeiðum og framkvæmd prófs. Byggingarstofnun er heimilt að fela öðrum framkvæmd námskeiða og prófa fyrir hönd stofnunarinnar.
VI. KAFLI
Byggingarstjórar og iðnmeistarar.
26. gr.
Byggingarstjórar.
Byggingarstjóri er faglegur fulltrúi eiganda við mannvirkjagerð og starfar í umboði hans samkvæmt skriflegum ráðningar- eða verksamningi við eiganda. Byggingarstjóri skal gæta réttmætra hagsmuna eiganda gagnvart byggingaryfirvöldum, hönnuðum, iðnmeisturum og öðrum sem að mannvirkjagerðinni koma. Um umboð byggingarstjóra, verksvið og ábyrgð fer eftir ákvæðum laga þessara, reglugerðar og samningi við eiganda.
Byggingarstjóra er ekki heimilt að taka að sér ábyrgð á hönnun eða einstökum verkþáttum mannvirkjagerðar sem hann fer með byggingarstjórn á. Sé um að ræða minni háttar mannvirkjagerð til eigin nota, svo sem byggingu frístundahúss, bílskúrs eða viðbyggingu við íbúðarhús, getur eigandi þó falið einum af iðnmeisturum eða hönnuðum mannvirkisins byggingarstjórn þess enda hafi sá aðili starfsleyfi Byggingarstofnunar skv. 27. gr.
Heimildir byggingarstjóra takmarkast af gerð mannvirkis og umfangi framkvæmda svo sem hér segir:
1. Nýbygging einfalds atvinnuhúsnæðis, íbúðarhúsa, frístundahúsa og minni háttar mannvirkja auk breytinga, endurbyggingar eða niðurrifs á slíkum mannvirkjum.
2. Sérhæfð mannvirki, svo sem vatnsafls- og jarðvarmavirkjanir, raforkuver og vatnsstíflur.
3. Önnur mannvirki en falla undir 1. og 2. tölul.
Ráðherra birtir í reglugerð nánari tilgreiningu mannvirkja skv. 3. og 4. mgr.
27. gr.
Starfsleyfi byggingarstjóra.
Húsasmíðameistarar, múrarameistarar, pípulagningameistarar, blikksmíðameistarar, rafvirkjameistarar og byggingariðnfræðingar geta öðlast starfsleyfi til þess að hafa umsjón með framkvæmdum, sem falla undir 1. tölul. 4. mgr. 26. gr. Skulu þeir hafa hlotið löggildingu Byggingarstofnunar og hafa a.m.k. tveggja ára reynslu sem slíkir af störfum við byggingarframkvæmdir eða byggingareftirlit sem viðurkennd er af stofnuninni. Byggingarstjórar sem falla undir þessa málsgrein og hafa starfað við byggingarstjórn í þrjú ár og hafa allan þann tíma haft fullnægjandi gæðastjórnunarkerfi sem slíkir í samræmi við ákvæði laga þessara geta einnig öðlast starfsleyfi til að hafa umsjón með framkvæmdum sem falla undir 3. tölul. 4. mgr. 26. gr.
Verkfræðingar, tæknifræðingar, arkitektar og byggingarfræðingar geta öðlast starfsleyfi til þess að hafa umsjón með framkvæmdum, sem falla undir 1. og 3. tölul. 4. mgr. 26. gr. Skulu þeir hafa a.m.k. fimm ára reynslu sem slíkir af störfum við byggingarframkvæmdir, hönnun bygginga, byggingareftirliti eða verkstjórn við byggingarframkvæmdir.
Verkfræðingar og tæknifræðingar með löggildingu Byggingarstofnunar á sviði viðkomandi mannvirkjagerðar og að lágmarki tíu ára starfsreynslu af verkstjórn við mannvirkjagerð, byggingareftirliti eða hönnun geta öðlast starfsleyfi til þess að hafa umsjón með framkvæmdum, sem falla undir 1.–3. tölul. 4. mgr. 26. gr. Þar af skulu þeir hafa a.m.k. þriggja ára starfsreynslu af stjórnun eða eftirliti við mannvirkjagerð.
Fyrirtæki og stofnanir geta í eigin nafni borið ábyrgð sem byggingarstjórar við mannvirkjagerð enda starfi þar aðili við byggingarstjórn sem hefur starfsleyfi til að annast umsjón með þeirri gerð mannvirkis, sbr. 4. mgr. 26. gr.
Byggingarstofnun heldur skrá um byggingarstjóra með starfsleyfi samkvæmt þessari grein og skal hún varðveitt í miðlægum gagnagrunni stofnunarinnar.
28. gr.
Ábyrgð og verksvið byggingarstjóra.
Byggingarstjóri skal í umboði eiganda annast samskipti við leyfisveitendur, eftirlitsaðila mannvirkis, hönnuði og iðnmeistara, auk annarra sem að framkvæmd verksins koma. Skal hann sjá um að aflað sé nauðsynlegra heimilda vegna framkvæmdarinnar, eftir því sem lög og reglugerðir mæla fyrir.
Byggingarstjóri fer yfir hönnunargögn með iðnmeisturum mannvirkis vegna heildarskipulags og samræmingar á mismunandi verkþáttum. Leiki vafi á túlkun hönnunargagna skal byggingarstjóri skera úr, eftir atvikum í samráði við hönnuði, og skrá niðurstöður í gæðastjórnunarkerfi sitt. Falli mannvirki undir 2. eða 3. tölul. 4. mgr. 26. gr. skal byggingarstjóri sjá til þess að skipulagðir samráðsfundir séu haldnir með eiganda og hönnuðum og skrá efni þeirra í gæðastjórnunarkerfi sitt.
Byggingarstjóri hefur yfirumsjón með því að aflað sé samþykktar leyfisveitanda á breytingum sem gerðar eru á hönnun eða gerð mannvirkis í byggingu og að ávallt sé framkvæmt í samræmi við nýjustu útgáfu samþykktra hönnunargagna.
Byggingarstjóri skal hafa virkt eftirlit með því að þeir aðilar sem koma að byggingu mannvirkis fylgi samþykktum hönnunargögnum, verklýsingum og ákvæðum laga þessara og reglugerða sem settar eru á grundvelli þeirra. Verði byggingarstjóri við framkvæmd eftirlits var við ágalla á verki iðnmeistara eða hönnuðar skal hann gera viðkomandi aðila aðvart og krefjast þess að úr sé bætt innan hæfilegs tíma. Athugasemdir byggingarstjóra skulu skráðar á viðeigandi hátt í gæðastjórnunarkerfi hans og annarra hlutaðeigandi aðila. Sé athugasemdum byggingarstjóra ekki sinnt eða um ítrekaða vanrækslu að ræða skal hann tilkynna það eiganda. Komi verulegir ágallar á mannvirki í ljós við úttekt, við lok verkhluta eða framkvæmda, eða eftir að mannvirki er tekið í notkun, sem ekki hefur verið bætt úr og rekja má til stórfelldrar vanrækslu á verksviði einstakra iðnmeistara eða hönnuða, ber byggingarstjóri meðábyrgð á ágöllunum gagnvart eiganda, enda hefðu ágallarnir ekki átt að dyljast byggingarstjóra við framkvæmd eftirlits skv. 1. málsl. þessarar málsgreinar.
Byggingarstjóri skal gera eftirlitsaðila viðvart um lok úttektarskyldra verkþátta og vera viðstaddur úttektir. Hann skal jafnframt tilkynna viðeigandi iðnmeisturum og hönnuðum með sannanlegum hætti um úttektir nema samningur þeirra á milli kveði á um annað.
Hljóti eigandi eða annar þriðji maður tjón af völdum gáleysis í starfi byggingarstjóra ber hann skaðabótaábyrgð á því samkvæmt almennum reglum. Byggingarstjóri ber ekki ábyrgð á faglegri framkvæmd verkþátta á ábyrgð einstakra iðnmeistara eða hönnuða né því að iðnmeistarar og aðrir sem að framkvæmd verks koma uppfylli skyldur sínar samkvæmt verk- eða kaupsamningi.
Skaðabótaábyrgð byggingarstjóra fyrnist samkvæmt ákvæðum laga um fyrning skulda og annarra kröfuréttinda.
29. gr.
Byggingarstjóraskipti.
Verði útgefandi byggingarleyfis þess var að byggingarframkvæmdum er fram haldið án byggingarstjóra skal hann tafarlaust stöðva framkvæmdir og loka vinnusvæði ef nauðsyn krefur.
30. gr.
Gæðastjórnunarkerfi byggingarstjóra.
31. gr.
Ábyrgð og verksvið iðnmeistara.
Iðnmeistari ber ábyrgð á því gagnvart eiganda mannvirkis að þeir verkþættir sem hann tekur að sér að framkvæma séu í samræmi við viðurkennda verkhætti, samþykkta uppdrætti, verklýsingar og ákvæði laga þessara og reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim. Skaðabótaábyrgð iðnmeistara fyrnist samkvæmt ákvæðum laga um fyrning skulda og annarra kröfuréttinda.
Þeir iðnmeistarar einir geta borið ábyrgð á einstökum verkþáttum við mannvirkjagerð sem hlotið hafa til þess löggildingu Byggingarstofnunar. Iðnmeistarar, sem hafa meistarabréf og hafa lokið prófi frá meistaraskóla eða hafa a.m.k. sambærilega menntun á hlutaðeigandi sviði, geta hlotið slíka löggildingu, enda séu þeir starfandi sem meistarar í iðn sinni.
Löggilding til handa rafvirkjameisturum sem gefin er út á grundvelli laga nr. 146/1996, um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga, jafngildir löggildingu skv. 3. mgr.
Byggingarstofnun heldur skrá yfir löggilta iðnmeistara og skal hún varðveitt í miðlægum gagnagrunni stofnunarinnar.
Iðnmeistarar skulu hafa gæðastjórnunarkerfi sem feli a.m.k. í sér staðfestingu á hæfni iðnmeistara, skrá yfir úttektir og niðurstöður þeirra, skrá yfir athugasemdir byggingarstjóra, auk lýsingar á og skrár um innra eftirlit iðnmeistarans í samræmi við nánari ákvæði í reglugerð. Gæðastjórnunarkerfi ÍST EN ISO 9000 uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru til gæðastjórnunarkerfis samkvæmt þessari grein. Iðnmeistari skal tilkynna Byggingarstofnun um gæðastjórnunarkerfi sitt til skráningar í miðlægan gagnagrunn stofnunarinnar.
32. gr.
Iðnmeistaraskipti.
Byggingarstjóri skal sjá til þess að framkvæmdir við þá verkþætti sem fráfarandi iðnmeistari bar ábyrgð á og hafði umsjón með séu stöðvaðar þar til nýr iðnmeistari hefur undirritað ábyrgðaryfirlýsingu. Skal byggingarstjóri gera úttekt á þeim verkþáttum er fráfarandi iðnmeistari hafði umsjón með og skal úttekt undirrituð bæði af fráfarandi iðnmeistara og hinum nýja, ef þess er kostur. Nýr iðnmeistari ber ábyrgð á þeim verkþáttum sem unnir eru eftir að hann tók við starfi.
VII. KAFLI
Eftirlit með mannvirkjagerð.
33. gr.
Áfangaúttektir.
Byggingarstjóri mannvirkis, fyrir hönd eiganda þess, skal sjá til þess að áfangaúttektir fari fram og tilkynnir eftirlitsaðila um þær. Byggingarstjóra er skylt að vera viðstaddur áfangaúttektir. Enn fremur skal iðnmeistari eða aðili sem hann tilnefnir í sinn stað vera viðstaddur úttekt á þeim verkþáttum sem eru á hans ábyrgðarsviði nema um annað sé samið í samningi milli iðnmeistara og eiganda.
Geri eftirlitsaðili alvarlegar athugasemdir við úttekt verkþáttar skal byggingarstjóri sjá til þess að bætt sé úr og áfangaúttekt endurtekin.
Leggi eigandi mannvirkis fram skriflega greinargerð um framkvæmd innra eftirlits byggingarstjóra getur útgefandi byggingarleyfis heimilað byggingarstjóra eða iðnmeistara sem skráður er fyrir viðkomandi verkþætti að framkvæma sjálfir einstakar áfangaúttektir.
34. gr.
Öryggisúttekt.
Byggingarstjóri, fyrir hönd eiganda mannvirkis, skal óska eftir öryggisúttekt áður en það er tekið í notkun. Viðstaddir slíka úttekt skulu vera, auk eftirlitsaðila og byggingarstjóra, fulltrúi slökkviliðs og þeir iðnmeistarar og hönnuðir sem þess óska eða eru til þess boðaðir af byggingarstjóra. Hafi byggingarstjóri vanrækt að óska eftir öryggisúttekt áður en mannvirki er tekið í notkun skal útgefandi byggingarleyfis boða til slíkrar úttektar. Einnig getur eigandi mannvirkis ávallt óskað eftir öryggisúttekt.
35. gr.
Lokaúttekt.
Byggingarstjóri, fyrir hönd eiganda mannvirkis, skal óska eftir lokaúttekt. Viðstaddir slíka úttekt skulu vera, auk eftirlitsaðila, byggingarstjóri og fulltrúi slökkviliðs. Byggingarstjóri skal tilkynna iðnmeisturum og hönnuðum mannvirkisins um framkvæmd lokaúttektar og gefa þeim kost á að vera viðstaddir. Hafi byggingarstjóri vanrækt að óska eftir lokaúttekt innan þeirra tímamarka sem fram koma í 1. mgr. skal útgefandi byggingarleyfis boða til slíkrar úttektar. Einnig getur eigandi mannvirkis óskað eftir að lokaúttekt sé framkvæmd.
Við lokaúttekt skal gerð úttekt á því hvort mannvirkið uppfylli ákvæði laga þessara og reglugerða sem settar hafa verið samkvæmt þeim og hvort byggt hafi verið í samræmi við samþykkt hönnunargögn.
Sé mannvirki ekki fullgert við framkvæmd lokaúttektar, það uppfyllir ekki að öllu leyti ákvæði laga þessara eða reglugerða sem settar hafa verið samkvæmt þeim eða er ekki að öllu leyti í samræmi við samþykkt hönnunargögn getur eftirlitsaðili gefið út vottorð um framkvæmd lokaúttektar með athugasemdum. Þáttum sem varða aðgengi skal þó ávallt hafa verið lokið við framkvæmd lokaúttektar.
Komi í ljós við framkvæmd lokaúttektar að mannvirki uppfyllir ekki öryggis- eða hollustukröfur getur eftirlitsaðili fyrirskipað lokun mannvirkis og lagt fyrir eiganda þess að bæta úr og skal þá lokaúttektarvottorð ekki gefið út fyrr en það hefur verið gert.
36. gr.
Aðgangur að mannvirki.
Uppdrættir, samþykktir og áritaðir af útgefanda byggingarleyfis, ásamt útgefnu byggingarleyfi, skulu ætíð liggja fyrir á byggingarstað og vera eftirlitsmönnum aðgengilegir.
Liggi rökstuddur grunur fyrir um að fullbyggðu mannvirki sé verulega áfátt með tilliti til ákvæða laga og reglugerða um byggingarmál skal eftirlitsaðila heimill aðgangur þar til eftirlits. Eigi er þó heimilt að fara í þessum tilgangi inn í íbúðarhús án samþykkis eiganda eða umráðamanns húsnæðisins nema að fengnum úrskurði dómara.
VIII. KAFLI
Gjaldtaka og leyfisgjöld.
37. gr.
Byggingaröryggisgjald.
Þeir sem innheimta byggingaröryggisgjaldið skulu hafa staðið ríkissjóði skil á gjaldinu innan þriggja mánaða frá innheimtu þess. Endanlegt uppgjör gjaldsins fyrir hvert ár fer fram þegar ársreikningar þeirra sem annast innheimtu þess liggja fyrir.
Ráðherra setur nánari reglur um innheimtu byggingaröryggisgjalds í reglugerð.
38. gr.
Gjaldskrá vegna byggingareftirlits byggingarfulltrúa.
39. gr.
Gjaldskrá Byggingarstofnunar.
40. gr.
Greiðsla gjalda.
Vanskil á greiðslu gjalda skv. 1. mgr. veitir byggingarfulltrúa og Byggingarstofnun heimild til að neita að gefa út vottorð um viðkomandi mannvirki.
Gjöldum skv. 38. og 39. gr. fylgir lögveð í viðkomandi fasteign eða lóð og má innheimta gjaldfallin gjöld með fjárnámi.
IX. KAFLI
Rannsóknir, þvingunarúrræði og viðurlög.
41. gr.
Rannsóknir á tjóni á mannvirkjum.
Eigandi mannvirkis sem verður fyrir tjóni sem fellur undir 1. mgr. skal tilkynna það til Byggingarstofnunar svo fljótt sem unnt er. Byggingarstofnun getur hafið rannsókn að eigin frumkvæði vanræki eigandi að tilkynna um tjónið.
Byggingarstofnun rannsakar vettvang þegar eftir að tjón hefur verið tilkynnt, eftir atvikum með aðstoð lögreglu ef um er að ræða slys sem sætir lögreglurannsókn samkvæmt lögum um meðferð opinberra mála. Byggingarstofnun skal fá afrit af öllum rannsóknargögnum lögreglu að lokinni lögreglurannsókn, hafi hún farið fram. Byggingarstofnun kveður til sérfróða menn vegna rannsóknarinnar eftir því sem þörf krefur.
Vátryggingafélög skulu senda Byggingarstofnun upplýsingar ár hvert um bætt tjón á mannvirkjum.
42. gr.
Stöðvun framkvæmda, lokun mannvirkis o.fl.
Ef byggingarframkvæmd er hafin án þess að leyfi sé fengið fyrir henni eða hún brýtur í bága við skipulag getur byggingarfulltrúi eða eftir atvikum Byggingarstofnun, ef mannvirkið fellur undir 3. mgr. 8. gr., krafist þess að hið ólöglega mannvirki eða byggingarhluti sé fjarlægt, jarðrask afmáð eða starfsemi hætt. Sinni eigandi ekki þeirri kröfu er heimilt að framkvæma slíkar aðgerðir á hans kostnað.
Ef þörf krefur er lögreglu skylt að aðstoða byggingarfulltrúa og Byggingarstofnun við þær aðgerðir er greinir í 1.–2. mgr.
Reynist öryggi mannvirkis ábótavant við öryggis- eða lokaúttekt þess eða það telst skaðlegt heilsu skal útgefandi byggingarleyfis fyrirskipa lokun þess og koma í veg fyrir að mannvirkið verið tekið í notkun fyrr en úr hefur verið bætt.
Sveitarfélag eða eftir atvikum ríkið á endurkröfu á eiganda mannvirkis á kostnaði sem það hefur haft af ólöglegri mannvirkjagerð og á lögveð fyrir kröfu sinni í öllu efni sem notað hefur verið við byggingarframkvæmdina.
43. gr.
Aðgerðir til að knýja fram úrbætur.
Byggingarstofnun og byggingarfulltrúa er heimilt að beita dagsektum allt að 500.000 kr. til að knýja menn til framkvæmda á ráðstöfunum sem þeim er skylt að hlutast til um samkvæmt lögum þessum og reglugerðum eða láta af atferli sem er ólögmætt. Dagsektir sem byggingarfulltrúi leggur á renna í sveitarsjóð en í ríkissjóð ef þær eru lagðar á af Byggingarstofnun.
Byggingarfulltrúi og Byggingarstofnun geta látið vinna verk, sem þau hafa lagt fyrir að unnið skyldi, á kostnað þess sem vanrækt hefur að vinna verkið.
Dagsektir og kostnað skv. 1. og 2. mgr. má innheimta með fjárnámi.
44. gr.
Áminning og missir löggildingar eða starfsleyfis.
Byggingarstofnun getur svipt byggingarstjóra starfsleyfi ef hann uppfyllir ekki lengur skilyrði fyrir leyfisveitingu. Sama á við ef byggingarstjóri brýtur ákvæði laga, reglugerða eða samþykkta um skipulags- og byggingarmálefni, vanrækir hlutverk sitt og skyldur eða sýnir af sér ítrekaða eða alvarlega óvarkárni í starfi.
Byggingarfulltrúi sem verður áskynja um brot hönnuðar, byggingarstjóra eða iðnmeistara samkvæmt þessari grein skal tilkynna um það til Byggingarstofnunar.
45. gr.
Refsiábyrgð.
X. KAFLI
Ýmis ákvæði.
46. gr.
Úrskurðir.
Rísi ágreiningur milli Byggingarstofnunar og sveitarfélags eða byggingarfulltrúa um framkvæmd laganna, sem ekki fellur undir 2. mgr. 16. gr., skal vísa málinu til fullnaðarúrskurðar ráðherra.
47. gr.
Setning reglugerða.
1. Kröfur sem gera skal til hönnunar og mannvirkja um útlit, rýmisstærðir og samsvörun við næsta umhverfi, hagkvæmni og notagildi, aðgengi, öryggi, heilnæmi, tæknilegan frágang og viðhald, auk krafna um gróður og frágang lóða, þ.m.t. girðingar. Einnig lágmarkskröfur sem einstakir hlutar mannvirkja og mismunandi tegundir þeirra skulu uppfylla, svo sem varðandi undirstöður, byggingarefni, burðarþol, einangrun gegn kulda, raka og hávaða, loftgæði, hljóðvist, birtu, lagnakerfi, hollustuhætti, brunavarnir og þess háttar. Jafnframt skal kveða á um kröfur til mannvirkja við verulegar breytingar á þeim eða breytingar á notkun mannvirkis. Í reglugerð er heimilt að vísa til staðla, sem Staðlaráð Íslands hefur staðfest eða sett, um tæknilega útfærslu eða annað sem snýr að mannvirkjum, eða til ákvæða og skuldbindinga sem fylgja aðild Íslands að alþjóðasamningum.
2. Hönnunargögn, byggingarlýsingar, skýrslur um innra og ytra eftirlit, greinargerðir og önnur gögn er skila þarf vegna umsóknar um byggingarleyfi. Í reglugerð skal kveða á um kröfur til hönnunargagna mismunandi mannvirkja og skiptingu uppdrátta í aðal-, sér- og deiliuppdrætti. Ákvæði um hvaða hönnunargögnum skal skilað vegna sérhæfðra mannvirkja, svo sem virkjana, fráveitumannvirkja, dreifi- og flutningskerfa rafveitna, hitaveitna, vatnsveitna og fjarskipta, og til hvaða þátta eftirlit útgefanda byggingarleyfis skal taka til.
3. Framkvæmd innra eftirlits við byggingarframkvæmdir og þær kröfur sem gerðar eru til gæðakerfa hönnuða, samræmingaraðila, byggingarstjóra og iðnmeistara. Ráðherra getur með reglugerð ákveðið að gæðastjórnunarkerfi þessara aðila skuli vottuð af faggiltri vottunarstofu. Heimilt er að gera mismunandi kröfur til gæðakerfa samkvæmt lögum þessum eftir gerð mannvirkis.
4. Framkvæmd námskeiðahalds og prófs fyrir hönnuði skv. 25. gr. og lágmarksárangur til að standast það.
5. Nánari ákvæði um útgáfu starfsleyfis byggingarstjóra, flokkun starfsleyfa eftir gerð mannvirkja, framkvæmd námskeiðs, auk ákvæða um starfshætti, ábyrgð og verksvið byggingarstjóra, sbr. 26.–30. gr.
6. Skilyrði fyrir útgáfu starfsleyfa faggiltra skoðunarstofa, sbr. 19. gr., gildistíma starfsleyfis, starfsemi skoðunarstofa, hæfi skoðunarmanna, sbr. 20. gr., og hvaða þáttum byggingareftirlits skoðunarmönnum I–III er heimilt að sinna eftir gerð og umfangi mannvirkis og eftir því hvort um er að ræða yfirferð hönnunargagna eða framkvæmd úttekta.
7. Úttektarskyldu, framkvæmd áfangaúttekta, öryggisúttektar og lokaúttektar, þar sem m.a. er kveðið á um þau gögn sem leggja þarf fram vegna þeirra.
8. Staðsetningu, gerð og frágang skilta.
9. Skilyrði fyrir veitingu stöðuleyfa fyrir gáma, báta, torgsöluhús, stór samkomutjöld o.þ.h. sem ætlað er að standa utan skipulagðra svæða í lengri tíma en tvo mánuði. Í reglugerð skal kveðið á um atriði er varða öryggi og hollustuhætti vegna þessara lausafjármuna og um heimildir byggingarfulltrúa til þess að krefjast þess að þeir séu fjarlægðir ef ekki eru uppfyllt ákvæði reglugerðarinnar.
10. Ákvæði um frágang leiksvæða, íþróttasvæða og annarra opinna svæða.
11. Miðlægan gagnagrunn Byggingarstofnunar, hvað skal skrá þar og með hvaða hætti. Skoðunarhandbók skal vera hluti af miðlægum gagnagrunni Byggingarstofnunar og skal birt sem fylgiskjal við reglugerð. Í skoðunarhandbókinni skulu m.a. vera ákvæði um framkvæmd úttekta, eftirlitsaðferðir, skoðunaráætlanir og mismunandi eftirlitsstörf.
12. Nánari ákvæði um framkvæmd byggingareftirlits og verksvið byggingarfulltrúa og Byggingarstofnunar.
13. Nánari ákvæði um beitingu þvingunarúrræða skv. 42.–44. gr.
14. Ákvæði um skráningu, eftirlit og umsjón með lyftum og lyftubúnaði til fólks- og vöruflutninga og togbrautarbúnaði til fólksflutninga.
48. gr.
Miðlægur gagnagrunnur Byggingarstofnunar.
49. gr.
Um yfirstjórn byggingarmála á varnar- og öryggissvæðum.
Ákvæði laga þessara og reglugerða settra samkvæmt þeim eiga við um byggingarmál á varnar- og öryggissvæðum, sbr. þó ákvæði 2. mgr. 5. gr. laga nr. 176/2006. Byggingarstofnun, í umboði utanríkisráðherra, gefur út byggingar- og framkvæmdaleyfi og hefur eftirlit með mannvirkjagerð og öðrum leyfisskyldum framkvæmdum á öryggissvæði og varnarsvæðum utan Keflavíkurflugvallar. Gerður skal þjónustusamningur milli Byggingarstofnunar og utanríkisráðherra um framkvæmd byggingareftirlits stofnunarinnar samkvæmt þessari grein. Um skipulag á varnar- og öryggissvæðum gilda ákvæði skipulagslaga.
Umhverfisráðherra setur nánari ákvæði um framkvæmd þessarar greinar í reglugerð að höfðu samráði við samgönguráðherra og utanríkisráðherra. Heimilt er í reglugerð að gera sérstakar kröfur til mannvirkja á varnar- og öryggissvæðum í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands.
50. gr.
Þagnar- og trúnaðarskylda.
Upplýsingar og tilkynningar eftirlitsaðila til fjölmiðla skulu vera efnislega rökstuddar og þess gætt að einstakar atvinnugreinar, stofnanir eða fyrirtæki bíði ekki tjón og álitshnekki að ástæðulausu.
51. gr.
Gildistaka.
Ákvæði til bráðabirgða.
2. Byggingarstofnun og byggingarfulltrúar hafa frest til 1. janúar 2013 til að afla sér faggildingar í samræmi við ákvæði 18. gr., sbr. 20. gr. Fyrir 1. janúar 2010 skulu Byggingarstofnun og byggingarfulltrúar hafa komið sér upp gæðastjórnunarkerfi. Hafi gæðastjórnunarkerfi byggingarfulltrúa ekki hlotið vottun faggiltrar vottunarstofu skal Byggingarstofnun til 1. janúar 2013 gera úttektir á gerð og virkni gæðastjórnunarkerfanna. Byggingarfulltrúar og starfsmenn þeirra sem eru starfandi við gildistöku laga þessara skulu teljast uppfylla skilyrði a–c-liða 1. mgr. 20. gr.
3. Þeir hönnuðir sem öðlast höfðu, með löggildingu umhverfisráðherra eða með öðrum hætti, rétt til að leggja fram uppdrætti vegna byggingarleyfisumsóknar í gildistíð eldri laga halda þeim rétti sínum. Þeir skulu enn fremur teljast uppfylla kröfur um hliðstæða löggildingu Byggingarstofnunar skv. b- og c-lið 1. mgr. 20. gr. og 4. mgr. 27. gr. laga þessara.
4. Iðnmeistarar sem fengið höfðu viðurkenningu byggingaryfirvalda eða löggildingu umhverfisráðherra í gildistíð eldri laga til að bera ábyrgð á einstökum verkþáttum mannvirkjagerðar hver á sínu sviði halda þeim rétti. Þeir skulu enn fremur teljast uppfylla kröfur um löggildingu Byggingarstofnunar skv. a-lið 1. mgr. 20. gr. og 2. mgr. 27. gr. laga þessara.
5. Hafi þeir aðilar, sem taldir eru upp í 24. gr., þegar við gildistöku laga þessara lokið hluta reynslutíma sem nauðsynlegur er samkvæmt núgildandi lögum til að öðlast löggildingu skulu þeir eiga kost á að ljúka honum eftir eldri reglum.
6. Þeir aðilar sem sannanlega hafa tekið að sér byggingarstjórn mannvirkis í gildistíð eldri laga teljast uppfylla skilyrði 2.–3. mgr. 27. gr. og mega því annast byggingarstjórn þeirra mannvirkja sem falla undir 1. og 3. tölul. 4. mgr. 26. gr. laga þessara. Til að starfa sem byggingarstjórar samkvæmt ákvæðum laga þessara skulu þeir hafa viðeigandi gæðastjórnunarkerfi og afla sér starfsleyfis Byggingarstofnunar.
7. Þrátt fyrir ákvæði 5. tölul. 2. mgr. 12. gr. hafa hönnuðir, samræmingaraðilar, byggingarstjórar og iðnmeistarar frest til 1. janúar 2010 til að uppfylla ákvæði 4. mgr. 22. gr., 29. gr. og 6. mgr. 30. gr. um gæðastjórnunarkerfi.
8. Sé virkt ytra eftirlit óháðra aðila á vegum eiganda með hönnun og framkvæmdum vegna mannvirkja sem falla undir a- og b-lið 3. mgr. 8. gr. eða 3. mgr. 12. gr. getur leyfisveitandi til 1. janúar 2014 heimilað að það komi að hluta til eða öllu leyti í stað opinbers eftirlits samkvæmt lögum þessum, enda uppfylli skoðunarmenn viðkomandi eftirlitsaðila hæfniskröfur 20. gr. eftir eðli framkvæmdarinnar og eftirlitsaðilinn hafi gæðastjórnunarkerfi sem útgefandi byggingarleyfis telur fullnægjandi. Eigandi mannvirkisins skal reglulega gera leyfisveitanda skriflega grein fyrir framkvæmd og niðurstöðum eftirlitsins þegar þessi heimild er nýtt.
9. Starfsmenn Brunamálastofnunar, Skipulagsstofnunar og Vinnueftirlits ríkisins sem vinna að þeim verkefnum sem færast þann 1. janúar 2009 til Byggingarstofnunar skulu eiga forgangsrétt til starfa hjá Byggingarstofnun. Ákvæði 7. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, gilda ekki um störf sem ráðið er í samkvæmt þessum tölulið.
10. Fram til 1. janúar 2012 skal Neytendastofa annast eftirlit með neysluveitum rafmagns og raflagnabúnaði sem telst til fasts búnaðar mannvirkis samkvæmt þjónustusamningi við Byggingarstofnun. Fyrir 1. janúar 2012 skal endurskoða þessa framkvæmd eftirlitsins í ljósi fenginnar reynslu.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
1. Almennt um undirbúning og gerð frumvarpsins.
Vorið 2002 ákvað umhverfisráðuneytið að ráðast í heildarendurskoðun skipulags- og byggingarlaga, nr. 73/1997, með síðari breytingum. Ákveðið var við endurskoðunina að taka mið af reynslu af framkvæmd gildandi laga og að ákvæði laganna um skipulagsmál yrðu sett í sérstök lög, skipulagslög, og ákvæði um byggingar og brunavarnir í sérstök lög, byggingarlög. Jafnframt að við endurskoðun ákvæða laganna um byggingarmál yrði tekið á eftirliti með byggingarvörum á markaði, réttindamálum iðnmeistara og stofnun sérstakrar stofnunar þar sem byggingarmál og brunavarnir yrðu vistaðar. Í samræmi við ákvæði til bráðabirgða IV í lögum nr. 75/2000, um brunavarnir, skyldi endurskoðunin enn fremur taka til laga um brunavarnir með það fyrir augum að sameina réttarheimildir um byggingar og önnur mannvirki til að einfalda framkvæmd þeirra, þar með að heimila notkun skoðunarstofa í eftirliti með gerð og viðhaldi bygginga og annarra mannvirkja.
Í ofangreindu skyni ákvað ráðuneytið að skipa tvær nefndir til þess að endurskoða skipulags- og byggingarlög, annars vegar um skipulagsþáttinn og hins vegar um byggingarþáttinn. Nefndunum var ætlað að hafa náið samráð varðandi tillögugerð og ákveðið að frumvörp til breyttra laga yrðu lögð fram samtímis á Alþingi.
Í nefnd um endurskoðun byggingarlagaþáttarins áttu sæti: Ingimar Sigurðsson, skrifstofustjóri umhverfisráðuneytinu, formaður, Ingibjörg Halldórsdóttir, lögfræðingur í umhverfisráðuneytinu, Smári Þorvaldsson, deildarstjóri í umhverfisráðuneytinu, Ágúst Þór Jónsson verkfræðingur, tilnefndur af forsætisráðuneyti, Eyjólfur Bjarnason tæknifræðingur, tilnefndur af Samtökum iðnaðarins, Magnús Sædal byggingarfulltrúi, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga, og Björn Karlsson brunamálastjóri, tilnefndur af Brunamálastofnun.
Nefndinni var ætlað að hafa náið samráð við eftirtalda aðila við gerð frumvarpsins: Ólaf K. Guðmundsson byggingarfulltrúa, tilnefndan af Félagi byggingarfulltrúa, Baldur Þór Baldursson húsasmíðameistara, tilnefndan af Meistarafélagi húsasmíða, Sigmund Eyþórsson slökkviliðsstjóra, tilnefndan af Félagi slökkviliðsstjóra á Íslandi, Stefán Thors skipulagsstjóra, tilnefndan af Skipulagsstofnun, Jón Sigurjónsson, yfirverkfræðing hjá Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, tilnefndan af iðnaðarráðuneyti, Hauk Ingibergsson forstjóra, tilnefndan af Fasteignamati ríkisins, Kristján Sveinsson verkfræðing, tilnefndan af félagi ráðgjafarverkfræðinga, Guðjón Bragason skrifstofustjóra, tilnefndan af félagsmálaráðuneyti, og Guðmund Magnússon, tilnefndan af Öryrkjabandalagi Íslands.
Á árinu 2001 áttu sér stað viðræður milli iðnaðar- og viðskiptaráðuneytis og umhverfisráðuneytis um að reglugerð nr. 431/1994, um viðskipti með byggingarvörur, sem iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið setti til þess að uppfylla skyldur sem Ísland tók á sig með samningum um Evrópska efnahagssvæðið, yrði færð yfir til umhverfisráðuneytisins og undir skipulags- og byggingarlög. Ráðuneytin ákváðu í framhaldinu að tekið yrði á málinu við endurskoðun laganna og lagði nefndin til að reglugerðin færðist undir ný lög og yrði viðfangsefni nýrrar stofnunar, Byggingarstofnunar. Enn fremur varð að samkomulagi við félagsmálaráðuneytið að aðgengismál yrðu sérstakt verkefni nýrra byggingarlaga. Ekki náðist samkomulag um það við iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið eftir að nefndin lauk störfum að eftirlit með byggingarvörum á markaði og ábyrgð á innleiðingu tilskipunar ráðsins 93/68/EB um viðskipti með byggingarvörur yrði færð úr höndum iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Neytendastofu eins og nefndin lagði til. Þess vegna er í frumvarpinu ekki gerð tillaga um þennan þátt málsins.
Á starfstíma nefndarinnar komu fram þau sjónarmið að ástæða væri til þess að ný byggingarlög fjölluðu um öll mál er vörðuðu öryggi bygginga. Endurskoðunarnefndin kynnti sérstaklega fyrir umhverfisráðuneyti og iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti þau áform að leggja til að rafmagnsöryggismál í byggingum ættu að falla undir lög um byggingarmál en þau eru vistuð í iðnaðar- og viðskiptaráðuneyti og falla undir starfsemi Neytendastofu, áður Löggildingarstofu. Samkvæmt gildandi lögum er eftirlit með rafmagnsöryggi í mannvirkjum bæði í höndum byggingarfulltrúa og rafmagnsöryggisdeildar Neytendastofu og skilin milli þessara tveggja eftirlitsaðila ekki alltaf skýr. Ein birtingarmynd þessa tvöfalda kerfis hefur falist í því að rafvirkjameistarar hafa þurft tvenns konar löggildingar til starfa sinna, annars vegar löggildingu umhverfisráðherra að grundvelli skipulags- og byggingarlaga og hins vegar löggildingu Neytendastofu á grundvelli laga nr. 146/1996, um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga, og hafa fagfélög ítrekað kvartað yfir þessu fyrirkomulagi. Nefndin taldi því nauðsynlegt að rafmagnseftirlit yrði sameinað undir einu ráðuneyti og einni stofnun í því skyni að tryggja skilvirkni og koma í veg fyrir að byggingariðnaðurinn sætti tvöföldu eftirliti. Niðurstaðan af samráði við iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið eftir að nefndin lauk störfum var sú að Byggingarstofnun hefði ábyrgð á eftirliti með rafmagnsöryggi í mannvirkjum en Neytendastofa annaðist eftirlit með neysluveitum rafmagns og raflagnabúnaði sem telst til fasts búnaðar mannvirkis í umboði Byggingarstofnunar. Fyrir 1. janúar 2012 skal endurskoða þessa framkvæmd eftirlitsins í ljósi fenginnar reynslu.
Nefndin benti enn fremur á að nauðsynlegt væri í mannvirkjakafla byggingarlaga að fleiri mannvirki yrðu sett undir byggingarleyfisskyldu en nú er. Skv. 36. gr. gildandi skipulags- og byggingarlaga taka ákvæði mannvirkjakafla laganna til hvers konar byggingar ofan jarðar og neðan og eru síðan talin upp mannvirki sem undanþegin eru byggingarleyfi og þar með afskiptum byggingarnefnda og byggingarfulltrúa. Þar er um að ræða götur, holræsi, vegi og brýr, aðrar en göngubrýr í þéttbýli, jarðgöng, flugbrautir, dreifi- og flutningskerfi rafveitna, hitaveitna, vatnsveitna og fjarskipta, svo og hafnir og virkjanir enda séu þær framkvæmdir á vegum opinberra aðila eða unnar samkvæmt sérlögum. Þó þarf byggingarleyfi fyrir varanlegum húsbyggingum sem reistar eru í tengslum við þessar framkvæmdir, þ.e. byggingar sem ekki eru varanlegar, svo sem starfsmannahús og starfsmannabúðir á hálendinu í tengslum við virkjunarframkvæmdir, eru undanþegnar kröfu um byggingarleyfi og þar með undanþegnar eftirliti byggingarfulltrúa. Nefndin telur nauðsynlegt að færa þessar framkvæmdir, að vegum og götum frátöldum, undir byggingarleyfisskyldu, ekki síst þar sem þessar framkvæmdir eru í æ ríkari mæli unnar af öðrum en opinberum aðilum, en það var meginástæða þess að þær voru undanskildar byggingarleyfisskyldu á sínum tíma. Yrði það þá hlutverk Byggingarstofnunar að veita slík byggingarleyfi enda um meiri háttar framkvæmdir að ræða sem þarfnast sérhæfingar og mikillar þekkingar af hálfu eftirlitsaðila.
Aðrir þættir sem endurskoðunarnefnd byggingarlagaþáttarins tók sérstaklega fyrir eru verkefni sem nú eru á vegum Vinnueftirlits ríkisins og varða eftirlit með lyftum og uppsetningu þeirra. Þessi atriði voru sérstaklega rædd við félagsmálaráðuneytið. Telur nefndin eðlilegt að þessi þáttur mannvirkja falli eins og aðrir undir ný lög um mannvirki enda enginn munur á þessum tæknibúnaði og öðrum sem settur er upp í mannvirkjum og lýtur byggingareftirliti samkvæmt gildandi lögum.
Endurskoðunarnefnd byggingarlagaþáttarins hefur því í störfum sínum, auk þeirra atriða sem henni var sérstaklega falið að fjalla um í skipunarbréfi, fjallað um aðgengismál, rafmagnsöryggismál, eftirlit með lyftum og lyftubúnaði, auk útvíkkunar mannvirkjakafla gildandi laga og gerir tillögur um að þessir þættir falli undir ný byggingarlög og starfsemi Byggingarstofnunar og byggingarfulltrúa eftir því hvert umfang framkvæmdanna er.
Í störfum sínum leitaðist nefndin við að kljúfa sem gleggst á milli þeirra ákvæða sem annars vegar eiga að vera í skipulagslögum og hins vegar í byggingarlögum og sendi hugmyndir sínar til nefndar sem sérstaklega var falið að endurskoða skipulagsþátt laganna, sbr. það sem segir hér á undan. Byggist þetta fyrst og fremst á því að framkvæmd byggingarlaga sé tæknilegs eðlis en skipulagslög eru í eðli sínu bundin mótun stefnu um landnotkun.
Nefndin taldi nauðsynlegt að þannig yrði frá nýjum byggingarlögum gengið að um væri að ræða heildarlöggjöf sem tæki til allra öryggisþátta bygginga þannig að ákvæði þar að lútandi væri að finna í einum lögum, undir einu ráðuneyti, umhverfisráðuneyti, og einni stofnun, Byggingarstofnun, og byggingarfulltrúum sveitarfélaganna. Eftirlit með einstökum þáttum á að vera hægt að fela faggiltum aðilum og skoðunarstofum, jafnt opinberum sem og á almennum markaði, en ábyrgðin á eftirlitinu yrði eigi að síður í höndum byggingarfulltrúa og Byggingarstofnunar eftir atvikum.
Endurskoðunarnefnd byggingarlaga lauk störfum í mars 2006 eftir að hafa fengið athugasemdir þeirra aðila sem henni var falið að ráðfæra sig við auk nokkurra annarra aðila og sendi umhverfisráðherra tillögur sínar í formi frumvarps til laga um mannvirki ásamt athugasemdum við lagafrumvarpið og við einstaka greinar ásamt fylgiskjölum.
Endurskoðunarnefnd skipulagslaga skilaði um svipað leyti tillögum sínum til umhverfisráðherra. Umhverfisráðuneytið taldi með hliðsjón af eðli þessara frumvarpa og hversu hagsmuni margra þau varða rétt að senda þau til víðtækrar umsagnar og voru þau í því skyni þann 30. júní 2006 send 159 aðilum, þar á meðal öllum sveitarfélögum landsins. Gefinn var kostur á að gera athugasemdir við frumvörpin fyrir 15. ágúst 2006. Jafnframt kynnti ráðuneytið frumvörpin í fjölmiðlum og á heimasíðu sinni og var almenningi gefinn kostur á að gera athugasemdir við efni þeirra. Ráðuneytið fór vandlega yfir allar athugasemdir sem því bárust og voru gerðar breytingar á frumvörpunum m.a. vegna þeirra.
2. Saga löggjafar um byggingarmálefni á Íslandi.
Fyrstu heildarlög um byggingarmálefni sem náðu til landsins alls tóku gildi 1. janúar 1979, sbr. byggingarlög nr. 54/1978. Fram að þeim tíma höfðu gilt mismunandi reglur í þéttbýli og dreifbýli, bæði að því er varðaði stjórn og meðferð byggingarmála og einnig þær kröfur sem gerðar voru til bygginga. Um byggingarmálefni í þéttbýli giltu ákvæði laga nr. 19/1905, um byggingarsamþykktir fyrir verslunarstaði og aðra skipulagsskylda staði, og lög nr. 61/1944, um byggingarmálefni Reykjavíkur. Auk ákvæða um stjórn og meðferð byggingarmála voru í byggingarsamþykktum ákvæði um gerð uppdrátta og bygginga. Árið 1967 gaf félagsmálaráðuneytið, sem þá fór með yfirstjórn málaflokksins, út fyrirmynd að byggingarsamþykktum fyrir löggilta verslunarstaði og aðra skipulagsskylda staði og settu fjölmörg sveitarfélög sér byggingarsamþykktir að þeirri fyrirmynd. Um byggingarmálefni í dreifbýli giltu hins vegar, fyrir setningu laga nr. 54/1978, lög nr. 108/1945, um byggingarsamþykktir fyrir sveitir og þorp, sem ekki eru löggiltir verzlunarstaðir. Samkvæmt þeim lögum skyldu sýslunefndir setja byggingarsamþykktir fyrir hlutaðeigandi sýslu og gerðu flestar sýslunefndir það. Í byggingarsamþykktum sýslnanna voru hins vegar nær eingöngu ákvæði um stjórn og meðferð byggingarmála en ákvæði um tæknileg atriði skorti.
Í athugasemdum sem fylgdu frumvarpi til þeirra byggingarlaga sem tóku gildi í ársbyrjun 1979 kemur fram að bein lagaákvæði um byggingarmálefni séu orðin gömul og að mörgu leyti úrelt auk þess sem æskilegt sé að sömu lög gildi fyrir landið allt. Sum ákvæði laga nr. 54/1978 áttu sér fyrirmyndir í hinum staðbundnu byggingarsamþykktum en í öðrum tilvikum var um nýmæli að ræða. Í lögunum var í fyrsta sinn kveðið á um setningu byggingarreglugerðar fyrir landið allt þar sem sett yrðu ítarleg ákvæði um hin ýmsu tæknisvið byggingarmála, hliðstæð þeim sem áður var að finna í byggingarsamþykktum einstakra sveitarfélaga. Í lögunum voru einnig ákvæði um stjórn byggingarmála, um starfsemi byggingarnefnda og byggingarfulltrúa, kröfur um menntun, reynslu og landslöggildingu þeirra sem gera máttu uppdrætti af húsum og öðrum mannvirkjum, bæði aðal- og séruppdrætti. Þeir hönnuðir sem fengið höfðu staðbundna viðurkenningu samkvæmt staðbundnum byggingarsamþykktum til að leggja uppdrætti fyrir byggingarnefnd héldu þeim rétti.
Í lögum nr. 54/1978 voru enn fremur ný ákvæði um byggingarstjóra en samkvæmt eldri byggingarsamþykkt Reykjavíkur og flestum byggingarsamþykktum á skipulagsskyldum þéttbýlisstöðum veittu byggingarnefndir húsasmíðameisturum og múrarameisturum löggildingu til að hafa umsjón með og bera ábyrgð á byggingarframkvæmdum. Við hverja byggingarframkvæmd þurfti tvo löggilta meistara til að standa fyrir framkvæmdinni og bera ábyrgð á byggingarframkvæmdum. Í dreifbýli gátu byggingarnefndir veitt einum byggingarmeistara (húsasmíðameistara eða múrarameistara) réttindi til að standa fyrir byggingarframkvæmdum og var sá meistari þá einn ábyrgur fyrir öllu verkinu samkvæmt því sem segir í greinargerð með frumvarpi til laga nr. 54/1978. Af ummælum í greinargerðinni má ráða að uppruna byggingarstjóraákvæðanna megi rekja til framangreindra ákvæða um ábyrgð iðnmeistara og að einn eða tveir slíkir bæru ábyrgð á hverju verki. Í nefndaráliti neðri deildar Alþingis með frumvarpi til byggingarlaga segir að ólíkar hugmyndir hafi verið uppi um það hvað fælist í hugtakinu byggingarstjóri samkvæmt frumvarpinu. Taldi nefndin að staða byggingarstjóra sem framkvæmdastjóra væri ekki réttindastaða sem menn fengju í eitt skipti fyrir öll með löggildingu, heldur næði viðurkenning byggingarnefndar á byggingarstjóra afmarkaðrar framkvæmdar aðeins til gerðar hvers mannvirkis út af fyrir sig sem byggingarleyfi væri veitt fyrir. Segja má að þetta fyrirkomulag hafi haldist allar götur síðan. Í meðförum þingsins árið 1978 breyttust ákvæðin um byggingarstjórana þannig að einungis var um heimild að ræða en ekki skyldu til að ráða byggingarstjóra að verki. Hins vegar þurftu viðkomandi iðnmeistarar, í fyrstu aðeins húsasmíðameistarar og múrarameistarar, en síðar einnig aðrir iðnmeistarar, að undirrita yfirlýsingu um ábyrgð sína á verki áður en byggingarleyfi var gefið út. Í framkvæmd var byggingarstjóraheimildin lítið notuð.
Á 121. löggjafarþingi 1996 var lagt fram frumvarp til skipulags- og byggingarlaga sem unnið var í umhverfisráðuneytinu í samvinnu við Samband íslenska sveitarfélaga og Skipulag ríkisins. Byggðist frumvarpið á frumvörpum um sama efni sem lögð voru fram á Alþingi á 113. löggjafarþingi 1990–1991 og 115. löggjafarþingi 1991–1992 og 118. löggjafarþingi 1994–1995 og náðu ekki fram að ganga. Sveitarfélögin í landinu kölluðu sérstaklega eftir endurskoðun laganna m.a. með það fyrir augum að einfalda meðferð mála á þessu sviði þannig að þau væru á ábyrgð sveitarfélaganna í ríkari mæli en verið hafði og þá aðallega hvað varðaði skipulagshlutann. Ákveðið var að sameina skipulags- og byggingarlög í einum lagabálki til hagræðis. Við heildarendurskoðun laganna og setningu sameiginlegra skipulags- og byggingarlaga var þó fyrst og fremst tekið á skipulagsþættinum. Ákvæði laganna um mannvirkjagerð og stjórnsýslu byggingarmála byggðust að mestu leyti á ákvæðum byggingarlaganna frá 1978 þó að gerðar væru lítils háttar breytingar og lagagrunnur stjórnsýslunnar styrktur í nokkrum tilvikum. Sett var á fót sérstök úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála sem var nýmæli. Önnur nýmæli laganna frá árinu 1998 voru að sett var að skilyrði að við gerð hvers mannvirkis skyldi vera einn ábyrgur aðili, byggingarstjóri, en eins og áður segir var samkvæmt eldri lögum aðeins um heimild að ræða. Kröfur laganna um hönnunargögn og löggildingu hönnuða voru styrkt og ný ákvæði sett um sérstaka samræmingar- og prófhönnuði. Ábyrgðartrygging hönnuða og byggingarstjóra var enn fremur gerð að skyldu.
Við umfjöllun umhverfisnefndar Alþingis um frumvarp til skipulags- og byggingarlaga bættist við heimild til handa sveitarstjórn til að fela faggiltri skoðunarstofu yfirferð og samþykkt séruppdrátta. Þessi heimild hefur að vissu marki verið nýtt við embætti byggingarfulltrúans í Reykjavík með ágætum árangri. Í því frumvarpi sem hér er lagt fram er haldið áfram á þessari braut og leitast við að leggja enn betri grunn að notkun faggiltra skoðunarstofa við framkvæmd byggingareftirlits.
Frá gildistöku skipulags- og byggingarlaga, nr. 73/1997, hafa verið gerðar nokkrar breytingar á lögunum en breytingar á byggingarþætti laganna hafa þó verið smávægilegar. Ný byggingarreglugerð tók gildi þann 9. júlí 1998.
3. Reynsla af framkvæmd skipulags- og byggingarlaga, nr. 73/1997.
Framkvæmd skipulags- og byggingarlaga, nr. 73/1997, með síðari breytingum, hvað varðar byggingarþáttinn hefur gengið nokkuð vel en þó eru þar hnökrar sem m.a. byggjast á því að eftirlitið sem rekið er á vegum sveitarfélaganna í um 60 byggingareftirlitsumdæmum hefur ekki verið nægjanlega samræmt og oft með misjöfnum hætti. Helgast það m.a. af því að byggingareftirlitið getur ekki sótt ráðgjöf eða leiðbeiningar til sérstakrar stofnunar þar sem engin byggingarstofnun starfar hér á landi en hennar hlutverk ætti fyrst og fremst að vera að gæta samræmis og hafa yfirumsjón með því að framkvæmdin sé sú sama í landinu öllu. Mannvirkjagerð er stór atvinnugrein á Íslandi sem veltir milljörðum króna á ári hverju og þar ríkir mikil samkeppni. Því er afar mikilvægt að þar sitji allir við sama borð og eftirlitið sé samræmt og fyrirsjáanlegt. Með því að leggja til að sett verði á fót ný og öflug Byggingarstofnun, sem reka mun miðlægan gagnagrunn með skoðunarhandbókum, leiðbeiningum og upplýsingum um allt byggingareftirlit og mannvirkjagerð á landinu, er vonast til að þessi samræming náist.
Mannvirkjagerð er flókið tæknilegt svið sem er í stöðugri þróun. Mannvirki og búnaður þeirra verða sífellt flóknari og þarfnast sérhæfðra kunnáttumanna á mörgum sviðum. Að gerð eins mannvirkis koma margir slíkir aðilar sem þurfa að samræma vinnu sína og á sama tíma gæta þess að allt fari að settum reglum. Undanfarin missiri hafa einkennst af spennu á byggingarmarkaði og sjaldan eða aldrei hefur eins mikið verið byggt á eins stuttum tíma. Heyrst hafa raddir um fleiri galla í mannvirkjum m.a. vegna aukins hraða við byggingarframkvæmdir þó að ekki liggi fyrir neinar rannsóknir sem staðfesta það. Allt þetta kallar á að settar séu skýrar reglur til að tryggja öryggi og heilnæmi mannvirkja, að gerðar séu kröfur um hæfni og öguð vinnubrögð þeirra sem að mannvirkjagerðinni koma og síðast en ekki síst að markvisst og faglegt byggingareftirlit fari fram. Á sama tíma þarf jafnframt að gæta þess að eftirlitið sé einfalt og ekki kostnaðarsamara eða flóknara en þörf krefur og að nýtt séu þau tæki sem tiltæk eru í nútímasamfélagi. Þó að í gildandi lögum hafi verið leitast við að tryggja framangreint þá kalla breyttir tímar á ýmsar breytingar í lagaumhverfi mannvirkjagerðar. Við endurskoðun byggingarþáttar skipulags- og byggingarlaga hefur verið leitast við að mæta framangreindum þörfum m.a. með því að færa stjórnsýslu byggingarmála úr höndum pólitískt kjörinna fulltrúa til byggingarfulltrúa og gera á sama tíma strangar kröfur til faglegrar hæfni þeirra. Annað sem lagt er til og nefnt er hér að framan er að allt eftirlit fari fram í samræmi við ákvæði skoðunarhandbóka sem verða hluti af miðlægum gagnagrunni Byggingarstofnunar. Það eitt og sér ætti að einfalda allt eftirlit, gera það samræmt, markvisst og fyrirsjáanlegt. Það ýtir einnig undir að byggingareftirlit verði í auknum mæli falið faggiltum skoðunarstofum. Að lokum er leitast við að tryggja öguð vinnubrögð þeirra sem að mannvirkjagerðinni koma með því að gera kröfu um að þeir hafi gæðastjórnunarkerfi varðandi þá þætti rekstrar þeirra sem snýr að lögum og reglum um mannvirkjagerð. Slíkt gæðastjórnunarkerfi ættu aðilar að geta nýtt sér sem hluta af því gæðastjórnunarkerfi sem framkvæmdaraðilar eru í auknum mæli farnir að hafa m.a. til að tryggja hagkvæmni og skilvirkni í rekstri.
Samkvæmt gildandi lögum eru gerðar kröfur til menntunar og reynslu byggingarfulltrúa sem og hönnuða, meistara og byggingarstjóra sem allir eru í lykilhlutverki í tengslum við byggingarframkvæmdir. Almennt má segja að ákvæðin um hönnuði hafi virkað vel í framkvæmd fyrir utan það að heimild til að láta löggilta prófhönnuði yfirfara vandasama hönnun hefur ekki verið nýtt og er því í frumvarpi þessu lagt til að þau ákvæði verði felld niður. Hvað varðar ákvæði um byggingarstjóra þá hafa þau ekki alltaf virkað sem skyldi þó að almennt hafi þeirri skyldu verið fylgt eftir að einn byggingarstjóri stýri hverju byggingarleyfisskyldu verki. Bæði hefur hlutverk þeirra að nokkru leyti verið óljóst og deilt hefur verið um umfang ábyrgðar þeirra, en í lögunum segir að þeir beri ábyrgð á að byggt sé í samræmi við samþykkta uppdrætti, lög og reglugerðir. Hefur m.a. verið deilt um stöðu byggingarstjóra gagnvart iðnmeisturum, þ.e. hvort og þá að hvaða marki byggingarstjóri beri ábyrgð á faglegum vinnubrögðum iðnmeistara. Í framkvæmd hefur byggingarstjórn oftar en ekki verið eins konar aukastarf eins af iðnmeisturum verksins. Í frumvarpi þessu er leitast við að skýra hlutverk byggingarstjórans betur og lögð er áhersla á hlutverk hans sem faglegur fulltrúi eiganda mannvirkis, við framkvæmd innra eftirlits og samskipti við hönnuði, iðnmeistara og byggingaryfirvöld. Í frumvarpinu er gengið út frá því að byggingarstjórar starfi sem slíkir í aðalstarfi, a.m.k. þegar um er að ræða umfangsmikla mannvirkjagerð. Þótt gert sé ráð fyrir að iðnmeistarar starfi samkvæmt gildandi lögum og að þeir þurfi löggildingu umhverfisráðherra sem slíkir kemur hvergi fram um hvaða iðnmeistara er að ræða heldur er það útlistað frekar í reglugerð. Eðlilegast er að tekið verði á þessum málum í lögum og er gerð tillaga um það í frumvarpi til nýrra laga um mannvirki.
Í gildandi skipulags- og byggingarlögum er sérstaklega tekið á þvingunarúrræðum og viðurlögum og má segja að þau hafi reynst nokkuð vel sem úrræði til þess að knýja á um framkvæmd þar sem lögum og reglum hefur ekki verið fylgt en misjafnt er hvernig sveitarfélögin hafa nýtt sér þessar heimildir. Þó hefur skort skýr ákvæði um heimildir eftirlitsaðila til að stöðva framkvæmdir og fyrirskipa lokun mannvirkis og er hér lagt til að slíkar heimildir verði lögfestar.
Eitt vandamál tengt framkvæmd núgildandi skipulags- og byggingarlaga varðar svokallaðar stöðu- og lokaúttektir, sem sérstaklega er fjallað um í byggingarreglugerð. Stöðuúttekt er úttekt áður en mannvirki er tekið í notkun og lokaúttekt á að fela í sér úttekt á því að viðkomandi hús sé fullbúið en þessar úttektir fara mjög sjaldan fram í raun. Sérstaklega er tekið á þessum þáttum í frumvarpinu þar sem lagt er til að óheimilt verði að flytja inn í eða taka í notkun mannvirki nema útgefandi byggingarleyfis hafi gefið út vottorð um framkvæmd svokallaðrar öryggisúttektar þar sem farið er yfir öryggisþætti og hollustuhætti bygginga. Einnig eru sett ítarlegri ákvæði um lokaúttektir og m.a. gert ráð fyrir að heimilt sé að gefa út lokaúttektarvottorð með athugasemdum ef mannvirki er ekki fullbúið að öllu leyti en það þarf þó ávallt að uppfylla öryggis- og hollustuháttakröfur og kröfur um aðgengi og frágengi.
4. Helstu nýmæli frumvarpsins.
a. Byggingarstofnun og hlutverk hennar.
Gert er ráð fyrir að nýrri stofnun, Byggingarstofnun, verði komið á fót og að hún taki til starfa 1. júní 2007 og undirbúi gildistöku laganna þann 1. janúar 2009. Við seinna tímamarkið verður Brunamálastofnun lögð niður og verkefni hennar færð undir Byggingarstofnun og ábyrgð á framkvæmd byggingarmála færð frá Skipulagsstofnun til Byggingarstofnunar.
Í frumvarpinu er lagt til að eftirlit með þeim hluta laga nr. 146/1996, um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga, sem varðar neysluveitur og raflagnabúnað í mannvirkjum færist frá Neytendastofu til Byggingarstofnunar og eftirlit með lyftum, sbr. lög nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, færist frá Vinnueftirlitinu til Byggingarstofnunar, sbr. umfjöllun í kafla 1 hér að framan. Þá mun Byggingarstofnun annast aðgengismál.
Gert er ráð fyrir að Byggingarstofnun verði stjórnsýslustofnun sem hafi beint eftirlit með tiltekinni mannvirkjagerð og stuðli að samræmdu byggingareftirliti um allt land, m.a. með gerð leiðbeininga, skoðunarhandbóka og með beinum íhlutunarrétti ef byggingareftirlit sveitarfélaganna er ekki í samræmi við ákvæði laganna. Enn fremur er gert ráð fyrir að stofnunin annist löggildingar hönnuða og iðnmeistara í stað umhverfisráðherra og gefi út starfsleyfi fyrir byggingarstjóra og faggiltar skoðunarstofur á byggingarsviði. Stofnunin skal einnig taka þátt í gerð staðla á sviði byggingarmála.
b. Byggingareftirlit byggingarfulltrúa.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að meginþungi byggingareftirlits í landinu verði áfram í höndum sveitarfélaganna. Þó er gert ráð fyrir þeirri breytingu að byggingarnefndir verði lagðar niður og sveitarstjórnir komi ekki með beinum hætti að stjórnsýslu byggingarmála. Þeirra hlutverk verður að ráða byggingarfulltrúa sem síðan munu sinna útgáfu byggingarleyfa og framkvæmd byggingareftirlits. Í eðli sínu eru byggingarmál tæknileg mál og þess vegna er eðlilegt að framkvæmd þeirra sé í höndum aðila með sérþekkingu á því sviði. Í gildandi lögum hefur verið heimild fyrir sveitarfélög til að einfalda feril byggingarleyfisumsókna og fela byggingarfulltrúa afgreiðslu minni háttar mála. Hafa mörg af stærri sveitarfélögunum nýtt sér þessa heimild og fram hefur komið vilji af þeirra hálfu til að ganga jafnvel enn lengra og fela byggingarfulltrúunum endanlega afgreiðslu stærri mála. Í framkvæmd hefur öll fagleg framkvæmd málaflokksins verið í þeirra höndum.
c. Faggiltar skoðunarstofur – faggilding byggingarfulltrúa og Byggingarstofnunar.
Gert er ráð fyrir að allt byggingareftirlit verði framkvæmt af faggiltum aðila í samræmi við ákvæði skoðunarhandbóka sem Byggingarstofnun býr til. Þetta þýðir að annaðhvort er byggingareftirlit, og þá aðallega yfirferð hönnunargagna og framkvæmd úttekta, framkvæmt af faggiltum skoðunarstofum eða af byggingarfulltrúum sem þá þurfa að hafa fengið faggildingu til að annast slíkt eftirlit. Sama gildir um það beina eftirlit sem Byggingarstofnun mun hafa með höndum. Henni verður annaðhvort heimilt að fela það faggiltum skoðunarstofum eða að annast það sjálf og þarf þá að afla sér faggildingar. Í frumvarpinu eru tiltekin þau hæfnisskilyrði sem aðilar þurfa að uppfylla til að geta öðlast faggildingu og er gert ráð fyrir að þau séu misströng eftir umfangi mannvirkjagerðarinnar.
d. Byggingarleyfisskyldar framkvæmdir.
Samkvæmt 36. gr. núgildandi skipulags- og byggingarlaga taka ákvæði mannvirkjakafla laganna til hvers konar byggingar ofan jarðar og neðan. Síðan eru taldar upp framkvæmdir sem undanþegnar eru byggingarleyfi og þar með afskiptum byggingarnefnda og byggingarfulltrúa en þar er um að ræða götur, holræsi, vegi og brýr, aðrar en göngubrýr í þéttbýli, jarðgöng, flugbrautir, dreifi- og flutningskerfi rafveitna, hitaveitna, vatnsveitna og fjarskipta, svo og hafnir og virkjanir enda séu þær framkvæmdir á vegum opinberra aðila eða unnar samkvæmt sérlögum.
Eins og áður hefur komið fram taldi endurskoðunarnefnd byggingarlaga fulla þörf á að framangreind mannvirki sem nú eru undanþegin byggingarleyfi verði látin sæta byggingareftirliti eins og önnur mannvirkjagerð. Að hennar mati er engin ástæða til að láta stórframkvæmdir vera undanþegnar slíku eftirliti á meðan allar minni háttar framkvæmdir þurfa að lúta því. Sömu öryggissjónarmið og jafnvel meiri hljóta að gilda um þá mannvirkjagerð. Rökin fyrir undanþágunni á sínum tíma fólust í því að um framkvæmdir af hálfu opinberra aðila væri að ræða en í mörgum tilvikum er það ekki reyndin lengur, t.d. eftir nýlega breytingu á raforkulögum þar sem rekstrarumhverfi orkumannvirkja var breytt. Í frumvarpinu er því lagt til að eftirfarandi mannvirki verði háð byggingarleyfi og byggingareftirliti Byggingarstofnunar:
a. Virkjanir og önnur þau mannvirki sem reist eru í tengslum við slíkar framkvæmdir.
b. Fráveitumannvirki eða dreifi- og flutningskerfi rafveitna, hitaveitna, vatnsveitna og fjarskipta sem liggja innan fleiri en eins sveitarfélags.
c. Mannvirki á hafi utan sveitarfélagamarka.
d. Mannvirki á flugvallarsvæði Keflavíkurflugvallar.
e. Mannvirki á varnarsvæðum utan Keflavíkurflugvallar og á öryggissvæði, sbr. 49. gr.
Áfram er gert ráð fyrir að tiltekin mannvirki falli utan gildissviðs laganna, svo sem hafnir, varnargarðar og samgöngumannvirki. Þessi mannvirki og eftirlit með þeim falla undir aðra löggjöf, svo sem vegalög og siglingalög, og því eru þau undanþegin ákvæðum þessara laga.
e. Byggingarlög og skipulagslög aðskilin.
Þar sem ákveðið hefur verið að aðskilja byggingar- og skipulagsþátt skipulags- og byggingarlaga er nauðsynlegt að settar verði skýrar línur um mörk þessara laga. Gert er ráð fyrir að í lögum um mannvirki verði ákvæði er varða tæknilega gerð mannvirkja, sérstaklega varðandi öryggi, heilnæmi og aðgengi. Ákvæði er varða útlit mannvirkja, form og staðsetningu tilheyri hins vegar skipulagslögum.
f. Ábyrgð aðila skýrð.
Í frumvarpinu er lögð á það áhersla að skýra hlutverk og ábyrgð eiganda mannvirkis, hönnuða, byggingarstjóra og iðnmeistara betur en gert er í gildandi lögum. Tekið er fram að hin endanlega ábyrgð sé eigandans en hann ráði til sín fagaðila sem sjái um afmarkaða þætti mannvirkjagerðarinnar og beri ábyrgð gagnvart eiganda. Þeir sjái um innra eftirlit eigandans og beiti gæðastjórnunarkerfum við undirbúning og stjórnun framkvæmda.
Eins og áður er komið fram er leitast við að tryggja öguð vinnubrögð þeirra sem að mannvirkjagerðinni koma með því að gera kröfu um að þeir hafi gæðastjórnunarkerfi varðandi þá þætti rekstrar þeirra sem snýr að lögum og reglum um mannvirkjagerð. Á þetta bæði við um hönnuði, byggingarstjóra og iðnmeistara.
Gert er ráð fyrir því að byggingarstjóri gegni áfram mikilvægu hlutverki við byggingarframkvæmdir, sé faglegur fulltrúi eiganda og sjái um samskipti við yfirvöld, hönnuði, iðnmeistara og aðra sem að mannvirkjagerðinni koma. Leitast er við að skýra nákvæmlega hvert sé hans hlutverk en um það hafa verið nokkuð deildar meiningar hingað til eins og áður segir. Í ljósi þess að byggingarstjóra ber að framkvæma innra eftirlit með því að þeir aðilar sem koma að byggingu mannvirkisins fari að settum reglum þá er lagt til að byggingarstjóri geti ekki samhliða verið hönnuður eða iðnmeistari verksins. Er þetta breyting frá því sem nú er og er hún talin nauðsynleg til að koma í veg fyrir að mönnum sé ætlað að hafa eftirlit með sjálfum sér. Eina undantekningin frá þessu er ef um er að ræða minni háttar mannvirkjagerð til eigin nota eiganda. Þá getur eigandi óskað eftir að einn af iðnmeisturum eða hönnuðum verksins taki að sér byggingarstjórn þess. Er þessi undanþága heimiluð þar sem ella væri hætta á að byggingarkostnaður smáframkvæmda mundi aukast og umfang slíkra verka er ekki þess eðlis að nauðsynlegt sé að sérstakur aðili annist innra eftirlit. Er það þá undir viðkomandi eiganda komið hvort hann vill leggja í þann kostnað að láta sérstakan aðila annast byggingarstjórn.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að tryggingarskylda byggingarstjóra og hönnuða verði afnumin. Þessum aðilum verður þó áfram heimilt að kaupa sér slíka tryggingu og líklegt að margir þeirra kjósi að gera það til að minnka áhættu sína vegna hugsanlegra skaðabótakrafna sem stofnast geta vegna gáleysis við framkvæmd starfans. Hins vegar er lagt til að ekki verði um lögbundna skyldutryggingu að ræða.
g. Byggingaröryggisgjald.
Lagt er til að gjald með nýju heiti, byggingaröryggisgjald, muni fjármagna starfsemi Byggingarstofnunar. Ekki er um nýtt gjald að ræða heldur hefur ákvæði um svokallað brunavarnagjald, sem innheimt hefur verið á grundvelli laga um brunavarnir, verið fært inn í frumvarp til laga um mannvirki. Skattstofn gjaldsins er óbreyttur og er það innheimt áfram af vátryggingarfjáræð brunatrygginga fasteigna og lausafjár, svo og samsettra vátrygginga sem fela í sér brunatryggingu. Hér er hins vegar lagt til að gjaldið verði hækkað úr 0,045 prómillum í 0,08. Hingað til hefur brunavarnagjaldi verið einungis ætlað að standa undir rekstri Brunamálastofnunar vegna yfirumsjónar með brunavörnum en hér er lagt til að byggingaröryggisgjaldið renni til Byggingarstofnunar og standi þannig undir kostnaði við yfirumsjón byggingaröryggismála almennt. Með því að leggja slíkt gjald á brunatryggingar er gjaldtökunni dreift á mörg ár, þ.e. allan líftíma mannvirkisins, í stað þess að innheimta hærra gjald einu sinni í upphafi mannvirkjagerðar. Eigendur mannvirkja eiga að njóta góðs af yfireftirliti og umsjón Byggingarstofnunar allan líftíma mannvirkisins og því mæla góð rök með því að þessi leið verði valin.
h. Úrskurðir um ágreining.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að ágreiningur um framkvæmd laganna verði í höndum úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála eins og verið hefur. Þó er lögð til sú breyting að komi upp ágreiningur um framkvæmd eftirlits á grundvelli skoðunarhandbókar, þ.e. ágreiningur um tæknileg atriði, gefi Byggingarstofnun út álit sem séu bindandi fyrir alla aðila máls. Enn fremur er lagt til að Byggingarstofnun geti að eigin frumkvæði gefið út slík bindandi álit. Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála er ekki ætlað að endurskoða bindandi álit Byggingarstofnunar.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um heiti laganna og I. kafla frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í c-lið segir að það sé eitt af markmiðum frumvarpsins að stuðla að vernd umhverfis með því að hafa sjálfbæra þróun að leiðarljósi við hönnun og gerð mannvirkja þeirra. Mikilvægt er að hönnuðir og framkvæmdaraðilar gæti þess í framleiðslu og rekstri mannvirkja að þau valdi lágmarksálagi á umhverfi og leitast sé við að draga eftir föngum úr orku- og efnisnotkun t.d. með endurnýtingu byggingarefna, notkun vistvænna byggingarefna og gagnrýnu mati á lífskostnaði mannvirkja. Þessu tengt er sérstaklega tiltekið í f-lið það markmið laganna að stuðla að góðri orkunýtingu við rekstur bygginga. Í d-lið er sett fram það mikilvæga markmið frumvarpsins að stuðla að tæknilegum framförum og nýjungum í byggingariðnaði. Að lokum er tekið í e-lið upp það mikilvæga markmið að stuðlað sé að aðgengi fyrir alla. Á það ekki síst við um setningu ákvæða reglugerðar þar sem settar eru kröfur um gerð og frágang mannvirkja og mögulegt að setja þar kröfur um útbúnað og frágang mannvirkja í því skyni að allir hafi aðgang. Með aðgengi er átt við að fólk sem á við fötlun eða veikindi að stríða geti með öruggum hætti komist inn og út úr mannvirkjum, jafnvel við óvenjulegar aðstæður, t.d. í bruna, en jafnframt að við hönnun og útfærslu mannvirkja séu hafðar í huga mismunandi þarfir og geta fólks með tilliti til sjónar og heyrnar, t.d. við efnisval og útfærslur, og gætt sé að hljóðvist og birtuskilyrðum innan og utan húss.
Um 2. gr.
Að lokum eru í 2. mgr. talin upp mannvirki sem ekki falla undir lögin, svo sem hafnir, varnargarðar og samgöngumannvirki. Þessi mannvirki og eftirlit með þeim falla undir aðra löggjöf, svo sem vegalög og siglingalög, og því eru þau undanþegin ákvæðum þessara laga.
Um 3. gr.
Um 4. gr.
Önnur meginbreyting á stjórnsýslu byggingarmála er tilkoma Byggingarstofnunar. Gert er ráð fyrir að stofnunin verði stjórnsýslustofnun sem hafi beint eftirlit með tiltekinni mannvirkjagerð, þ.e. mannvirkjagerð sem í flestum tilvikum hefur hingað til ekki verið háð byggingareftirliti, og beri jafnframt ábyrgð á samræmingu byggingareftirlits um allt land, m.a. með gerð leiðbeininga, skoðunarhandbóka og með beinum íhlutunarrétti ef byggingareftirlit sveitarfélaganna er ekki í samræmi við ákvæði laganna.
Um 5. gr.
Þessu til viðbótar er í 4. tölul. lagt til að Byggingarstofnun beri ábyrgð á skráningu og eftirliti með lyftum og lyftubúnaði til fólks- og vöruflutninga og togbrautarbúnaði til fólksflutninga. Um er að ræða málaflokk sem Vinnueftirlit ríkisins hefur annast. Tæknilegt eftirlit af þessu tagi á mikla samleið með öllu því tæknilega eftirliti sem lagt er til að Byggingarstofnun annist auk þess sem lyftur og lyftubúnaður er einungis einn af mörgum þáttum mannvirkja sem eðlilegt er að falli undir lög um mannvirki eins og allur annar tæknibúnaður mannvirkja. Gert er ráð fyrir að unnt verði að fela faggiltum skoðunarstofum þetta eftirlit eins og annað eftirlit í mannvirkjum.
Gert er ráð fyrir að Byggingarstofnun annist gerð leiðbeininga, verklagsreglna og skoðunarhandbóka í því skyni að samræma byggingareftirlitið og ýta undir notkun faggiltra skoðunarstofa. Mikið verk er fyrir höndum í upphafi við gerð og undirbúning slíkra skoðunarhandbóka en sú vinna mun skila sér margfalt til baka síðar með skilvirkara og samræmdara eftirliti. Miðlægur gagnagrunnur stofnunarinnar þar sem m.a. skoðunarhandbækur, gátlistar og niðurstöður skoðana eru vistaðar, er lykillinn að möguleikum stofnunarinnar til að hafa eftirlit með framkvæmd byggingareftirlits um land allt og til að heildaryfirsýn fáist yfir málaflokkinn, en mjög hefur skort á að slík yfirsýn hafi verið fyrir hendi. Gert er ráð fyrir að unnt verði að tengja miðlægan gagnagrunn Byggingarstofnunar Landskrá fasteigna sem rekin er af Fasteignamati ríkisins. Með því má ná saman á einn stað upplýsingum um byggingar og mannvirki um land allt, sem bæði mun nýtast eigendum mannvirkja og stjórnvöldum. Leiðbeiningar, verklagsreglur og skoðunarhandbækur eru verkfæri allra fagaðila á sviði byggingariðnaðar svo sem hönnuða, byggingarstjóra, iðnmeistara og eftirlitsaðila við framkvæmd laganna. Gert er ráð fyrir að þar verði m.a. ákvæði um eftirlitsaðferðir, tæknilegt eftirlit, skoðunaráætlanir og mismunandi eftirlitsstörf.
Aðgengismál er einn af þeim málaflokkum sem gert er ráð fyrir að Byggingarstofnun muni sinna en um er að ræða afar mikilvægan málaflokk sem Öryrkjabandalag Íslands og fleiri aðilar hafa lagt þunga áherslu á að yrði sinnt með viðunandi hætti.
Lagt er til að löggildingar hönnuða, iðnmeistara og slökkviliðsmanna verði færðar frá umhverfisráðuneytinu til Byggingarstofnunar auk þess sem gert er ráð fyrir að útgáfa starfsleyfis til handa byggingarstjórum og faggiltum skoðunarstofum verði einnig í höndum stofnunarinnar. Enn fremur er gert ráð fyrir að stofnunin annist kynningar- og fræðslustarf bæði fyrir almenning og hagsmunaaðila, þ.m.t. byggingarfulltrúa og aðra þá sem sinna framkvæmd byggingareftirlits. Stofnunin skal standa fyrir námskeiðum og prófum til réttinda fyrir hönnuði, sem hingað til hefur verið í höndum sérstakrar prófnefndar, auk þess að standa fyrir námskeiðum fyrir byggingarstjóra. Enn fremur skal stofnunin starfrækja Brunamálaskóla fyrir slökkviliðsmenn. Hvað varðar framangreinda þætti þá er ekki nauðsynlegt að stofnunin sinni þessum verkefnum sjálf heldur getur hún falið menntastofnun starfrækslu Brunamálaskólans, sbr. lög um brunavarnir.
Í 12. tölul. 5. gr. segir að Byggingarstofnun skuli bæði annast og stuðla að rannsóknum á sviði byggingarmála og brunavarna í samvinnu við hagsmunaaðila, en svipað ákvæði er í gildandi lögum um brunavarnir. Ekki er ætlunin að Byggingarstofnun annist sjálf umfangsmiklar rannsóknir, enda sinna háskólar, einkareknar rannsóknastofur og opinberir aðilar slíkum rannsóknum að mestu leyti. Hins vegar verður Byggingarstofnun að hafa yfirsýn yfir mannvirkjagerð þannig að misfellur og vandamál í málaflokknum upplýsist. Vinna þarf úr upplýsingum frá byggingarfulltrúum og öðrum aðilum jafnóðum, stuðla að skýrslugerð og áætla rannsóknarþörfina, einkum vegna séríslenskra aðstæðna. Þessar niðurstöður þarf að birta stjórnvöldum og öðrum sem málið varðar, t.d. sem tölfræðilegar rannsóknarniðurstöður.
