Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 241. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 261  —  241. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um starf forstöðumanns veiðistjórnunarsviðs Umhverfisstofnunar.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Hverju sætir að starf forstöðumanns veiðistjórnunarsviðs Umhverfisstofnunar á Akureyri, áður embætti veiðistjóra, verður flutt til Reykjavíkur um áramót?
     2.      Er það hluti af viðleitni ríkisstjórnarinnar til að dreifa opinberri þjónustu um landið og skipuleggja stjórnsýsluna og auglýsa störf óháð staðsetningu, samanber kafla stjórnarsáttmálans um að landið verði eitt búsetu- og atvinnusvæði?