Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1085, 133. löggjafarþing 358. mál: aukatekjur ríkissjóðs (löggilding starfsheitis grafískra hönnuða).
Lög nr. 20 16. mars 2007.
Þingskjal 1085, 133. löggjafarþing 358. mál: aukatekjur ríkissjóðs (löggilding starfsheitis grafískra hönnuða).
Lög nr. 20 16. mars 2007.
Lög um breyting á lögum nr. 88/1991, um aukatekjur ríkissjóðs, með síðari breytingum.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 1. mgr. 10. gr. laganna:- 22. tölul. orðast svo: Leyfi til arkitekta (húsameistara), byggingafræðinga, grafískra hönnuða, húsgagna- og innanhússarkitekta (húsgagna- og innanhússhönnuða), iðnfræðinga, landslagsarkitekta (landslagshönnuða), raffræðinga, skipulagsfræðinga, tæknifræðinga, tölvunarfræðinga og verkfræðinga.
- Á eftir 29. tölul. koma þrír nýir töluliðir, svohljóðandi:
- Löggilding vigtarmanna.
- Bráðabirgðalöggilding vigtarmanna.
- Löggilding rafverktaka.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 9. mars 2007.