Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 200. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 215  —  200. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um móttöku og vernd flóttafólks og hælisleitenda.

Frá Árna Þór Sigurðssyni.



    Með hvaða hætti hyggst ráðherra bregðast við áskorun fjölmargra frjálsra norrænna mannréttindasamtaka um norrænt átak til að tryggja fólki sem flýr vopnuð átök þá vernd og hæli eins og því ber samkvæmt flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna?