Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 73. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 73  —  73. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um lífríki Hvalfjarðar.

Frá Jóni Bjarnasyni.



     1.      Hefur farið fram nýlega heildarúttekt á lífríki og vistkerfi Hvalfjarðar?
     2.      Ef svo er, hvernig er rannsóknum og vöktun fylgt eftir og hver heldur utan um það verkefni?