Að lokum er í 5. gr. að finna nýmæli um að Byggingarstofnun skuli árlega gefa út skýrslu um stöðu og þróun mannvirkjagerðar í landinu. Hefur mjög skort á að slíkar upplýsingar væru tiltækar á einum stað en með hinni nýju stofnun skapast tækifæri til að öðlast betri yfirsýn yfir mannvirkjagerð í landinu.
Um 6. gr.
Um 7. gr.
Áfram verður heimilt að ráða sama aðila í starf skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa. Eftir skiptingu málaflokkanna í tvenn lög verður hins vegar enn mikilvægara en áður að byggingar- og skipulagsfulltrúar geri sér skýra grein fyrir því á grundvelli hvaða laga þeir eru að starfa í hverju tilviki fyrir sig, þar sem annars vegar getur verið um að ræða ákvarðanir sem þeim sjálfum er heimilt að taka og hins vegar ákvarðanir sem þurfa staðfestingu sveitarstjórnar.
Í 4. mgr. er ákvæði sem á sér hliðstæðu í 3. mgr. 7. gr. gildandi laga en hið síðarnefnda nær til starfsmanna byggingar- og skipulagsnefnda. Ákvæðinu er ætlað að koma í veg fyrir að byggingarfulltrúi eða starfsmenn hans starfi t.d. við hönnun að aukastarfi. Þótti slíkt fyrirkomulag óheppilegt og ósanngjarnt, sérstaklega gagnvart samkeppnisaðilum sem gátu þurft að lúta byggingareftirliti af hendi aðila sem á sama tíma var í samkeppni við þá í sínu aukastarfi. M.a. af þessum ástæðum var þessi regla tekin upp á sínum tíma. Þóttu vanhæfisreglur stjórnsýslulaga ekki tryggja hlutleysi byggingareftirlitsaðila nægjanlega og aukastarfaregla laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nær ekki til starfsmanna sveitarfélaganna.
Um 8. gr.
Í síðasta málslið 2. mgr. er lagt til að ráðherra verði heimilt að undanþiggja minni háttar mannvirkjagerð eða smávægilegar breytingar á mannvirkjum byggingarleyfi. Er þetta talið nauðsynlegt í því skyni að einfalda byggingareftirlit og auka athafnafrelsi borgaranna upp að vissu marki. Í samræmi við markmið laganna skal byggingareftirlit miða að því að vernda líf, heilsu fólks, umhverfi og eignir með því að tryggja faglegan undirbúning mannvirkjagerðar og virkt eftirlit með því að kröfum um öryggi þeirra og heilnæmi sé fullnægt. Því er eðlilegt að minni háttar mannvirkjagerð sem ekki hefur áhrif á þessa þætti sé undanþegin byggingareftirliti. Of mikil orka byggingaryfirvalda hefur farið í slíkt eftirlit og er hér lagt til að við gerð nýrrar reglugerðar um byggingarmál verði leitast við að einfalda eftirlitið með þessum hætti. Þá ættu yfirvöld að geta einbeitt sér að þeim mannvirkjum þar sem raunveruleg þörf er á eftirliti með því að þau standist öryggis-, heilbrigðis- og aðgengiskröfur.
Í 3. mgr. eru sérstaklega tilgreind þau mannvirki sem háð eru byggingarleyfi Byggingarstofnunar. Í a-lið er kveðið á um að Byggingarstofnun veiti byggingarleyfi vegna virkjana en þær eru samkvæmt gildandi lögum undanþegnar byggingarleyfi þegar um er að ræða framkvæmdir á vegum opinberra aðila. Eins og fram kemur í almennum athugasemdum með frumvarpinu er talin full þörf á að þessar framkvæmdir sæti opinberu eftirliti eins og aðrar framkvæmdir ekki síst til að tryggja öryggi þeirra. Færst hefur í vöxt að virkjanir séu reistar af öðrum en opinberum aðilum, m.a. eftir nýlega breytingu á raforkulögum en það voru á sínum tíma meginrök þess að undanþiggja þær byggingarleyfi að þær væru reistar af opinberum aðilum. Þar sem um er að ræða sérhæfð og flókin mannvirki er talið eðlilegt að eftirlitið sé falið Byggingarstofnun sem mun hafa yfir að ráða þeirri faglegu þekkingu sem þarf til að bera ábyrgð á slíku eftirliti. Skv. 2. málsl. ákvæðisins þarf enn fremur byggingarleyfi Byggingarstofnunar fyrir öðrum þeim mannvirkjum sem reist eru í tengslum við virkjanaframkvæmdir. Til hagræðis er að leyfisveiting vegna einnar framkvæmdar sé á einni hendi þannig að sú staða komi ekki upp að virkjunin sé háð leyfi Byggingarstofnunar en húsbyggingar henni tengdar háðar leyfi byggingarfulltrúa. Sömu sjónarmið eiga við um fráveitumannvirki, dreifi- og flutningskerfi rafveitna, hitaveitna, vatnsveitna og fjarskipta sem liggja innan fleiri en eins sveitarfélags, sbr. b-lið. Þar er til mikils hagræðis fyrir framkvæmdaraðila að geta snúið sér til Byggingarstofnunar í stað þess að sækja um byggingarleyfi í mörgum sveitarfélögum fyrir einni framkvæmd. Í c-lið 3. mgr. kemur fram að mannvirki á hafi utan sveitarfélagamarka séu háð byggingarleyfi Byggingarstofnunar. Þar sem þessi mannvirki eru utan marka sveitarfélaga falla þau utan umdæma byggingarfulltrúa. Hins vegar er eðlilegt að þessi mannvirki sæti byggingareftirliti eins og mannvirki á landi og er því lagt til að Byggingarstofnun fái það verkefni að gefa út byggingarleyfi vegna þeirra og hafi eftirlit með slíkri mannvirkjagerð. Að lokum er í d- og e-lið gert ráð fyrir að Byggingarstofnun veiti byggingarleyfi á öryggis- og varnarsvæðum. Um þessi svæði er fjallað í nýlegum lögum, nr. 176/ 2006, um ráðstafanir í kjölfar samnings við Bandaríkin um skil á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Samkvæmt þeim lögum skiptist varnarsvæðið á Keflavíkurflugvelli í flugvallarsvæði, öryggissvæði og starfssvæði Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar. Með auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda nr. 38/2007 var mörkum varnarsvæðisins breytt þannig að síðastnefnda svæðið fellur utan skilgreinds varnarsvæðis. Í frumvarpi til skipulagslaga er lagt til að umhverfisráðherra fari með yfirstjórn skipulagsmála á flugvallarsvæði Keflavíkurflugvallar. Yfirstjórn skipulagsmála á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og varnarsvæðum annars staðar á landinu er hins vegar í höndum utanríkisráðherra. Undir d-lið ákvæðisins falla þannig mannvirki á því svæði sem skipulagsáætlanir umhverfisráðherra ná til en undir e-lið falla mannvirki á skipulagssvæði utanríkisráðherra. Við útgáfu byggingarleyfis á síðarnefnda svæðinu og við byggingareftirlit starfar Byggingarstofnun í umboði utanríkisráðherra, þar sem svæðið er utan íslensks yfirráðasvæðis. Á framangreindum svæðum gilda öll ákvæði laga um mannvirki og reglugerða sem settar eru samkvæmt þeim að því undanskildu að einstaka mannvirkjagerð á öryggissvæði er undanþegin opinberum gjöldum, sbr. 49. gr.
Í 4. mgr. er ákvæði um að ef vafi leiki á því hvort mannvirki sé háð byggingarleyfi eða hvort það falla undir byggingarfulltrúa eða Byggingarstofnun þá skeri úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála úr. Í 5. mgr. eru síðan ákvæði um að ef breyting á mannvirki skv. 2. mgr. varði einungis ytra útlit þess eða form skuli leita eftir samþykki sveitarstjórnar í samræmi við ákvæði skipulagslaga. Slíkar breytingar eru ekki byggingarleyfisskyldar samkvæmt frumvarpinu, enda er ekki gert ráð fyrir að um þessi atriði sé fjallað í reglugerð á grundvelli mannvirkjalaga heldur í skipulagsskilmálum. Því er talið eðlilegra að um slíkar breytingar sé einungis fjallað á grundvelli skipulagslaga og þá af þeim aðilum sem um þá þætti fjalla, þ.e. skipulagsfulltrúum, skipulagsnefndum og sveitarstjórnum. Þegar breyting á útliti mannvirkis hefur áhrif á burðarvirki, t.d. þegar settur er kvistur á þak, er slík breyting hins vegar byggingarleyfisskyld skv. 2. mgr. 8. gr.
Um 9. gr.
Um 10. gr.
Um 11. gr.
Í 2. mgr. er heimild fyrir útgefanda byggingarleyfis að setja skilyrði við sérstakar aðstæður um að mat óháðs aðila sé gert á kostnað umsækjanda eftir að það er tekið í notkun til að tryggja að uppfyllt séu ákvæði laganna og reglugerða sem sett eru á grundvelli þeirra. Dæmi um notkun þessarar heimildar er að við útgáfu byggingarleyfis séu sett skilyrði um hljóðvistarprófanir eftir að mannvirki er tekið í notkun þannig að ganga megi úr skugga um að ákvæði reglugerðar um hljóðvist innan húss séu uppfyllt.
Í 3. mgr. segir að allar prófanir, skoðanir og vottanir skv. 1. og 2. mgr. skuli framkvæmdar í samræmi við viðeigandi staðla til að tryggja að matið verði byggt á viðurkenndum, þekktum aðferðum þannig að réttaröryggi eigenda mannvirkja verði sem best tryggt. Í þeim tilfellum þar sem staðlaðar aðferðir eru ekki til er þess krafist að prófanir séu byggðar á rökstuddum aðferðum sem er lýst skriflega. Heimilt er útgefanda byggingarleyfis að gera þá kröfu að vottunarstofur, prófunarstofur og skoðunarstofur hafi hlotið faggildingu.
Um 12. gr.
Í 3. mgr. er sérákvæði um útgáfu byggingarleyfa fyrir fráveitumannvirki og dreifi- og flutningskerfi rafveitna, hitaveitna, vatnsveitna og fjarskipta. Mannvirki þessi hafa hingað til ekki verið háð byggingarleyfi, nema þær varanlegu húsbyggingar sem þeim hafa tengst. Mannvirkin hafa verið háð framkvæmdaleyfi sveitarstjórnar en við þá breytingu að gera þau byggingarleyfisskyld fellur framkvæmdaleyfisskyldan niður. Um er að ræða mjög sérhæfð mannvirki sem hafa þá sérstöðu að þau liggja um stór svæði, ýmist ofanjarðar eða neðan. Eðlilegt er að unnt sé að gefa út eitt byggingarleyfi fyrir framkvæmdum sem þessum og að framkvæmdaraðili ákveði afmörkun framkvæmdarinnar sjálfur í umsókn um byggingarleyfi. Má hugsa sér að gefið sé út eitt byggingarleyfi fyrir hitaveitulögnum í heilu nýbyggingarhverfi eða fyrir lagningu háspennulínu frá virkjunarsvæði að aðveitustöð, svo örfá dæmi séu tekin. Ekki er gerð krafa um byggingarstjóra eða iðnmeistara vegna framkvæmda sem falla undir þessa málsgrein né heldur öryggis- eða lokaúttektir.
Í 4. mgr. ákvæðisins er að lokum tilvísun til laga um mat á umhverfisáhrifum í því skyni að tryggja að fylgt sé málsmeðferð þeirra laga áður en byggingarleyfi mannvirkja er gefið út. Fjölmörg mannvirki geta fallið undir ákvæði þeirra laga og því nauðsynlegt að vísa til þeirra hér.
Um 13. gr.
Um IV. kafla.
Um 14. gr.
Samkvæmt 3. mgr. skal eigandi mannvirkis sjá til þess að fram fari lögboðið eftirlit með byggingu mannvirkisins. Í framkvæmd er það byggingarstjóri mannvirkisins sem hefur samskipti við byggingaryfirvöld fyrir hönd eigandans, aflar nauðsynlegra heimilda og óskar eftir úttektum. Það fyrirkomulag hefur verið við lýði síðan lög nr. 73/1997 tóku gildi og hefur gefist vel.
Til að taka af allan vafa er í 4. mgr. skilgreint hverjir það eru sem teljast eigendur í skilningi ákvæðisins. Í d-lið er tekið fram að ef mannvirki er selt í byggingu í heild eða að hluta skuli fyrri eigandi bera ábyrgð skv. 1. mgr. ásamt nýjum eiganda nema um annað sé samið í skriflegum samningi milli þeirra. Algengt er á Íslandi að mannvirki í byggingu séu seld í heild eða að hluta og misjafnt hvernig æskilegast er að ábyrgðarskiptingunni sé háttað. Ef t.d. byggingarfyrirtæki selur almenningi íbúðir fjölbýlishúss á byggingarstigi en tekur að sér að ljúka gerð þeirra þá er eðlilegt að byggingarfyrirtækið haldi áfram að bera ábyrgð samkvæmt lögunum. Einnig kann mannvirki að vera selt aðila sem fullfær er um að bera slíka ábyrgð eftir kaupin og þá er heimilt að semja um það sérstaklega. Skal þá koma skýrt fram að nýr eigandi gangi inn í samning fyrri eiganda við byggingarstjóra mannvirkisins eða nýr byggingarstjóri sé ráðinn fyrir mannvirkið í heild.
Um 15. gr.
Um 16. gr.
Í 2. mgr. er fjallað um það að Byggingarstofnun skuli gefa út bindandi álit vegna ágreinings um túlkun skoðunarhandbókar og framkvæmd tæknilegs eftirlits á grundvelli hennar. Um er að ræða tæknileg atriði sem eðlilegt verður að telja að sérhæfð fagstofnun á borð við Byggingarstofnun túlki. Ef um er að ræða sambærilegan ágreining sem upp kemur við framkvæmd eftirlits Byggingarstofnunar sker ráðherra úr. Gert er ráð fyrir að Byggingarstofnun geti einnig að eigin frumkvæði gefið út slík bindandi álit. Getur slíkt tæki nýst vel til samræmingar á eftirliti og til að skera úr um vafaatriði um tæknileg mál sem hugsanlega eru að valda vandræðum án þess að eiginlegur ágreiningur sé uppi. Þar sem um hrein tæknileg mál er að ræða er gert ráð fyrir að álit Byggingarstofnunar og eftir atvikum ráðherra á grundvelli þessa ákvæðis sæti ekki endurskoðun úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála.
Tilgangur 3. mgr. er að koma í veg fyrir tvöfalt eftirlit ef skoðunarstofa annast eftirlit með mannvirkjagerð. Í þeim tilvikum skal yfirferð útgefanda byggingarleyfis takmarkast við framlagða skoðunarskýrslu og skal gjaldtaka hans miðast við það. Ekki er ætlast til að byggingaryfirvöld yfirfari skoðun faggiltu skoðunarstofunnar.
Í 4. mgr. er sérstaklega tekið fram að byggingarfulltrúi getur ávallt ákveðið að leitað skuli álits slökkviliðs við yfirferð aðaluppdrátta með tilliti til eldvarna, óháð því hvort eftirlitið er framkvæmt af byggingarfulltrúa eða skoðunarstofu. Nauðsynlegt er að taka af öll tvímæli um að heimilt sé við byggingareftirlit að nýta þá þekkingu á sviði brunavarna sem slökkviliðin hafa yfir að ráða, óháð því hvort eftirlitið hafi verið fært í hendur einkamarkaðarins. Forvarnagildi slíkrar aðkomu slökkviliðs er mikið og auknar líkur eru á að slökkvilið hafi yfirsýn yfir stöðu brunavarna í sveitarfélaginu. Enn fremur hefur verið á það bent að í mörgum tilfellum sé nauðsynlegt að meta mögulegar afleiðingar bruna í mannvirki með tilliti til almannaheilla í víðara samhengi en hvað snertir mannvirkið eitt og sér.
Í 5. mgr. er að lokum fjallað um úttektir Byggingarstofnunar á gæðakerfum hönnuða, byggingarstjóra og iðnmeistara í þeim tilgangi að hafa eftirlit með því að farið sé að ákvæðum laganna um gerð og virkni gæðakerfa. Einnig er fjallað um viðurlög ef í ljós kemur að gæðastjórnunarkerfin uppfylla ekki ákvæði laganna eða reglugerða sem um þau gilda.
