Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 280. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 314  —  280. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um fé til forvarna.

Frá Ástu R. Jóhannesdóttur.



     1.      Hve miklu fé hefur verið varið til forvarna í menntamálaráðuneytinu árlega sl. 5 ár?
     2.      Hvaða þætti skilgreinir ráðuneytið sem forvarnir og hversu há upphæð fór árlega til hvers þeirra sl. 5 ár?


Skriflegt svar óskast.