Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 323. máls.
135. löggjafarþing 2007–2008.
Þskj. 504  —  323. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um tvöföldun Hvalfjarðarganga.

Frá Árna Þór Sigurðssyni.



     1.      Mun ráðherra beita sér fyrir því að tvöföldun Hvalfjarðarganga verði í næstu samgönguáætlun?
     2.      Hvenær mætti búast við að framkvæmdir gætu hafist við þá mikilvægu samgöngubót?
     3.      Hvaða stefnu hefur ráðherra um fjármögnun verkefnisins? Mun hann tryggja jafnt aðgengi allra vegfarenda um göngin eða hyggst hann leggja til upptöku veggjalda?