Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 263. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 452 — 263. mál.
viðskiptaráðherra við fyrirspurn Birkis J. Jónssonar um störf hjá ráðuneytinu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Hversu mikið hefur störfum hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess fjölgað eða fækkað það sem af er þessu ári á höfuðborgarsvæðinu annars vegar og utan þess hins vegar?
2. Hversu mikið er áætlað að störfum hjá ráðuneytinu og undirstofnunum þess fjölgi utan höfuðborgarsvæðisins á næsta ári?
Störfum hjá viðskiptaráðuneytinu og stofnunum þess hefur fjölgað um 3,5 það sem af er þessu ári á höfuðborgarsvæðinu og um 1,5 utan þess.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um fjölgun starfa hjá ráðuneytinu og stofnunum þess utan höfuðborgarsvæðisins á næsta ári. Staðsetning nýrra starfa er ávallt tekin til skoðunar þegar til þeirra er stofnað.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 452 — 263. mál.
Svar