Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 13. máls.
134. löggjafarþing 2007.
Þskj. 34  —  13. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um lagagildi viðaukasamnings milli ríkisstjórnar Íslands og Alcan Holdings Switzerland Ltd. um álbræðslu við Straumsvík.

Frá meiri hluta iðnaðarnefndar.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Guðrúnu Þorleifsdóttur lögfræðing og Guðjón Axel Guðjónsson skrifstofustjóra frá iðnaðarráðuneyti, Lúðvík Geirsson, bæjarstjóra Hafnarfjarðarbæjar, og Má Sveinbjörnsson hafnarstjóra.
    Með frumvarpinu er lagt til að lögfestur verði samningur milli ríkisstjórnar Íslands og Alcan Holdings Switzerland Ltd. um álbræðslu í Straumsvík. Sú meginbreyting sem í samningnum felst er að frá og með 1. janúar 2005 lýtur Alcan íslenskum skattalögum eins og aðrir lögaðilar sem bera ótakmarkaða skattskyldu hér á landi. Breytingarnar eru settar fram í sjötta viðauka samningsins sem er dagsettur 5. mars 2007 og iðnaðarráðherra hefur undirritað fyrir hönd ríkisstjórnarinnar með fyrirvara um samþykki Alþingis.
    Með bréfi dagsettu 28. maí 2003 tilkynnti Alcan íslenska ríkinu að félagið kysi að lúta íslenskum lögum og reglum hvað varðar skattlagningu og greiðslu opinberra gjalda. Samkvæmt aðalsamningnum hefði þessi breyting átt að öðlast gildi 1. janúar 2004 en þar sem viðræður drógust á langinn og endanlegt samkomulag náðist ekki fyrr en í byrjun marsmánaðar 2007 náðist samkomulag um að miða við framangreint tímamark, þ.e. 1. janúar 2005.
    Fram til þessa hefur Alcan greitt svonefnt framleiðslugjald sem hefur komið í stað tekjuskatts, eignarskatts, fasteignaskatts og fleiri skatta og gjalda og nú verður afnumið með samþykkt frumvarpsins. Þann 16. nóvember 1995 var gerður samningur á milli ríkisins og Hafnarfjarðarbæjar frá 16. nóvember 1995 þar sem Hafnarfjarðarbær fær hlutdeild í framleiðslugjaldinu í stað fasteignaskatta frá Alcan beint. Sú breyting verður nú að um gjöld til Hafnarfjarðarbæjar fer að íslenskum lögum eins og segir í 5. gr. þess samnings. Hafnarfjarðarbær vakti athygli nefndarinnar á því að bæjarfélagið hefði gert ráð fyrir því að samið yrði frá 1. janúar 2004. Við upphaf samningsgerðar milli Alcan og ríkisins réðst Hafnarfjarðarbær í umfangsmikið mat á fasteignum á svæðinu til að mæta þeirri dagsetningu. Fulltrúar Hafnarfjarðarbæjar sem komu fyrir nefndina greindu frá því að þeir mundu reyna að leita samninga við ríkið beint vegna greiðslna fyrir árið 2004.
    Þá ræddi nefndin um þær breytingar sem gerðar verða með samningnum er lúta að gjaldi fyrir höfn og hafnarmannvirki. Nefndin fékk þær upplýsingar frá fulltrúum Hafnarfjarðarbæjar að skort hafi samráð við þá við gerð samningsins en samningurinn er á milli Alcan og ríkisins en mun hafa áhrif á Hafnarfjarðarbæ og Hafnarfjarðarhafnir. Ákvæði 3. gr. samningsins sem lögfest verður með frumvarpinu felur í sér breytingu á 8. gr. aðalsamningsins, sem síðan er nánar útfært í 11. gr. hafnar- og lóðarsamningsins. Í þeim samningi er tekið fram að Alcan skuli greiða Hafnarfjarðarbæ sérstakt vörugjald fyrir allt ál sem flutt er út með skipi frá höfninni, og skuli það jafngilda 0,1% af heimsmarkaðsverði áls. Þó sé ekki greitt af því sem er á milli 105 og 175 þús. tonna af útflutningsverðmæti afurða þar sem sá hluti hafi verið greiddur fyrirfram samkvæmt samningi til ársins 2014. Samningurinn er í gildi til ársins 2014 og nefndinni hefur skilist að þá falli svokölluð 0,1% regla niður í kjölfarið. Það er skilningur nefndarinnar eftir samráð við iðnaðarráðuneytið að staðan árið 2014 verði þannig að búið verður að breyta aðalsamningnum og áðurnefndur hafnar- og lóðarsamningur fallinn úr gildi. Eftir standa þá í fyrsta lagi lögin eins og þau eru á þeim tíma og í öðru lagi réttur Hafnarfjarðarbæjar og Alcan til að semja.
    Í samningnum felst að við gildistöku hans munu allar sérreglur og undanþágur um skatta, tolla og gjöld sem gilda um starfsemi álversins falla niður. Frá og með gildistökunni ber Alcan að greiða tekjuskatt og önnur opinber gjöld sem almennt eru lögð á hér á landi, eftir þeim reglum sem um það munu gilda samkvæmt lögum á hverjum tíma.
    Meiri hluti nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 12. júní 2007.



Katrín Júlíusdóttir,


form., frsm.


Kristján Þór Júlíusson.


Bjarni Benediktsson.



Guðni Ágústsson.


Ragnheiður E. Árnadóttir.


Grétar Mar Jónsson.