Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 92. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 329  —  92. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 73/2005, um skipan ferðamála.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Jóhann Guðmundsson og Svanhvíti Axelsdóttur frá samgönguráðuneyti. Umsagnir bárust um málið frá Ferðamálasamtökum Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum ferðaþjónustunnar og Sýslumannafélagi Íslands.
    Í frumvarpinu eru lagðar til smávægilegar breytingar á lögum um skipan ferðamála sem einkum er ætlað að lagfæra úrræði vegna brota gegn lögunum. Nefndin leggur til málfarsbreytingu á einu ákvæði frumvarpsins.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með svohljóðandi

BREYTINGU:


    Efnismálsliður a-liðar 1. gr. orðist svo: Skipulagningu ferða hópa og einstaklinga, innan lands og erlendis.

    Herdís Þórðardóttir, Árni Johnsen og Ármann Kr. Ólafsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 22. nóv. 2007.



Steinunn Valdís Óskarsdóttir,


form., frsm.


Ólöf Nordal.


Karl V. Matthíasson.



Paul Nikolov.


Guðni Ágústsson.


Guðjón A. Kristjánsson.