Um 17. gr.
Í 2. mgr. er tekið fram að þegar afskiptum Byggingarstofnunar lýkur tekur byggingarfulltrúi aftur við málinu og hefur eftirlit með mannvirkjagerðinni og annarri stjórnsýslu. Er þetta ákvæði sett til að tryggja að enginn vafi leiki á framhaldi máls ef Byggingarstofnun þarf að grípa inn í málsmeðferð byggingarfulltrúa. Sem dæmi um slíkt væri t.d. ef byggingarfulltrúi neitar að gefa út byggingarleyfi á ólögmætum forsendum eða gefur út byggingarleyfi án þess að skilyrði laga séu uppfyllt. Í þeim tilvikum gæti Byggingarstofnun gefið hið umdeilda byggingarleyfi út eða fellt það úr gildi. Sé byggingarleyfi gefið út tæki byggingarfulltrúi við málinu að því loknu eftir tilkynningu frá Byggingarstofnun og annaðist eftirlit með mannvirkjagerðinni eftir það. Sé um að ræða ógildingu byggingarleyfis gæti Byggingarstofnun þurft að beita nauðsynlegum þvingunarúrræðum gagnvart eiganda, t.d. um stöðvun framkvæmda áður en tilkynnt er um að afskiptum stofnunarinnar sé lokið. Ákvörðun um hvenær afskiptum er lokið er í höndum Byggingarstofnunar.
Um 18. gr.
Um 19. gr.
Í 2. mgr. kemur fram að í þeim tilvikum sem ákveðið er að eftirlit með mannvirkjagerð sé framkvæmt af skoðunarstofu þá skuli eigandi mannvirkisins annast ráðningu slíkrar skoðunarstofu og greiða kostnað af framkvæmd eftirlitsins, enda hafi skoðunarstofan starfsleyfi. Með þessu er leitast við að tryggja að heilbrigð samkeppni geti skapast milli faggiltra skoðunarstofa og eigandi mannvirkisins geti sjálfur valið þá stofu sem hann kýs að skipta við. Sú takmarkaða heimild sem nú er í lögum til að nota faggiltar skoðunarstofur er frábrugðin að því leyti að þar er það sveitarfélagið sem ræður skoðunarstofuna en eigandi mannvirkisins hefur ekkert um það að segja. Hér er því um nýmæli að ræða. Sömu aðferð er beitt við val á skoðunarstofum þegar um eftirlit með skipum og bátum er að ræða, eftirlit í sjávarútvegi og skoðun ökutækja.
Í 3. mgr. er ákvæði um starfsemi faggiltra skoðunarstofa og áskilið að þær þurfi starfsleyfi Byggingarstofnunar til að geta tekið að sér eftirlit með mannvirkjagerð samkvæmt frumvarpinu. Sambærilegur áskilnaður um starfsleyfi er í annarri löggjöf þar sem opinbert eftirlit hefur verið falið faggiltum skoðunarstofum, t.d. í lögum um eftirlit með skipum. Enn fremur er það skilyrði að skoðunarmenn skoðunarstofu og tæknilegur stjórnandi hennar uppfylli hæfnisskilyrði 20. gr. Hæfnisskilyrði þessi eru mismunandi eftir því hvort skoðunarstofan hefur faggildingu til að yfirfara uppdrætti eða framkvæma áfangaúttektir, auk þess sem gerðar eru mismunandi hæfniskröfur eftir gerð þeirra mannvirkja sem skoðunarstofunni er heimilt að hafa eftirlit með. Gert er ráð fyrir nánari útfærslu á þessu í reglugerð þar sem gerð verður nánari grein fyrir flokkun faggildingar.
Um 20. gr.
Um V. kafla.
Um 21. gr.
Um 22. gr.
Um 23. gr.
Um 24. gr.
Um 25. gr.
Um VI. kafla.
Um 26. gr.
Í 2. mgr. kemur fram að byggingarstjóri sé faglegur fulltrúi eiganda við byggingarframkvæmdir og starfi í umboði hans samkvæmt skriflegum ráðningar- eða verksamningi við eiganda. Er byggingarstjóranum þannig ætlað að fara með hagsmuni eigandans við byggingarframkvæmdir. Í þessu felast trúnaðarskyldur byggingarstjórans gagnvart eiganda sem eru grundvöllur að hans hlutverki. Í þessu felst jafnframt að byggingarstjórinn hafi ákveðið stöðuumboð til þess að fara með daglegan rekstur framkvæmdar og taka ýmsar ákvarðanir fyrir hönd eiganda, sem eru bindandi fyrir hann. Þetta verður þó ávallt að vera gert með hagsmuni eigandans að leiðarljósi. Byggingarstjóra ber þó að bera stórvægilegar og óvenjulegar ákvarðanir undir eiganda.
Í 3. mgr. er kveðið á um þá nýskipan að byggingarstjóra sé ekki heimilt að taka að sér ábyrgð á hönnun eða einstökum verkþáttum byggingarframkvæmdar. Er þetta nokkur breyting frá núverandi framkvæmd þar sem algengt er að byggingarstjóri og húsasmíðameistari byggingar séu einn og sami maðurinn. Hefur þetta valdið nokkrum vandkvæðum í framkvæmd og óvissu um skiptingu ábyrgðar milli byggingarstjóra og iðnmeistara. Þessi breyting er talin nauðsynleg ekki síst í ljósi þess hlutverks byggingarstjórans að gæta hagsmuna eigandans, m.a. gagnvart hönnuðum og iðnmeisturum. Er því talið nauðsynlegt að um sjálfstæðan aðila sé að ræða. Undanþága frá þessu er þó heimil þegar um er að ræða minni háttar mannvirkjagerð til eigin nota en þá getur eigandi falið einum af iðnmeisturum eða hönnuðum mannvirkisins byggingarstjórn þess enda hafi sá aðili starfsleyfi sem slíkur. Þrátt fyrir það sem hér að framan er rakið er ekki talið réttlætanlegt að krefjast sérstaks byggingarstjóra vegna slíkra framkvæmda þar sem það gæti leitt til aukins byggingarkostnaðar og væri óþarflega flókið í framkvæmd. Eigandi, sem jafnframt er sá sem byggingarstjóra er ætlað að gæta hagsmuna fyrir, getur þannig kosið að fara þessa leið og ber þá sjálfur áhættuna af því, enda áskilið að mannvirkið sé ætlað til eigin nota. Önnur sjónarmið eru uppi ef eigandi mannvirkis á byggingarstigi ætlar það ekki til eigin nota, t.d. þegar byggingarfyrirtæki byggir hús til sölu á almennum markaði. Þá eru það hagsmunir seinni eigenda sem neytenda að fullnægjandi innra eftirlit byggingarstjóra með iðnmeisturum og hönnuðum fari fram á byggingarstigi. Ekkert er því hins vegar til fyrirstöðu að eigandi mannvirkis sé jafnframt byggingarstjóri þess enda uppfylli hann þær kröfur laganna sem gerðar eru til byggingarstjóra. Um umboð byggingarstjóra, verksvið og ábyrgð fer eftir ákvæðum laga þessara, reglugerðar og samningi við eiganda. Ekki er gert er ráð fyrir að byggingarstjóri geti takmarkað ábyrgð sína í samningi við eiganda.
Í 4. mgr. er kveðið á um að heimildir byggingarstjóra takmarkist af gerð mannvirkis og umfangi framkvæmda. Er mannvirkjum skipt í þrjá flokka og mun í starfsleyfi byggingarstjóra verða gerð grein fyrir hvaða flokkum viðkomandi er heimilt að stýra. Í 27. gr. eru síðan ákvæði um þær menntunar- og starfsreynslukröfur sem byggingarstjórar þurfa að uppfylla til að mega stýra hverjum flokki fyrir sig. Eru mestar kröfur gerðar til byggingarstjóra sem mega stýra sérhæfðum og flóknum mannvirkjum svo sem vatnsafls- og jarðvarmavirkjunum. Í liðum 1–3 er einungis að finna grófa flokkun mannvirkja en síðan er í 5. mgr. gert ráð fyrir að nákvæmur listi yfir mannvirki innan hvers flokks verði birtur í reglugerð.
Um 27. gr.
Í 2. mgr. er kveðið á um þær menntunar- og starfsreynslukröfur sem gerðar eru til þeirra aðila sem taka mega að sér byggingarstjórn þeirra mannvirkja sem falla undir 1. tölul. 4. mgr. 26. gr., þ.e. einföldustu gerð mannvirkja. Hér eru taldir upp húsasmíðameistarar, múrarameistarar, pípulagningameistarar, blikksmíðameistarar, rafvirkjameistarar og byggingariðnfræðingar sem hlotið hafa löggildingu Byggingarstofnunar sem slíkir. Um er að ræða sömu iðnmeistara og mega vera byggingarstjórar samkvæmt gildandi lögum að öðru leyti en því að blikksmíðameisturum er bætt við en felld út heimild til handa vélvirkjameisturum til að annast byggingarstjórn, enda er ekki um að ræða iðngrein sem fjallað hefur verið um í byggingarreglugerð eða telst til byggingariðngreina. Teljast vélvirkjameistarar því ekki hafa þá hæfni eða þekkingu á sviði byggingarframkvæmda sem nauðsynleg er til að taka að sér byggingarstjórn. Nýmæli er að gerð er sú krafa að byggingarstjórar hafi auk framangreindrar grunnmenntunar og löggildingar reynslu af störfum við byggingarframkvæmdir. Er gerð krafa um tveggja ára reynslu sem löggiltir iðnmeistarar eða byggingarfræðingar af störfum við byggingarframkvæmdir eða byggingareftirlit sem viðurkennd er af Byggingarstofnun. Miðað við þá ábyrgð sem byggingarstjóra er ætlað að bera er talið nauðsynlegt að hann hafi öðlast nokkra reynslu í starfi áður en hann tekur slíkt starf að sér. Í lokamálslið 2. mgr. er tekið fram að byggingarstjórar sem falla undir þessa málsgrein og hafa starfað við byggingarstjórn í þrjú ár og hafa allan þann tíma haft fullnægjandi gæðastjórnunarkerfi geti einnig öðlast starfsleyfi til að hafa umsjón með framkvæmdum sem falla undir 3. tölul. 4. mgr. 26. gr. Þannig er opnað fyrir það að iðnmeistarar með mikla reynslu af mannvirkjagerð og byggingarstjórn geti tekið að sér byggingarstjórn langflestra mannvirkja. Einungis allra sérhæfðustu og flóknustu mannvirkin, sem hingað til hafa ekki verið háð byggingarleyfum og því ekki þurft byggingarstjóra, verða undanskilin. Hvorki þeir aðilar sem taldir eru upp í 2. né 3. mgr. þessarar greinar munu geta fengið starfsleyfi sem byggingarstjórar slíkra mannvirkja, heldur verður það bundið við þá sérhæfðu aðila sem taldir eru upp í 4. mgr. Aðrir eru ekki taldir hafa nægjanlega faglega þekkingu til að geta haft með höndum byggingarstjórn slíkra mannvirkja.
Í 3. mgr. er kveðið á um þær menntunar- og starfsreynslukröfur sem gerðar eru til þeirra aðila sem taka mega að sér byggingarstjórn þeirra mannvirkja sem falla undir 1. og 3. tölul. 4. mgr. 26. gr., þ.e. önnur mannvirki en þau allra sérhæfðustu og flóknustu. Um er að ræða verk- og tæknifræðinga, arkitekta og byggingarfræðinga. Allir þessir aðilar geta verið byggingarstjórar samkvæmt gildandi lögum. Ekki er gerð krafa um að þessir aðilar hafi löggildingu sem hönnuðir en lagt er til það nýmæli að þeir þurfi að hafa a.m.k. fimm ára reynslu af störfum sem verkfræðingar, tæknifræðingar, arkitektar eða byggingarfræðingar við byggingarframkvæmdir, hönnun bygginga, byggingareftirliti eða verkstjórn við byggingarframkvæmdir. Sömu rök eru að baki kröfum um starfsreynslu hér og í 2. mgr.
Í 4. mgr. eru taldir upp þeir sérhæfðu aðilar sem einir geta tekið að sér byggingarstjórn þeirra flóknu og sérhæfðu mannvirkja sem talin eru upp í 2. tölul. 4. mgr. 26. gr. Þessum aðilum er að auki heimilt að taka að sér byggingarstjórn þeirra mannvirkja sem talin eru upp í 1. og 3. tölul. Hér er um að ræða verk- og tæknifræðinga sem hafa löggildingu á sviði viðkomandi mannvirkjagerðar og þurfa þeir að hafa að lágmarki tíu ára reynslu af verkstjórn við hliðstæða mannvirkjagerð, byggingareftirlit eða hönnun. Þar af skulu þeir hafa a.m.k. þriggja ára reynslu af stjórnun eða eftirliti við mannvirkjagerð. Talið er nauðsynlegt að gera svo strangar kröfur þar sem um mjög flókna og sérhæfða mannvirkjagerð er að ræða. Hingað til hafa þessi mannvirki ekki verið háð byggingarleyfum og er það því nýtt að byggingarstjóra sé krafist vegna þeirra.
Í 5. mgr. er áfram sú heimild sem nú er í 3. tölul. 2. mgr. 51. gr. skipulags- og byggingarlaga að fyrirtæki og stofnanir geti í eigin nafni borið ábyrgð sem byggingarstjórar við mannvirkjagerð. Sett er það skilyrði að þegar fyrirtæki eða stofnun fær heimild til að takast í eigin nafni á hendur ábyrgð byggingarstjóra í skjóli starfsmanns, sem hefur starfsleyfi, skuli sá starfsmaður annast byggingarstjórn á vegum fyrirtækisins. Tilgangur þessa ákvæðis er fyrst og fremst að takmarka þá persónulegu ábyrgð sem einstaklingur, sem starfar hjá byggingarfyrirtæki, ber á verkinu, enda hefur hann oft minna ákvörðunarvald varðandi bygginguna en sjálfstæður aðili. Ákvæði skaðabótalaga mundu einnig takmarka persónulega ábyrgð þessa einstaklings gagnvart vinnuveitanda sínum og þriðja manni, sérstaklega ef vinnuveitandinn hefur tryggingu sem tekur til ábyrgðarinnar.
Um 28. gr.
Samkvæmt 4. mgr. hefur byggingarstjóri yfirumsjón með því að aflað sé samþykktar leyfisveitanda á breytingum sem gerðar eru á hönnun eða gerð mannvirkis í byggingu og að ávallt sé framkvæmt í samræmi við nýjustu útgáfu samþykktra hönnunargagna.
Er nauðsynlegt að taka þetta sérstaklega fram þar sem algengt er við byggingarframkvæmdir að hönnunargögn séu að taka breytingum eftir því sem verki vindur fram og þá er að sjálfsögðu mikilvægt að ekki sé framkvæmt eftir úreltum gögnum.
Í 5. mgr. er ákvæði um eftirlitsskyldur byggingarstjóra. Gert er ráð fyrir því að verði byggingarstjóri var við ágalla á verki geti hann losnað undan ábyrgð vegna þeirra ef hann hefur gert iðnmeistara og/eða eiganda viðvart og krafist úrbóta. Það er aðeins þegar ágalli, sem ekki hefði átt að geta dulist byggingarstjóra við eftirlit hans, kemur fyrst í ljós eftir að verki eða verkhluta á að vera lokið sem byggingarstjóri getur borið bótaábyrgð ásamt iðnmeistara gagnvart eiganda. Til að tryggja sönnun skulu byggingarstjóri og hlutaðeigandi aðilar skrá athugasemdir byggingarstjóra í gæðastjórnunarkerfi sitt.
