Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 68. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 68  —  68. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um vernd fyrir þolendur heimilisofbeldis.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



    Hvað líður skoðun ráðuneytisins á aðgerðum til að vernda þá sem verða fyrir ofbeldi á heimilum sínum, sbr. frumvarp sem Alþingi vísaði til ríkisstjórnarinnar á 133. löggjafarþingi (71. mál) og varðaði breytingu á lögum um meðferð opinberra mála, nr. 19/1991, og almennum hegningarlögum, nr. 19/1940?