Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 224. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 242  —  224. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um kostnað af áfengisnotkun.

Frá Kristni H. Gunnarssyni.



     1.      Hver er áætlaður árlegur kostnaður þjóðfélagsins af áfengisnotkun?
     2.      Hvað er áætlað að árlegur kostnaður þjóðfélagsins hafi vaxið mikið frá 1997, þegar neyslan var um 5 lítrar af hreinu alkóhóli á hvern 15 ára og eldri, til ársins 2005 þegar neyslan hafði aukist í 7,1 lítra?