Í 7. mgr. er fjallað sérstaklega um grundvöll skaðabótaábyrgðar byggingarstjóra og tekið fram að um hefðbundna sakarábyrgð sé að ræða á grundvelli almennra skaðabótareglna utan samninga. Gera má þó ráð fyrir að við sakarmat verði byggt á ströngum sérfræðimælikvarða. Sérstaklega er tekið fram að byggingarstjóri beri ekki ábyrgð á faglegum vinnubrögðum iðnmeistara og annarra sem að verkinu koma, t.d. undirverktaka, né því að aðilar uppfylli samningsskyldur sínar, t.d. þegar verktakar eða iðnmeistarar fara frá verki án þess að því sé að fullu lokið.
Í 8. mgr. er sett sérstakt ákvæði um fyrningu ábyrgðar, en vafi hefur leikið á því í framkvæmd með hvaða hætti ábyrgð á þessu sviði fellur niður. Er hér kveðið á um að um fyrninguna gildi almennar reglur laga um fyrning skulda og annarra kröfuréttinda.
Um 29. gr.
Um 30. gr.
Um 31. gr.
Ákvæði um ábyrgð iðnmeistara er í 2. mgr. og er það sambærilegt við ákvæði 1. mgr. 52. gr. gildandi laga. Ekki eru lagðar til breytingar á ábyrgð eða verksviði iðnmeistara. Nýtt er þó í 2. málsl. ákvæði um fyrningu ábyrgðar, þar sem undirstrikað er að um fyrningu fari samkvæmt ákvæðum almennra laga. Ákvæði 3. mgr. samsvarar 2. mgr. 52. gr. gildandi laga. Í 4. mgr. er lagt til það nýmæli að löggilding rafvirkjameistara sem gefin er út á grundvelli laga um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga jafngildi löggildingu skv. 3. mgr. Samkvæmt gildandi lögum hafa rafvirkjameistarar bæði þurft löggildingu Neytendastofu á grundvelli framangreindra laga og löggildingu umhverfisráðherra á grundvelli skipulags- og byggingarlaga og hefur ítrekað verið kvartað yfir því tvöfalda fyrirkomulagi. Er hér lagt til að rafvirkjameistari sem hefur löggildingu Neytendastofu, eða Löggildingastofu, samkvæmt eldri lagaákvæðum, þurfi ekki að sækja um löggildingu Byggingarstofnunar. Þetta þýðir hins vegar ekki að löggilding Byggingarstofnunar komi í stað löggildingar á grundvelli laga um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga enda gera þau lög ráð fyrir að uppfylla þurfi mun strangari skilyrði til að hljóta slíka löggildingu.
Nýmæli er í 6. mgr. þar sem kveðið er á um að iðnmeistarar skuli hafa gæðastjórnunarkerfi sem feli a.m.k. í sér staðfestingu á hæfni iðnmeistara, skrá yfir úttektir og niðurstöður þeirra, skrá yfir athugasemdir byggingarstjóra, auk lýsingar á og skrár um innra eftirlit iðnmeistarans í samræmi við nánari ákvæði í reglugerð. Ekki er gert ráð fyrir að gæðastjórnunarkerfi iðnmeistara verði í upphafi mjög umfangsmikið eða íþyngjandi heldur innihaldi þau að meginstefnu til aðeins framangreind atriði. Tilvísun til gæðastjórnunarkerfis ÍST EN ISO 9000 þýðir einungis að þeir aðilar sem hafa gæðastjórnunarkerfi sem uppfylla sannanlega þær kröfur þurfa ekki að sýna frekar fram á að þeir uppfylli ákvæði laganna. Eins og með gæðastjórnunarkerfi hönnuða og byggingarstjóra þá getur ráðherra ákveðið með reglugerð að slík gæðastjórnunarkerfi skuli vottuð, sbr. 47. gr., en ekki er gert ráð fyrir að sú heimild verði nýtt í náinni framtíð.
Um 32. gr.
Um 33. gr.
Í 4. mgr. er útgefanda byggingarleyfis veitt heimild til að leyfa að byggingarstjóri eða iðnmeistari framkvæmi sjálfir einstakar áfangaúttektir að því gefnu að gerð hafi verið skriflega grein fyrir innra eftirliti við byggingarframkvæmdina. Sambærilegt ákvæði hefur verið í gildandi byggingarreglugerð. Hér er veitt heimild til að slaka á opinberu eftirliti með framkvæmdum þar sem virkt innra eftirlit fer fram.
Um 34. gr.
Um 35. gr.
Ákvæði þetta er óháð hugsanlegum ákvæðum sem sett kunna að hafa verið í úthlutunarskilmála viðkomandi lóðar á grundvelli skipulagslaga um tímafrest fyrir húsbyggjendur til að ljúka frágangi mannvirkja utanhúss. Þessir þættir verða ekki hluti lokaúttektar samkvæmt frumvarpi þessu heldur verða sveitarfélög að beita þvingunarúrræðum skipulagslaga til að fylgja eftir slíkum skipulagsskilmálum. Í 5. mgr. eru svo ákvæði um heimild til lokunar mannvirkis ef það reynist ekki uppfylla öryggis- og hollustuháttakröfur við framkvæmd lokaúttektar.
Um 36. gr.
Um 37. gr.
Um 38. gr.
Um 39. gr.
Um 40. gr.
Um 41. gr.
Um 42. gr.
Um 43. gr.
Um 44. gr.
Um 45. gr.
Um 46. gr.
Um 47. gr.
Um 48. gr.
Um 49. gr.
Um 50. gr.
Um 51. gr.
Um ákvæði til bráðabirgða.
3. tölul. er sambærilegur við 5. tölul. ákvæðis til bráðabirgða gildandi laga. Í 2. málsl. er tekið fram að löggilding umhverfisráðherra jafngildir sams konar löggildingu Byggingarstofnunar. Enginn efnislegur munur er á þessum tveimur löggildingum heldur er einungis lagt til að annar aðili gefi löggildinguna út. Í 4. tölul. er sambærilegt ákvæði fyrir iðnmeistara. Ákvæði 5. tölul. er sambærilegt 7. tölul. ákvæðis til bráðabirgða í gildandi lögum. Skv. 6. tölul. geta þeir aðilar sem sannanlega hafa starfað sem byggingarstjórar í tíð eldri laga tekið að sér byggingarstjórn þeirra mannvirkja sem talin eru upp í 1. og 3. tölul. 4. mgr. 26. gr. Byggingarstjórastarfið samkvæmt frumvarpi þessu er að mörgu leyti allt annað starf en verið hefur samkvæmt gildandi lögum og eins og fram kemur í nefndaráliti neðri deildar Alþingis með frumvarpi til eldri byggingarlaga, sbr. umfjöllun í 2. kafla almennra athugasemda, hefur byggingarstjórastaðan ekki verið réttindastaða sem menn hafa fengið í eitt skipti fyrir öll heldur staða sem aðeins hefur náð til gerðar hvers mannvirkis út af fyrir sig við veitingu byggingarleyfis. Því er ekki unnt að líta svo á að menn hafi áunnið sér réttindi til að starfa sem byggingarstjórar. Þrátt fyrir það er talið sanngjarnt að þeir sem tekið hafa að sér byggingarstjórn mannvirkja hingað til geti haldið áfram að vinna sem byggingarstjórar við sambærilega mannvirkjagerð áfram. Þau mannvirki sem talin eru upp í 2. tölul. 4. mgr. 26. gr. hafa almennt ekki verið háð byggingarleyfum og því hafa engir starfað sem byggingarstjórar við þá mannvirkjagerð í gildistíð eldri laga. Þess vegna nær 6. tölul. ákvæðis til bráðabirgða ekki til þeirra mannvirkja heldur þurfa allir sem taka að sér byggingarstjórn þeirra að uppfylla hæfnisskilyrði 4. mgr. 27. gr. frumvarpsins. Í 7. tölul ákvæðis til bráðabirgða er veittur frestur til 1. janúar 2010 til að taka gæðastjórnunarkerfi í notkun við mannvirkjagerð.
Samkvæmt 8. tölul. ákvæðis til bráðabirgða er heimilt að viðurkenna ytra eftirlit óháðra aðila á vegum eiganda fráveitumannvirkja og dreifi- og flutningskerfa rafveitna, hitaveitna, vatnsveitna og fjarskipta, þannig að það komi að öllu leyti eða að hluta til í stað opinbers eftirlits. Í mörgum tilvikum er slíkt ytra eftirlit til staðar nú þegar án lagaskyldu til að tryggja framgang og gæði framkvæmda. Hér er veitt heimild til að meta slíkt eftirlit til jafns við eftirlit á vegum opinberra aðila eða skoðunarstofa en sett það skilyrði að skoðunarmenn eftirlitsaðilans uppfylli sömu hæfniskröfur og starfsmenn annarra eftirlitsaðila. Enn fremur þarf eftirlitsaðilinn að hafa fullnægjandi gæðakerfi. Útgefanda byggingarleyfis skal gerð skriflega grein fyrir framkvæmd og niðurstöðum slíks eftirlits og hefur hann eftirlit með því að það fari fram í samræmi við ákvæði laganna. Þannig er unnt að koma í veg fyrir að nýjar kröfur um byggingarleyfisskyldu þessara mannvirkja verði of íþyngjandi fyrir framkvæmdaraðila eða leiði til óþarfa tvöfalds eftirlits. Lagt er til að þessa heimild megi nýta til 1. janúar 2014, sem er talinn nægjanlegur aðlögunartími að því eftirlitskerfi sem byggt er á í lögunum. Eftir þann tíma gætu framkvæmdaraðilar samið við faggiltar skoðunarstofur um eftirlit með opinberum kröfum og nýtt þær jafnframt við framkvæmd þess ytra eftirlits sem framkvæmdaraðilar vilja viðhafa að öðru leyti við framkvæmdirnar.
Í 9. tölul. er kveðið á um forgangsrétt starfsmanna Brunamálastofnunar, Skipulagsstofnunar og Vinnueftirlits ríkisins sem starfa við þau verkefni sem færast til Byggingarstofnunar til starfa hjá stofnuninni.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um mannvirki.
Í frumvarpi til laga um mannvirki eru lögð til ýmis nýmæli og breytingar, m.a. er gert ráð fyrir að skilið verði á milli stjórnsýslu skipulagsmála og byggingarmála og að opinbert byggingareftirlit í landinu verði eflt og samræmt. Í því skyni er lagt til að sett verði á fót ný stofnun, Byggingarstofnun, sem hafi yfirumsjón með stjórnsýslu mannvirkjamála. Byggingarstofnun skal hafa eftirlit með framkvæmd laga um mannvirki og laga um brunavarnir. Ábyrgð á framkvæmd byggingarmála flyst þannig frá Skipulagsstofnun til Byggingarstofnunar og stofnunin tekur alfarið við hlutverki Brunamálastofnunar sem lögð verður niður. Sömuleiðis er lagt til að ábyrgð á skráningu og eftirliti með lyftum flytjist frá Vinnueftirliti ríkisins til Byggingarstofnunar. Enn fremur er gert ráð fyrir að ábyrgð á eftirliti með neysluveitum rafmagns og raflagnabúnaði sem telst til fasts búnaðar mannvirkis flytjist frá Neytendastofu til Byggingarstofnunar. Samkvæmt ákvæði til bráðabirgða skal Neytendastofa þó annast það eftirlit fram til 1. janúar 2012 samkvæmt þjónustusamningi við Byggingarstofnun.
Áhrif frumvarpsins á kostnað ríkissjóðs stafa fyrst og fremst af nýjum og auknum verkefnum Byggingarstofnunar á sviði mannvirkjamála umfram verkefni sem Skipulagsstofnun hefur til þessa sinnt á sviði byggingarmála. Meðal nýrra verkefna er gerð leiðbeininga, verklagsreglna og skoðunarhandbóka á fagsviði stofnunarinnar; aðgengismál; uppbygging og rekstur gagnagrunns fyrir upplýsingar um mannvirki; kynning og fræðsla fyrir almenning og hagsmunaaðila; útgáfa byggingarleyfa fyrir tiltekin mannvirki og eftirlit með þeim framkvæmdum; námskeið til réttinda fyrir hönnuði og byggingarstjóra; löggildingar fyrir hönnuði, iðnmeistara og slökkviliðsmenn; útgáfa starfsleyfa til handa byggingarstjórum og skoðunarstofum; rannsóknir á sviði mannvirkjamála; þátttaka í starfi Staðlaráðs Íslands og árleg útgáfa skýrslu um stöðu og þróun mannvirkjagerðar á Íslandi.
Í áætlunum umhverfisráðuneytis er gert ráð fyrir um 36 heilsársstörfum hjá Byggingarstofnun. Jafnframt verða 12 störf lögð niður hjá Brunamálastofnun og áætlað er að lyftueftirliti sé nú sinnt af sem svarar tveimur stöðugildum hjá Vinnueftirliti ríkisins. Ekki er gert ráð fyrir að störfum fækki hjá Skipulagsstofnun. Þannig er því gert ráð fyrir að störfum fjölgi um 22 við stofnun Byggingarstofnunar. Út frá reynslutölum má reikna með að launagjöld geti numið 7,5 m.kr. á hvert stöðugildi og því má ætla að launagjöld hjá Byggingarstofnun verði um 265 m.kr. á ári. Miðað við að launagjöldin nemi 70% af heildargjöldum verður annar kostnaður slíkrar stofnunar um 115 m.kr. á ári og þar af má ætla að húsnæðiskostnaður sé 30 m.kr. Fjármálaráðuneytið áætlar því að á ársgrundvelli geti heildarkostnaður Byggingarstofnunar verið 380 m.kr. Í þessum tölum er ekki reiknað með verkefnum á sviði rafmagnseftirlits sem samkvæmt frumvarpinu eiga að flytjast undir ábyrgðarsvið Byggingarstofnunar 1. janúar 2009 en verður þó áfram sinnt af Neytendastofu til 1. janúar 2012, og er þar gert ráð fyrir óbreyttum kostnaði. Samkvæmt bókhaldi ríkisins nam heildarkostnaður Brunamálastofnunar, umfram 7 m.kr. sértekjur af endurleigðu húsnæði, 170 m.kr. á árinu 2006, og gera má ráð fyrir að beinn kostnaður Vinnueftirlits ríkisins við lyftueftirlit hafi numið 20 m.kr. Núverandi heildarkostnaður ríkissjóðs við þessi verkefni er því um 190 m.kr. á ári. Gangi þessar áætlanir eftir má því ætla að árlegur kostnaður ríkissjóðs við verkefni á sviði mannvirkjamála tvöfaldist og fari úr 190 m.kr. í 380 m.kr. Til viðbótar er tímabundinn kostnaður við undirbúning að gildistöku laganna og stofnun Byggingarstofnunar áætlaður 136 m.kr.
Til að fjármagna starfsemi Byggingarstofnunar er gert ráð fyrir að lagt verði á sérstakt gjald, byggingaröryggisgjald. Í raun er ekki um nýtt gjald að ræða heldur er ákvæði um brunavarnagjald, sem innheimt hefur verið á grundvelli laga um brunavarnir, fært inn í frumvarp til laga um mannvirki en álagningu brunavarnagjalds verður jafnframt hætt, sbr. frumvarp til laga um breytingu á lögum um brunavarnir. Brunavarnagjald er nú 0,045 prómill af gjaldstofni og álagðar tekjur af gjaldinu árið 2005 námu 202 m.kr. Í frumvarpinu er lagt til að byggingaröryggisgjald verði 0,08 prómill af gjaldstofni. Er þá miðað við að tekjur af byggingaröryggisgjaldi skili 190 m.kr. umfram það sem tekjur af óbreyttu brunavarnagjaldi hefðu skilað. Hefur í því sambandi verið tekið tillit til 22% hækkunar sem orðið hefur á heildarbrunabótamati fasteigna í landinu öllu frá árslokum 2004 til ársloka 2006.
Niðurstaða þessa kostnaðarmats er því sú að verði frumvarpið óbreytt að lögum má ætla að frá og með árinu 2009 hækki kostnaður ríkissjóðs um 190 m.kr. á ársgrundvelli. Á móti hækka markaðar ríkistekjur um sömu fjárhæð. Auk þess er reiknað með alls 136 m.kr. tímabundnum kostnaði við undirbúning að gildistöku laganna og stofnsetningu Byggingarstofnunar.