Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1269, 133. löggjafarþing 367. mál: Orkustofnun (tilfærsla vatnamælinga, gagnaöflun um orkulindir o.fl.).
Lög nr. 48 27. mars 2007.
Til að sinna hlutverki sínu skv. 3. tölul. 1. mgr. er Orkustofnun heimilt að krefjast gagna sem varða nýtingu á jarðrænum auðlindum, orkuframleiðslu og orkunotkun, þ.m.t. gagna um innflutning, geymslu og sölu á jarðefnaeldsneyti. Skylt er þeim sem stunda atvinnurekstur er varðar framangreint að afhenda stofnuninni nauðsynleg gögn innan frests sem hún tilgreinir. Í reglugerð skal kveða nánar á um tegund gagna, gæði þeirra og skilafrest.
Sé gögnum ekki skilað innan tilgreinds frests er Orkustofnun heimilt að leggja dagsektir á viðkomandi fyrirtæki eða stofnun. Dagsektir geta numið 10–100 þús. kr. á dag. Ákvörðun um dagsektir skal tilkynnt bréflega á sannanlegan hátt þeim sem hún beinist að. Ákvarðanir um að leggja á dagsektir eru aðfararhæfar. Innheimtar dagsektir skulu renna í ríkissjóð að frádregnum kostnaði við innheimtuna.
Samþykkt á Alþingi 16. mars 2007.
Þingskjal 1269, 133. löggjafarþing 367. mál: Orkustofnun (tilfærsla vatnamælinga, gagnaöflun um orkulindir o.fl.).
Lög nr. 48 27. mars 2007.
Lög um breytingu á lögum nr. 87/2003, um Orkustofnun.
1. gr.
Við 2. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:Til að sinna hlutverki sínu skv. 3. tölul. 1. mgr. er Orkustofnun heimilt að krefjast gagna sem varða nýtingu á jarðrænum auðlindum, orkuframleiðslu og orkunotkun, þ.m.t. gagna um innflutning, geymslu og sölu á jarðefnaeldsneyti. Skylt er þeim sem stunda atvinnurekstur er varðar framangreint að afhenda stofnuninni nauðsynleg gögn innan frests sem hún tilgreinir. Í reglugerð skal kveða nánar á um tegund gagna, gæði þeirra og skilafrest.
Sé gögnum ekki skilað innan tilgreinds frests er Orkustofnun heimilt að leggja dagsektir á viðkomandi fyrirtæki eða stofnun. Dagsektir geta numið 10–100 þús. kr. á dag. Ákvörðun um dagsektir skal tilkynnt bréflega á sannanlegan hátt þeim sem hún beinist að. Ákvarðanir um að leggja á dagsektir eru aðfararhæfar. Innheimtar dagsektir skulu renna í ríkissjóð að frádregnum kostnaði við innheimtuna.
2. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.