Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 204. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 480  —  204. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um innflutning dýra, nr. 54/1990, með síðari breytingum.

Frá sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Arnór Snæbjörnsson og Ólaf Friðriksson frá landbúnaðarráðuneyti, Halldór Runólfsson yfirdýralækni og Ingva Stefánsson frá Svínaræktarfélagi Íslands.
    Málið var sent út til umsagnar og bárust nefndinni umsagnir frá Bændasamtökum Íslands, yfirdýralækni og dýralækni svínasjúkdóma hjá Landbúnaðarstofnun og Svínaræktarfélagi Íslands.
    Eitt meginmarkmið frumvarpsins er að einfalda stjórnsýslu í tengslum við innflutning gæludýra sem ekki teljast til nýrra dýrategunda eða erlendra dýrategunda sem eru fyrir hér á landi. Í stað þess að landbúnaðarráðuneyti annist leyfisveitingar er talið rétt í ljósi markmiða um einfaldari stjórnsýslu að fela yfirdýralækni og Landbúnaðarstofnun að annast þann þátt innflutnings dýra. Jafnframt er lagt til að við lögin bætist skilgreining á hugtakinu gæludýr. Annað meginmarkmið frumvarpsins er að lagfæra skilgreiningu laganna á hugtakinu einangrunarstöð en með lögum nr. 153/2002, um breytingu á lögum um innflutning dýra, láðist að breyta skilgreiningunni á hugtakinu einangrunarstöð þannig að það næði til innflutnings svína og erfðaefnis þeirra. Þær breytingar sem lagðar eru til eru til að taka af allan vafa um meðferð slíkra mála.
    Nefndin kannaði sérstaklega þá hlið málsins sem lýtur að innflutningi svína og erfðaefnis þeirra en svínabændur hafa farið fram á að liðkað verði til við innflutning á erfðaefni svína. Samkvæmt gildandi lögum er aðeins heimilt að flytja erfðaefni svína í einangrunarstöð og láta dýr vaxa af því en ekki flytja erfðaefnið til svínabænda að lokinni meðferð í einangrunarstöð. Svínaræktarfélag Íslands hefur látið kanna kosti og galla mismunandi leiða við erfðauppfærslu með tilliti til sjúkdómaöryggis, hagkvæmni og hraða í kynbótum. Í skýrslu dýralæknis í svínasjúkdómum til fagráðs Svínaræktarfélags Íslands frá 31. maí 2006, sem lagt var fyrir nefndina, kom m.a. fram að einn öruggasti kosturinn af þeim sem kannaðir voru væri að flytja inn fryst sæði beint inn á svínabú. Innflutningur lifandi dýra var talinn lakasti kosturinn. Yfirdýralæknir hefur hins vegar lagst gegn slíkri heimild með tilliti til sjúkdómaöryggis og þess grundvallar sem lög um innflutning dýra byggjast á.
    Nefndin beinir því til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að hann skipi starfshóp sérfræðinga til að gera tillögur um leiðir til að efla og auka hagkvæmni í svínarækt, m.a. með tilliti til hugsanlegs innflutnings á erfðaefni, með það að leiðarljósi að búgreinin verði arðbær og samkeppnisfær við aðrar greinar og matvælaöryggi og sjúkdómavarnir séu nægilega tryggð.
    Við athugun málsins í nefndinni kom í ljós að hentugra væri að færa gildistökudag laganna til 1. janúar 2008 svo að tími gæfist til undirbúnings áður en lögin tæku gildi.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi

BREYTINGU:


    Við 5. gr. Greinin orðist svo:
    Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2008.

    Gunnar Svavarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 10. des. 2007.



Arnbjörg Sveinsdóttir,


form., frsm.


Atli Gíslason.


Kjartan Ólafsson.



Helgi Hjörvar.


Jón Björn Hákonarson.


Jón Gunnarsson.



Karl V. Matthíasson.


Grétar Mar Jónsson.